Valur er vinslasta íþróttafélag Reykjavíkur - meö 22%fylgi. KR er annað vinsælasta félagið í Reykjavík - með 20% fylgi. Fram er þriðja vinscelasta félagið - með 12% fýlgi. VALUR, KR OG FRAM VINSÆLUST A Akureyri hefur KA stungið Þór afí vinsldum. Tæþur helmingur Hafnfirdinga held- ur með FH. I Kópavogi hefur Breiðablik mikiðforskot á HK í vinsældum. Qalur er vinsælasta íþróttafélagið í Reykja- vík og hefur nauma for- ystu á KR Fram er í þriðja sæti. Fullyrða má að þessi félög séu jafnframt vinsælustu félög lands- ins, ásamt IA og KA en þessi ut- anbæjarfélög njóta nokkurra vinsælda í Reykjavík. Víkingur er fjórða vinsælasta félagið í Reykjavík. Þetta er niðurstaðan úr skoðanakönnun Frjálsrar verslunar sem gerð var dagana 23. til 25. febrúar sl. Spurt var: Hvaða íslenskt lið styður þú helst í íþróttum? Fjöldi svarenda í Reykjavík var 400. Þar af sagðist 41% vera óákveðin; ekki halda með neinu sérstöku liði. Á Akureyri er KA orðið lið flestra bæjarbúa - samkvæmt könnuninni - og hefur stungið keppinautinn, Þór, gjörsamlega af. Um 71% bæjarbúa segjast styðja KA en aðeins um 17% Þór - af þeim sem taka afstöðu. Um 12% Akureyringa styðja önnur íþróttafélög - yfirleitt Reykjavík- urfélögin. Hafnarfirðingar styðja FH í ¦p^' 71% KA 1 Hafnarfjoröur meira mæli en Hauka. Tæpur helmingur Hafnfirðinga (48%) styður FH en um þriðjungur (33%) styður Hauka - af þeim sem taka afstöðu. Um 19% Hafn- firðinga styðja önnur lið - yfirleitt Reykjavíkurfélögin. I Kópavogi, öðru stærsta bæjarfélagi landsins, er svolítið annað uppi á teningnum en í Hafnarfirði og á Akureyri. Um 37% Kópavogsbúa styðja Breiðablik, vinsælasta liðið í Kópavogi. Það er nokkru minna fylgi en vinsælustu liðin á Akureyri og í Hafharfirði fá. Takið líka eftir að Fram er ann- að vinsælasta liðið í Kópavogi ásamt Kópavogsliðinu HK, með um 10% fylgi. Það stingur raun- ar í augun hvað margir Kópa- vogsbúar halda með íþróttafé- lögum í Reykjavík. Reykjavík Valur er vinsælasta lið Reykja- víkur. - Það er kaffið Sími 568 7510 8