Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 49
„Þegar þú ert að tala við Sigurjón áttu alla athygli hans. En skreppir þú frá augnablik situr hann ekki á meðan og
glápir út í loftið. Nei, hann fer að næsta síma og ræktar sín viðskiptasambönd.“
jón er ákaflega duglegur maður sem
elskar að vinna.“
Það fer mörgum sögum af eljusemi
og dugnaði Sigurjóns. Hann unir sér
sjaldan hvfldar. Þannig sögðu margir
af viðmælendum Frjálsrar verslunar
frá því hvernig hann gjörnýtir tímann.
Gott dæmi er þegar Sigurjón var við
annan mann í biðröð utan við kvik-
myndahús í New York. Hann lét
kunningja sinn standa í röðinni en fór
sjálfur í símaklefa á meðan til viðhalda
sambandi við þá sem hann átti í við-
skiptum við. „Síminn er stanslaust að
hringja eða þá að hann er að hringja í
einhvem. Maðurinn hættir hreinlega
aldrei,“ segir einn kunningi Sigur-
jóns.
En þótt erillinn sé mikill gefur Sig-
urjón viðmælanda sínum ávallt alla
sína athygli. „Þegar þú ert að tala við
Sigurjón áttu alla athygli hans. En
skreppir þú frá augnablik situr hann
ekki á meðan og glápir út í loftið. Nei,
hann fer að næsta síma og ræktar sín
viðskiptasambönd. Svo þegar þú
kemur aftur áttu hug hans allan á ný.
Hann gjörnýtir tímann,“ segir Lárus
Ýmir Óskarsson kvikmyndaleikstjóri.
Sigurjón og Páll Baldvin Baldvins-
son leikstjóri kynntust í bókmennta-
náminu í Háskólanum og skrifuðu
saman BA-ritgerð sem fjallaði um
sögu íslensku revíunnar. Hafa þeir
verið mjög nánir vinir síðan. Páll tek-
ur undir það mat flestra viðmælenda
Frjálsrar verslunar að Sigurjón sé
óhemju duglegur, sannkallaður
vinnuhestur en bætir við:
„Sigurjón hefur náðargáfu sem fáir
menn hafa en sem nýtist honum í öll-
um verkum, sem hann tekur sér fyrir
hendur, og er mikilvægari en sá
dugnaður sem hann er annálaður
fyrir. Þetta er náðargáfa sem kemur
til af langri vinnuævi og nefnist ein-
faldlega skapandi innsæi,“ segir Páll
Baldvin. Oghannbætir við: „Sigurjón
er dæmiverður tvíburi, getur verið
bæði harður og ljúfur. Það þarf sterk
bein til að komast af í þeim harða
heimi sem kvikmyndagerð í Banda-
ríkjunum er en það þarf líka milt og
gleðilegt fas sem er Sigurjóni mjög
eiginlegt. Sigurjón er mjög sjarmer-
andi maður sem á auðvelt með að
komast í samband við fólk. Þótt hörku
og sterk bein þurfi til ætli menn sér að
ná langt þarf ekki síður ákveðna mýkt
og sveigjanleika. Sigurjón státar af
hvoru tveggja."
Lárus Ýmir segir að sem kvik-
myndaleikstjóri sjái hann marga kosti
við Sigurjón. „Hann á mjög auðvelt
með að umgangast peninga. Hann
skilur hvemig þeir hreyfa sig og kann
á þá. Þar að auki er hann vel menntað-
ur, meðháskólagráðuíbókmenntum.
Það er því ekki aðeins að ég treysti
honum fullkomlega sem peningaleg-
um forsjármanni verkefnis heldur get
ég talað við hann sem jafningja um
listræna hlið málsins. Þá er einkenn-
andi fyrir Sigurjón hvað hann hefur
góða tilfinningu fyrir verksviði hvers
og eins. Þegar við vinnum saman
skiptir hann sér af mínu verksviði,
hefur afskipti af hlutverkum og hverj-
ir séu ráðnir til kvikmyndagerðarinn-
ar en hann tekur aldrei af mér völdin.
Á sama hátt get ég skipt mér af pen-
49