FRETTIR Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstöðumaður verðbréfasviðs K.N., Sveinn Torfi Pálsson, forstöðumaður stjórnunarsviðs K.N., Jóhann Ivarsson, starfs- maður Kaupþings íReykjavík, Tryggvi Tryggvason,framkvæmdastjóriK.N. og Þorsteinn Hjaltason lögfræðingur. KAUPÞING NORÐURLANDS10 ARA Qaupþing Norðurlands varð 10 ára í apríl 1997. Fyrirtækið hefur fagnað afmæli sínu með margvíslegum hætti á árinu, boðið vinum og viðskiptamönnum í helgarferð til Grímseyjar, látíð hanna nýtt merki og haft opið hús fyrir gestí og gangandi á aðventunni. í lok febrúar s.l. var efnt tíl veislu í tengslum við aðalfund Kaupþings Norðurlands og boðið í teití í nýjum og glæsilegum húsakynnum við Skipagötu 9 á Akureyri. . -M skarphéðinsdóttir, sknj- SigurðurJ. Sigurðsson, bæjarfulltrúi á stofustjóri Sparisjóðs Akureyri og Karl Eskild Pálsson, frétta- Norðlendinga og Ágústa Olajs- ^ RÚy dóttirfasteignasah. M U R A R A R GÓLF SLÍPIVÉLAR - þar sem mest á reynir SKEIFUNNI3E-F SÍMI581 2333 FAX 568 0215 I ELDLINUNNI NÝRSTJÓRI ¦? - HJA KEA Eiríkur S. Jóhannsson, nýráðinn kaupfélags- stjóri KEA. Eiríkur S. Jóhannsson hefur verið ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags Eyfirðinga á Ak- ureyri. Kaupfélagið hefur löngum borið höfuð og herðaryfir atvinnulífið við Eyjafjörð og er meðyfir 11 milljarða veltu. Qiríkur er aðeins 30 ára gamall og er því ótvírætt með yngstu stíórnendum stórfyr- irtækja á íslandi. Hann tekur við starfinu af Magnúsi Gauta Gautasyni sem tekur við starfi framkvæmdastíóra Snæfells en það fyrirtæki mun sjá um allan sjávarútvegsrekstur KEA og dótturfyr- irtækja þess. Þannig mun Eiríkur ekki stýra eins fjölþættum rekstri og fyrirrennarar hans. Mörgum þykir Eiríkur vera ungur en nærtækt fordæmi í sögu KEA er Magnús Gauti sem var aðeins 38 ára þegar hann tók við starfi kaupfélagsstjóra. Eiríkur er heimamaður á Akureyri fæddur og al- inn upp í höfuðstað Norðurlands. Foreldrar hans eru Jóhann Helgason, deildarstjóri ríkisskattstíóra á Akureyri, ættaður frá Þórustöðum í Eyjafirði, og Sigríður Árnadóttír húsfreyja, ættuð frá Finnsstöð- um í Eiðaþinghá. Eiríkur varð stúdent frá MA1988, lauk BS í hag- fræði frá HÍ1991 og lærði síðan hagfræði við Vand- erbilt University í Nashville, Tennessee í Bandaríkj- unum. Hann starfaði í hagdeild Landsbanka Islands að loknu námi en tók síðar við starfi útíbússtjóra bank- ans á Akureyri og hefur gegnt því síðan og verið svæðisstjóri á Norðurlandi. Eiríkur hefur kennt við Háskóla íslands, Vanderbilt University og Háskól- ann á Akureyri. Hann hefur setið í stjórnum súkkulaðiverksmiðjunnar Lindu, slippstöðvarinnar Odda og skinnaverksmiðjunnar Foldu og verið gjaldkeri KA Eiríkur er í sambúð með Friðriku Tómasdóttur, leikskólakennara frá Akureyri. Friðrika er dóttir Rannveigar Jónsdóttur og Tómasar Arnar Agnars- sonar. Þau eiga saman tvö börn, Marínu f. 1994 og nýfæddan son. SD 16