Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 14

Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 14
UTLOND umfangsmiklum „peningaþvotti" fyrir eiturlyfjasmyglara. „Peningaþvottur“ er hugtak sem notað er til að lýsa því hvernig ágóða af eiturlyfjasölu eða annari ólöglegri starfsemi er rennt í gegn um bankareikninga þar til ill- mögulegt er að rekja uppruna fjárins. Þetta var eitt af því sem BCCI sér- hæfði sig í og hagnaðist vel á. William von Raab, þáverandi toll- gæslustjóri, komst á snoðir um at- hæfið þegar tollgæslan fann pappíra þess efnis hjá eiturlyfjasmyglurum. Hann ákvað að athuga hvort CIA hefði einhveijar upplýsingar um þennan skuggalega banka, BCCI. Hann hringdi í Robert Gates, þá næstráðanda hjá CIA, sem svaraði: ,Já, þú meinar Bank of Crooks and Criminals International.“ Gates sendi von Raab vinnuplagg frá CIA þar sem í ljós kom að CIA vissi m.a. um ólög- legt eignarhald BCCI á First Amer- ican Bank of Washington og National Bank of Georgia, auk þess sem lýst var hlutverki bankans í peninga- þvotti, vopnaviðskiptum og hryðju- verkastarfsemi. Eintök af þessari skýrslu fóru til Utanríkisráðuneytisins og Fjármála- ráðuneytisins og iíklega til Dóms- málaráðuneytisins, en engin þessara stofnana sá ástæðu til að gera neitt í málinu. CIA notaði á þessum tíma reikninga hjá BCCI til að greiða fyrir leyniaðgerðir víðs vegar um heiminn og bankinn var mikilvægur sjóður upplýsinga um misgerðir Manuel Noriega, sem Bandaríkjastjóm var ákaflega upptekin af. Að auki tengd- ust bankanum allir helstu bandamenn Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, Saudi Arabía, írak, Persaflóafursta- dæmin og vitanlega Pakistan. Banda- rísk yfirvöld töldu sig því hafa of miklu að tapa ef farið yrði í miklar aðgerðir gegn BCCI. En það var ekki hægt að leiða hjá sér sönnunargögnin sem tollgæslan hafði safnað saman og á endanum var farið í mál við útibú BCCI í Tampa á Flórída. Niðurstaðan úr þeim mála- ferlum var dómsátt um að lægra sett- ir yfirmenn hjá bankanum játuðu á sig peningaþvott og bankinn var sektað- ur um 15 milljónir dala sem var minna en útibúið hafði hagnast á þvottinum og þriðjungur þess sem bankinn borg- aði lögmönnum sínum í málinu. Gegn þessu skuldbatt bandaríska ríkið sig til að lögsækja ekki bankann fyrir aðr- ar misgerðir sem vitað var um á þeim tíma. Tollgæslustjórinn von Raab sagði af sér skömmu seinna í mótmæla- skyni við linkind stjórnvalda í barátt- unni við eiturlyfjasla. EINKAMÁLARÁÐUNEYTI í STÓRRÆÐUM Sagan af áhrifum BCCI í banda- rísku fjármála- og stjórnmálalífi er orðin svo löng og flókin að fæstir geta lengur fest á henni hendur. Enn er ósvarað spumingum um aðgerðir og aðgerðaleysi bandarískra stjórnvalda í málinu og enn eru ekki öll kurl komin til grafar um heildammsvif bankans hér í landi. BCCI virðist reyndar hafa tengst öllum meiri háttar alþjóða- hneykslismálum og lögbrotum síð- ustu ára. Utibú bankans í Monte Car- lo var notað í ólöglegri vopnasölu Bandaríkjanna til íran. BCCI keypti VEIST ÞU, Að krafan í dag er að allar vogir og mælitæki sem notuð eru við viðskipti skulu vera löggilt? Er vogin þín löggilt? Er mælirinn þinn löggiltur? Gættu að því! Nákvæmni, Þekking, Gæði LÖGGILDINGARSTOFAN The lcelandic Bureau ol Legal Metrology SÍÐUMÚLA13 - PÓSTHÓLF 8114 - ÍS-128 REYKJAVÍK SÍMI 91-681122 48

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.