Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 33

Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 33
þrátt fyrir að hafa verið frábær skemmtun í alla staði. Ástæðan, jú þeim mistókst að selja vöruna. Því er svo bætt við að það sé kaldhæðnis- legt að margar af þeim auglýsingum, sem þóttu hvað leiðinlegastar, hafi reynst árangursríkastar, hafi staðið að baki best seldu vörumerkjunum. Áréttað er að eklvert samband þurfi að vera á milli skemmtunar og sölu. Jafnframt er minnt á þá hættu að sleg- ið geti fljótt í brandara í auglýsingum og þess vegna þurfi að gera fleiri aug- lýsingar en ella í fyndnum herferðum. EINFALT RÁD TIL AÐ SJÁ HVORT FYNDNIN SKYGGIÁ SKILABOÐIN Hægt er að nota einfalt ráð til að átta sig á hvort skemmtun skyggi á söluskilaboð í sjón- varpsauglýsingu. Það er einfaldlega að klippa skilaboðin í burtu. Beri auglýs- ingin það eru hlut- irnir í lagi, fyndnin styrkir þá auglýs- inguna, gerir hana enn betri og eykur söluna — sem er að- alatriðið. í bókinni er rakið dæmi um erlenda auglýsingu þar sem fyndni og húmor styrkti auglýsinguna — jók söluna. Aug- lýsingin var um svitalyktareyði. Vandamálið var svitalyktin og lausn- in var að sjálfsögðu ákveðinn svitalyktareyðir. í sjón- varpsauglýsingunni spurði maður lækninn sinn hvort svitalyktareyðir- inn leysti öll hans vandamál. Læknir- inn svaraði að bragði: „Nei, aðeins eitt þeirra.“ SPILAÐINN Á KYNHVÖTINA Einnig er rætt um það hvemig spil- að sé inn á kynhvötina í auglýsingum. Sagt er að lífið snúist ef til viU um kynlíf en það selji ekki margar vörur. (Sex may make the world go round, but it doesn’t sell many products.) Bent er á að kynhvöt selji þegar verið sé að selja kynæsandi vörur eins og ilmvötn og snyrtivörur. Jafnframt er bent á að megrun og heilsurækt séu dæmigerð svið þar sem vel gangi að spila inn á kynhvöt- ina. Gosframleiðandi seldi sykur- skertan drykk og stflaði söluna fyrst og fremst inn á karlmenn í heilsu- rækt. Salan rauk hins vegar upp þegar auglýst var beint með orðunum að drykkurinn hjálpaði konum að halda sér grönnum og kynæsandi. TÓNLIST í AUGLÝSINGUM Tónlist er í flestum auglýsingum og flokkast undir skemmtun. Söngur og tónlist í bakgrunni er afar einföld leið til að ná upp stemmningu í sjónvarps- auglýsingum. Hins vegar er mönnum ráðlagt að nota tónlist af varfæmi þar sem möguleiki sé á að yfirgnæfandi tón- list dragi athyglina frá sjálfum skilaboð- unum, að þau fari fyrir bí. Sé tónlist hins vegar notuð rétt getur hún magnað upp skilaboðin og greypt auglýsinguna í minni fólks þannig að nóg sé hreinlega að koma með fyrsta tóninn og þá viti fólk hvað sé verið að auglýsa. Bjöll- uhljómur þykir afar sterkur í þessu sam- bandi og er talinn hamra nafn vöru og skilaboð hvað best inn í hugi fólks. Sér- staklega þykir bjölluhljómurinn vera áhrifaríkur og duga vel til að selja bamavörur. VANDIÐ VALIÐ Á LEIKURUM — TIL AÐ STANDA UPP ÚR Vart er hægt að hugsa sér fyndni eða skemmtun í sjónvarpsauglýsing- um án þess að huga að því fólki sem á að leika í auglýsingunum. Það að fara óvenjulegar leiðir í vali á fólki hjálpar auglýsingunni að standa upp úr og verða minnisstæð. Best er að fá leik- ara með óvenjulega hæfileika, hæfi- leika sem vekja athygli og gera aug- lýsinguna minnisstæða. Þegar ráðinn TLBOÐ TIL ÁSKRIFENDA FRJÁLSRAR VERSLUNAR 10% út 0Pr" Fjárhagsbókhald Viáskiptamanna- bókhald Lagerbókhald Sölukerfi Launakerfi Windows tollkerfi Hótel kerfi Einnig: Smáráö , lítiö viöskipta- lager- og sölukerfi meö fjárhags- bókhaldi \r RÁÐHUGBÚNAÐUR HF. Bæjarhrauni 20 - 220 HafnarfjörSur Sími. 565 4870 - Fax. 565 4872 Oft er sú leið farin að velja miðlungsþekkta leikara í sjón varpsauglýsingar. Þeir hafa hæfileika og ferst verkið oft ágætlega úr hendi. Jafnvel þótt neytendur og áhorfendur þekki ekki nafn leikarans kann andlit hans engu að síður að vera kunnuglegt. Það eitt hjálpar til að ná fram þessu óvenjulega og þar með athygli áhorfenda. 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.