Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 37

Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 37
Gunnar Steinn Pálsson almannatengill: STUNDUM MÆTTU ÞEIR BESTU VERA VANDLÁTARI lmennt get ég sagt að þeir leikarar, sem hafa staðið upp úr á undanfömum árum og verið hvað mest í auglýsingum, til dæmis þulur eins og Helgi Skúla- son, og leikarar í sjónvarpi, eins og þeir Spaugstofumenn, hafa á stundum verið full víða. Ég hef á köflum aðallega saknað þess að jafn snjallir menn og þeir eru skuli ekki stundum vera vandfýsnari á viðfangsefni." Þannig svarar hinn þekkti auglýsingamaður Gunnar Steinn Pálsson spuming- unni um hvort helstu skemmtikraftar þjóðarinn- ar, Spaugstofumenn, séu ofnotaðir í sjónvarpsauglýs- ingum. „Fyrir þá er hættan sú að sjónvarpsauglýsingum, sem þeir leika í, sé illa leik- stýrt eða að illa sé að málum staðið, til dæmis ekki fjár- hagslegir burðir til að gera hlutina almennilega. Það kemur niður á frammistöðu þeirra. Og þetta hefur gerst hjá köppunum. Það er góð regla fyrir toppmenn eins og þá, sem mikil eftirspurn er eftir, að vera vandlátir á auglýsingaverkefni, koma sjaldnar fram og taka þá hreinlega meira fyrir í hvert skipti. Þetta á auðvitað við um allt okkar hæfileikaríkasta fólk sem mikið er sóst eftir í auglýsingar. En þeir Spaugstofumenn eru svo hæfileikaríkir og fyndnir að það þarf auðvitað eitthvað mikið að koma tö svo þjóðin verði leið á þeim. Það er langt í land með það. Þess vegna eru þeir alls ekki ofnotaðir út frá því sjón- armiði að þjóðin sé búin að fá leið á þeim, það er hún alls ekki.“ - Víkjum að fyndni í auglýsingum. Selur grínið og er of mödð af því í auglýsingum? „í sjálfu sér tel ég ekki vera of mikið grín í auglýsingum. En mér finnst skilaboðin, sem grínið á að koma á framfæri, oft ekki nægilega meitluð. Þau komast of sjaldan tö skila. Kúnstin er að vera ekki bara með grín heldur ákveðin skilaboð sem sett eru fram á skemmtilegan hátt. Grín, eitt og sér, selur sjaldnast annað en ef tö völ þægöega tilfinn- ingu. Það skemmtir hins vegar fólki. Skilaboðin skipta hins vegar máli þegar um beina sölu á vörum er að ræða. En auðvitað eru líka undan- tekningar sem sanna þessa reglu eins og allar aðrar. Þess vegna ná alvarlegar auglýsingar, með miklum upplýsingum og skýrum sköaboðum, ekkert síður árangri. Jafnvel þótt auglýs- ingamar virki Ieiðinlegar á fólk. Ég tengdist til dæmis framleiðslu á sjónvarpsaug- lýsingu sem margir kölluðu leiðinlegustu auglýsingu á íslandi frá upphafi, auglýs- inguna um F plús trygging- una. Hún tók um tvær mín- útur í keyrslu og var ekkert annað en hreinn og klár fróðleikur um trygginga- mál, kynning á upplýsing- um. Skilaboðin komust hins vegar til skila og auglýsingin virkaði ágætlega - og jafnvel rúmlega það. Þegar fólk var búið að sjá hana einu sinni þá nánast hljóp það frá þegar hún kom aftur. Það vissi að þarna var að koma löng auglýsing um tryggingamál. En einu sinni var alveg nóg til þess að selja. Þannig að grín er ekk- ert ávísun á öruggari sölu en margt annað. Fari meitluð skilaboð og grín hins vegar saman verður útkoman góð. En grínið verður þá að árétta skilaboðin. Hlutverk auglýsinga er nefnilega fyrst og fremst að miðla upplýsingum." Gunnar Steinn Pálsson almannatengill: „Grín selur sjaldnast á eigin spýtur. En það getur hjálpað til við að koma meitluðum skilaboðum á framfæri.“ TEXTI: JÓN G. HAUKSSON MYNDIR: BRAGIJÓSEFSSON 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.