MARKAÐSMAL MÓKOLLUR LANDSBANKANS LUKKUDÝR HM í HANDBOLTA Ósk Möguleikhússins um lítinn styrk hjá Landsbankanum varð að landkynningu fyrir 130 milljónir manna um allan heim 0sýnd Landsbanda íslands væri önnur ef Möguleikhúsið hefði ekki þurft á peningum að halda. Og það sem meira er, leit Möguleikhússins að styrktaraðila hafði einnig áhrif á Heimsmeistara- keppnina í handbolta og um leið á ásýnd íslands! Þetta kann að hljóma undarlega en eins og margar góðar sögur, þá er þetta dagsatt. Ævintýrið hófst þegar Stefán Sturla Sigurjónsson, einn af forsvarsmönnum Möguleikhússins heimsótti markaðssvið Landsbank- ans, þeirra erinda að falast eftir fjár- stuðningi við ferð Möguleikhússins um landið með leikritið um umferðar- álfinum Mókoll. Edvard Ragnarsson og starfsfólk markaðssviðs Landsbankans var á þeim tíma mikið að velta fyrir sér nýj- um sparibauk fyrir bankann og klúbbi fyrir yngstu börnin. Við vorum eig- inlega búin að ákveða að gera bangsa- bauka, sem í sjálfu sér voru ósköp snotrir, en höfðu þann galla að vera ekki íslenskir," segir Edvard. En þegar við Stefán Sturla fór- um að ræða saman varð ég strax hrifinn af þessari hug- mynd þeirra að umferðarálf- inum sem kennir yngstu börnunum umferðar- reglumar, því álfa- trúin er svo sterk meðal okkar. En á Álfurinn Mókollur er umferðarálfur, sparibaukur, umhverfisráðherra" og lukkudýr heimsmeistarakeppn- innar í handbolta. Möguleikarnir á að nota hann eru ótal margir. TEXTI: ÞORSTEINN G. GUNNARSSON því andartaki var það afar fjarlægt mér að gera Mókoll að starfsmanni" Landsbankans. Stefán Sturla var hins vegar fljótur að sjá möguleikana sem álfurinn bjó yfir. Fyrir tilviljun sá Ste- fán tillögur okkar af bangsabauknum og stakk strax upp á því að við mynd- um einfaldlega nota Mókoll í staðinn fyrir bangsann." Að sögn Edvards þurfti lítið að hafa fyrir því að sannfæra hann um ágæti hugmyndarinnar, en ég óttaðist það mjög að erfitt yrði að sannfæra banka- stjórnina um ágæti hugmyndarinnar, því hún bauð í sjálfu sér upp á að mér yrði hreinlega lfkt við álf út úr hól", en ótti minn reyndist ástæðulaus, því bankastjórnin sá strax ágæti hug- myndarinnar, möguleikana sem Mó- kollur gaf bankanum, svo ég tali nú ekki um tengingu hans við þjóðarsál- ina með allri sinni álfatrú. Enda er það tilfellið að ef við skoðum þekkar álfa- sögur getum við fullyrt að álfurinn hafi í gegnum tíðina verið fyrsti umhverf- isráðherra íslendinga, því þeir eru nánast óteljandi hólarnir og hæðirnar sem varðveist hafa vegna þess að álf- arnir hafa látið til sín taka!" Málinu var síður en svo lokið þegar bankastjórnin var búin að samþykka Mókoll, það var þá eiginlega rétt að byrja. Hh'n Gunnarsdóttir leikmynda- hönnuður gerði tillögur að spari- bauknum sem byggðu á búningum hennar sem hún gerði fyrir leikritið og myndir af álfinum sem hún gerði á veggspjald og leikskrá. Fólki þótti ekki nóg gert, því möguleikar álfs- ins eru nánast ótæmandi. Við vildum tengja Mókoll umhverf- inu og náttúrunni á einhvern hátt og sáum fjótt mikla möguleika með samstarfi við Fjölskyldu- og hús- dýragarðinn. Starfsfólk garðanna tók málaleitan okkar afar vel og Hlín tók sig til og hannaði stórt og mikið leik- kort með stílfærðri mynd af garðinum og myndir honum tengd- um sem krakkarnir fá að gjöf við hvert inn- 50