FORSENDUR VIÐ VALIÐ Við gerð listans voru áhrif manna í krafti fjármagns, eignatengsla og vilj- ans til að hafa áhrif á gang mála lögð til grundvallar; þ.e. vilja beirra til að koma inn í hópa um verkefni og prfestingar á sem flestum sviðum atvinnu- lífsins. Af þessu leiðir að sterkir athafna- og áhrifamenn í sínu fagi - sem sjald- an líta út fyrir sína grein til fjárfestinga eða til að hafa áhrif - komu síður til greina. Flestir hinna tíu á listanum hafa til dæmis komiö við sögu í helstu fjár- festingum og viðskiptum með hlutabréf í atvínnulífinu á undanförnum árum - og verið þar áhrifavaldar. Til að meta áhrif þeirra mætti einnig snúa dæminu við og segja sem svo: Setji þeir sig á móti málum á þeirra áhrifasvæði þá verö- ur þeim málum ekki hrint í framkvæmd. Og þeir hafa sitt í gegn! Þræðir þessara áhrifamanna liggja víða og áhrif þeirra eru því víðtæk. At- hafnaþrá einkennir þessa menn. Þeir hafa gaman af framkvæmdum, fjárfest- ingum og alþjóðavæðingu. Það er þeim fremur skemmtun en eitthvert starf" að sjá fyrirtæki vaxa og dafna - standa í ströngu. Það eru þessi áhrif í krafti fjármagns og viljans tíl að hafa áhrif sem mestu réöu við gerð listans. Öfugt við þessa menn eru þeir sem eru í valdastöðum en vilja ekki beita sér - hafa ekki áhuga á því. Sitt er því hvað áhrifastaða og að hafa áhrif! Ljóst er að komi til sölu Landsbankans á næstu misserum - en meðal annars hefur komið fram vilji innan bankans um að reyna samruna við íslandsbanka - mun mjög mæða á Kjartani og áhrifa hans gæta í þeim efnum. Gleymi menn því ekki að Kjartan er ekki aðeins fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Landsbankanum og fram- kvæmdastjóri flokksins heldur er hann einn allra nánasti vinur Davíðs Oddssonar forsætisráðherra. ÝMSIR FLEIRIKOMU TIL GREINA Við val okkar á tíu áhrifamestu mönnum viðskiptalífsins komu ýmsir til greina. Víða eru miklir áhrifamenn í viðskiptum - og hafa viljann til að beita áhrifum sínum. En það er eins og áður; margir eru kallaðir en fáir útvaldir. Við nefnum hér nokkra sem komu til skoðunar við gerð listans: Valnr Valsson, bankastjóri íslandsbanka, er orðinn mjög áhrifamikill í bankaheiminum og kemur líklegast á eftir Kjartani sem áhrifamesti einstaklingurinn á því sviði; Árni Vilhjálms- son, prófessor og hluthafi í nokkrum af stórfyrirtækjum lands- ins, eins og Granda, Hampiðjunni, Flugleiðum og Nýherja. Mik- il virðing er borin fyrir Árna og mjög er til hans leitað og falast eftir hans ráðum. Líklegast hefur enginn haft eins mikil áhrif á kennslu í viðskiptadeildinni sl. 30 ár og Árni; Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastióri Samherja, hefur mjög látið til sín taka. Fyrir utan að vinna vel að þeim fyrirtækjum sem eru undir hatti Samherja situr hann í stjórn Samskipa og Olís; Ólaf- ¦¦¦¦¦¦¦¦¦¦¦¦¦¦¦¦¦¦¦¦1 FORSIÐUGREIN ur Ólafsson, forstjóri og einn stærsti eigandi Samskipa, vinnur mjög náið með þeim Geir Magnússyni, ESSO, Axel Gíslasyni, VÍS, og Benedikt Sveinssyni, íslenskum sjávarafurðum. Hann er jafnvel talinn einn helsti hugmyndafræðingurinn í þessu fjór- eyki; Jón Olafsson, eigandi Skífunnar og stjórnarformaður ís- lenska útvarpsfélagsins, hefur verið mjög áberandi í íslensku viðskiptalífi og áhrif hans eru mikil í fjölmiðlaheiminum sem og í heimi tónlistar og kvikmynda á íslandi; Sigurður Einarsson, eigandi ísfélags Vestmannaeyja, er áhrifamaður í gegnum eign sína í ísfélaginu og Tryggingamiðstöðinni. Einar Sveinsson, hluthafi í Sjóvá-Almennum og annar tveggja forstjóra fyrirtækis- ins, er mjög áhrifamikill og situr meðal annars í stjórn íslands- banka. Einar er bróðir Benedikts Sveinssonar, stiórnarfor- manns Sjóvá-Almennra; Ólafur B. Thors, hinn forstióri Sjóvá- Almennra, nýtur mikillar virðingar og er áhrifamikill í viðskipta- lífinu; Gunnar Felixsson, forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar, hefur verið mjög vaxandi áhrifamaður á síðustu árum; Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, er af mörgum talinn áhrifamesti maðurinn í íslenskum sjávarútvegi - en það er ekki okkar skoð- un. Ahrif hans voru mikil, þegar fiskverð var háð tilskipunum en Kristián hafði þar mikil áhrif; Sverrir Hermannsson og Björg- vin Vilmundarson, bankastjórar Landsbankans, hafa undan- farin ár verið mjög valdamiklir sem bankastjórar stærsta banka landsins - en það er mat blaðsins að völd þeirra - og áhugi á að hafa áhrif á gang mála - hafi dvínað; Kristínn Björnsson, for- stjóri Skeljungs, er atkvæðamikill og situr í stjórn Eimskips; Þorgeir Baldursson, forstjóri og einn aðaleigandi Prentsmiðj- unnar Odda, langstærstu prentsmiðju landsins, hefur látið mjög til sín taka á sviði prentunar á undanförnum árum og sömuleið- is hefur Oddi verið í nokkrum fjárfestingarhópum, eins og í Stöð 2 á sínum tíma; Ski'ili Þorvaldsson, Hótel Holti og Síld og frski, er afar duglegur athafnamaður og kemur t.d. að rekstri á Arthur Treacher's fiskveitingahúsakeðjunni i Bandarikjunum; Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambands íslands, og áhrifamaður í lífeyrissjóðakerfinu og for- maður Landsímans; Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna, stærsta lífeyrissjóðsins - en Þorgeir situr með- al annars í stjórn Flugleiða; og loks Jóhannes Jónsson í Bón- us en hann er auðvitað afar áhrifamikill á matvörumarkaðnum og hefur sýnt einstakan dugnað við rekstur fyrirtækisins - og tekið þátt í fjárfestingum á öðrum sviðum, eins og á lyfiamark- aði og í veitingahúsum; Kristján Loftsson í Hval er stjórnar- formaður Olíufélagsins og stjórnarmaður í Sjóvá-Almennum; Baldur Guðlaugsson er lögmaður margra stórfyrirtækja, t.d. Landsvirkjunar og situr m.a. í stjórn Eimskips. FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA Á NETINU WWWELKOMIN@SKIMA.IS 26