Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Frjįls verslun

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Frjįls verslun

						FORSIÐUGREIN

JON INGVARSSON, SH

Jón Ingvarsson, stjórnarformaður SH, 55 ára, beitir sér mjög í

þeirri baráttu sem SH hefur staðið í við íslenskar sjávarafurðir.

Þessar tvær blokkir hafa tekist á af römmu afli undanfarin ár - og

þar eru litlir kærleikar á milli. Þetta er baráttan um kvótann út frá

kenningunni um að þeir sem ráði yfir kvótanum séu í lykilaðstöðu

til að selja sjávarútvegsfyrirtækjum vöru og þjónustu. SH er afar

öflugt fyrirtæki, stærsta fyrirtæki landsins miðað við veltu, - með

afar umfangsmikla starfsemi erlendis.

Þótt Jón sé lögfræðingur að mennt hefur hann fyrst og fremst

unnið við sjávarútveg. Faðir hans stofnaði Isbjörninn og varð Jón

framkvæmdastjóri hans árið 1973. ísbjörninn var sameinaður Bæj-

arútgerð Reykjavíkur árið 1985 - og úr varð Grandi. Auk þess að sitja

í stjórn Granda situr Jón í stjórn Eimskips og TM - svo og í stjórn

dótturfélaga SH erlendis, eins og Coldwater í Bandaríkjunum.

FRIÐRIK PALSSON, SH

Friðrik Pálsson, forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna,

51 árs, myndar geysisterkt tvíeyki með Jóni Ingvarssyni, stjórnar-

formanni SH. Friðrik er með mikla reynslu af sölumálum í sjávar-

útvegi því áður en hann hóf störf sem forstjóri SH var hann for-

stjóri SÍF, Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda, í sjö ár. Hér

fer því maður sem verið hefur forystumaður íslendinga í sölu á

fiski til útlanda í um tuttugu ár. Friðrik er viðskiptafræðingur frá

Háskóla íslands.

Sem forstjóri SH er Friðrik einn helsti hugmyndafræðingur SH

í baráttunni við Islenskar sjávarafurðir. Frá árinu 1995 hefur sú

barátta ekki síst snúist um að halda frystihúsum undir SH. Þannig

myndaði SH til dæmis blokk með Eimskip árið 1997 til að kaupa í

ÚA á Akureyri og ná yfirhöndinni þar - en ÚA er afgerandi stærsti

eigandinn í SH. Fræg eru átökin um Vinnslustöðina í Vestmanna-

eyjum haustið 1994.

BENEDIKT SVEINSSON, IS

Barátta tveggja stærstu blokkanna í íslensku viðskiptalífi, sem

hafa á undanförnum árum einkum tekist á í sjávarútvegi, gera

Benedikt Sveinsson, forstjóra Islenskra sjávarafurða, að einum

áhrifamesta manni viðskiptalífsins. Hann er 46 ára. Eftir nám í

Fiskvinnsluskólanum árið 1976 hóf hann störf hjá Sambandinu.

Hann kom Iceland Seafood Ltd. í Bretlandi á laggirnar og var

framkvæmdastjóri þess fyrirtækis frá 1980 til 1991 er hann sneri

heim og varð framkvæmdastjóri íslenskra sjávarafurða. Líkt og

IIIDDATADAD

w iDnMi %#r«#mrm

SLÍPIVÉLAR

- þegar mest

á reynir

¦9...................

SKEIFUNNI3E-F

SlMI 581 2333 • FAX 568 0215

Friðrik Pálsson, forstjóri SH, hefur Benedikt verið í framvarða-

sveit íslendinga í sölu á fiski til útlanda í nær tvo áratugi.

íslenskar sjávarafurðir, undir forystu Benedikts, hleyptu nán-

ast sprengju inn í helg vé fisksölumála haustið 1994 og keyptu

meirihlutann í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum af Bjarna Sig-

hvatssyni og nánustu skyldmennum hans. Við það fór Vinnslu-

stöðin í viðskipti við Islenskar sjávarafurðir. í átökunum um

Vinnslustöðina kristallaðist vel hvaða fyrirtæki eru bakhjarlar IS í

baráttunni; ESSO, VIS, Samvinnusjóður íslands og Samvinnulíf-

eyrissjóðurinn komu tíl skjalanna. Þar vann þríeykið; Geir, Axel og

Benedikt, vel saman að fléttunni. Geir Magnússon er núna

stíórnarformaðurVinnslustöðvarinnar.

SIGURÐUR GISLI PALMASON, HOFI

Sigurður Gísli Pálmason, stiórnarformaður Hofs, eignarhalds-

félags Hagkaupsfjölskyldunnar, er áhrifamestí maðurinn í íslensk-

um verslunarrekstri. Hann er 43 ára og sonur Pálma heitins Jóns-

sonar, stofnanda Hagkaups. Hof kemur víða við sögu. Það á með-

al annars Hagkaup, Miklagarð (Ikea), Kjötvinnsluna í Síðumúla,

Þyrpingu (sem á fasteignir víða eins og í Kringlunni) og fjárfest-

ingarfélagið Þor - sem meðal annars á helminginn í Bónus. Hag-

kaup og Bónus standa síðan að innkaupafyrirtækinu Baugi. Þá er

Hof í vatnsútflutningi; í gegnum Þórsbrunn. Þá kemur fyrirtækið

við sögu í sölu á bensíni; í gegnum Orkuna. Þá má geta þess að

fyrirtækið er á pizza-markaðnum en það stendur að Domino's á ís-

Iandi (í gegnum fyrirtækið Futura) ásamt Skúla Þorvaldssyni og

fleirum. Domino's á íslandi er með sérleyfi fyrir Domino's á Norð-

urlöndum og hefur fyrirtæki á þess vegum þegar hafið starfsemi í

Kaupmannahöfn. Þræðir Sigurðar Gísla Pálmasonar liggja því víða

í verslunarrekstri.

Sigurður Gísli hefur haldið sig frekar til hlés í fjölmiðlum á

undanförnum árum - hann er hins vegar öflugur baksviðsmaður

og stjórnar veldi Hagkaupsfjölskyldunnar í gegnum Hof. Þess má

geta að Hof hefur einnig komið við sögu í íslenskum útvarps- og

sjónvarpsrekstri. Það átti um tima hlut í íslenska útvarpsfélaginu;

myndaði þar blokk með fleiri fyrirtækjum. Ennfremur átti það um

tíma í Samskipum en upp úr því samstarfi slitnaði og fyrirtækið

seldi hlut sinn þar.

KJARTAN GUNNARSSON, LANDSBANKA 0G VIS

Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins,

stjórnarmaður í Landsbankanum og stjórnarformaður Vátrygg-

ingafélags íslands, VIS, er að mati blaðsíns áhrifamesti maður í ís-

lenskum bankaheimi um þessar mundir. Kjartan er

46 ára, lögfræðingur að mennt. Kjartan hefur gegnt

starfi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins frá ár-

inu 1980 - eða í bráðum tuttugu ár.

Fullyrt er við Frjálsa verslun að Kjartan sé í raun

valdamesti maðurinn í Landsbankanum þótt hann

gegni ekki lengurformennsku í bankaráði bankans.

Kjartan situr hins vegar í bankaráðinu og er stjórn-

arformaður VIS. Undir bankaráðsformennsku

Kjartans keypti Landsbankinn helminginn í VÍS og

LÍFÍS á síðasta ári - eins og frægt er orðið - á 3,4

milljarða króna. Það eru stærstu einstöku viðskipti

með hlutabréf í íslensku viðskiptalífi á undanförn-

um árum!

24

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
18-19
18-19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84