mörgum af þekktari tímaritum heims þar sem búinn er til ákveðinn leikur í kringum orðið Absolut. Búnir voru til tugir mynda þar sem kímnin var höfð að leiðarljósi. Herbragðið sló í gegn, ekki leið á löngu þar til þekktir lista- menn voru farnir að sækjast eftir því að koma með sitt persónulega fram- lag í Absolut plakataherferðinni og tmmm markaðsmal ¦¦¦¦ Absolut vodki hefur náð sterkri mark- aðsstöðu vestanhafs. Að loknum fyrirlestri Jonathans Hoare veitti ímark - félag íslensks markaðsfólks - árleg verðlaun fyrir auglýsingar ársins. Ahorfendur troð- fylltu sal 1 í Háskólabíói til að fylgjast með verðlaunaafhendingunni og komust færri að en vildu. Jonathan Hoare ávarpaði gesti á verðlaunaaf- hendingunni og lagði áherslu á að möguleikar íslendinga til markaðs- setningar á landi sínu væru miklir og ættu þeir að leggja áherslu á hrein- leika landsins og vingjarnlega fram- komu landans. Augljóst var að orð Ho- are féllu í góðan jarðveg. 59 Það er til betri leiö til þess Þegar þú hugsar um skjöl og gögn ígeymslu koma rykfallin herbergi og fjallháir pappírsstaflar alla jafnan upp í hugann ásamt löngum stundum eytt í að leita að því sem þig vantar. Gagnagevmslan er nýtt tæknivætt gagnaver sem þjónustar fyrirtæki og einstaklinga við að stjórna geymslu á mikilvægum skjölum. Öll skjöl eru geymd í sérhönnuðum kössum, sem einungis eru auðkenndir með strikamerki, í nýju geymsluhúsnæði með fullkomnu öryggiskerfi. Upplýsingakerfi okkar gerir kleift að senda þér yfirlityfir skjöl í geymslu hjá á okkur á svipstundu og þú getur pantað ákveðin skjöl sem við sendum þér á innan við 4 tímum*, sé þess óskað. Nýttu geymsluhúsnæði þiu undir eitthvað mikilvægara en að safna ryki. Pú greiðir fast gjald fyrir hvern kassa sem þú geymir í Gagnageymslunni *Hámarks afhendingartfmi á höfuðborgarsvæðinu. og greiðir því aðeins fyrir það rúmmál sem þú notar. Viljir þú hafa stjórn á þeim skjölum sem þú geymir og gera það á hagkvæman hátt, þá hringdu í Gagnageymsluna og við sendum þér nánari upplýsingar um hæl. Síminn er 587 9800. Smiðshöfða I 112 Reykjavík Sími 587 9800 Fax 587 9801 31