Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 39
STJORNUN
GERIfi STARFSMENN
AD SIGURVEGURUM
Sálfræðingarnir Jóhann Ingi Gunnarsson og Sæmundur Hafsteinsson nefna
hér tíu leiðir til að gera starfsmenn að sigurvegurum. Þær snúast um
mannleg samskipti
Jóhann Ingi lauk embættisprófi í sálfræði við Háskól-
ann í Kiel, Þýskalandi, 1987. Jóhann Ingi, sem er kunn-
ur handknattleiksþjálfari, rekur eigin heildverslun og
hefur auk þess fengist við margvíslega sálfræðiþjón-
ustu í samvinnu við Sæmund.
Sæmundur Hafsteinsson lauk embættisprófi í sálfræði
við Háskólann í Lundi, Svíþjóð, 1987. Hann hefur einnig
lokið prófi í félagsráðgjöf, kennslufræðum og fjölskyld-
uráðgjöf. Sæmundur er nú nýráðinn félagsmálastjóri
hjá Bessastaðahreppi. Saman reka Jóhann Ingi og Sæ-
mundur sálfræði- og ráðgjafaþjónustu í Garðabæ.
mér fer á eftir erindi sem sál-
fræðingamir Jóhann Ingi
Gunnarsson og Sæmundur
Hafsteinsson fluttu á ráðstefnunni
Gæði í þágu þjóðar sem haldin var
fimmtudaginn 2. febrúar síðastliðinn á
vegum Gæðastjómunarfélags ís-
lands:
„Menn hafa lengi velt fyrir sér
raunhæfum aðferðum til að hvetja
menn til dáða og efla afköst. Það get-
ur vafist fyrir mönnum þegar ein-
staklingur á í hlut en heldur verður
verkefnið flóknara þegar um fleiri ein-
staklinga er að ræða, jafnvel stóra
hópa.
Talað er um „team-work“, „em-
powerment", „hópefli" og margt
fleira í því samþandi. Við höfum hér
kosið að nota síðasttalda hugtakið og
velta fyrir okkur aðferðum til að efla
samstarf hjá afmörkuðum starfshóp-
um. Við sækjum gjarnan hugmyndir
okkar í eigin reynslubrunn, ekki síst
afreksíþróttir.
Við ætlum hér að fjalla um hlutverk
stjórnenda í því vandasama verkefni
39