Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Frjįls verslun

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Frjįls verslun

						STJORNMAL

SUNDRUNG SJALFSTÆÐISFLOKKSINS

Ekki er allt sem sýnist ípólitík.

Btjórnmálaskýrendur hafa að undanförnu velt fyrir sér

sterkri stöðu Sjálfstæðisflokksins á landsvísu, á sama

tíma og hann er sem hrófatildur eitt í sveitarstjórnum

víðsvegar um land. Niðurstaða þessara skýrenda er einlægt sú

að flokkurinn eigi hina sterku stöðu sína einum manni að

þakka, Davíð Oddssyni.

Ég get fallist á þessa skýringu að hluta, en meginástæðan er

þó sú að kjósendamarkaðurinn bíður eftir sameiningu vinstri

fiokka og samtaka þannig að til verði raunverulegur valkostur

við Sjálfstæðisflokkinn — að stærð og stefnu nægilega sterkur

til að eiga fullkostar við allsráðanda flokk í þjóðfélaginu. En í

þriðja lagi er mikilsvert að hafa í huga að Sjálfstæðisflokkurinn

er ekki jafn heilsteyptur og mikilúðlegur og þetta skoðanakann-

anafylgi á landsvísu virðist í fljótu bragði gefa til kynna.

Um veikleikann að baki hins styrka yfirborðs vitna raunir

Sjálfstæðisflokksins í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna

um land allt — á sama tíma og vinstri menn

ná nær hvarvetna saman í sveitarstíórnum.

Við skulum fara í hrað- og hringferð um land-

ið:

1) I Mosfellsbæ hefur öllum frambjóðend-

um D-listans frá því í síðustu kosningum nán-

ast verið sópað í burtu. 2) Á Isafirði klofnaði

meirihluti Sjálfstæðismanna og ekki lát á

þeirri klofningshistoríu. 3) Deilur meðal Sjálf-

stæðismanna í Bolungarvík. 4) I því gamla

íhaldsvígi Ólafsfirði hefur flokkurinn verið

tvíklofinn um langa hríð og nú eru mestar lík-

ur á því að D-listinn verði ekki boðinn fram

þar í vor. 5) Á Akureyri: Oddvita flokksins til

margra ára sparkað niður í 4.sæti og fenginn

pólitískur farandverktaki úr öðru plássi til að

leiða D-listann. 6) I Hveragerði ganga klögu-

málin á víxl, klofningur í félaginu og harðvít-

ugar deilur árum saman, a.m.k. tvö framboð

flokksins verða þar í vor. 7) I Garðinum er

klofningur og óánægja og þar verða tveir list-

ar Sjálfstæðismanna boðnir fram í vor í stað

eins sem fór með öll völd á liðnu kjörtímabili.

8) Hafnarfjörður: Sjálfstæðisflokkurinn í

tvennu lagi, hvor sínum megin meirihluta

bæjarstjórnar, tvö framboð flokksins í vor. 9)

Á Seltjarnarnesi þar sem Jón Hákon Magn-

ússon hefur verið leiðandi sjálfstæðismaður í

bæjarfélaginu var honum sparkað niður eftir

öllum lista, að mati margra stuðningsmanna

hans með hálfgerðu samsæri. 10) Alvarleg-

astar eru þó deilurnar í Reykjavík, þar sem ekki rikir eining um

leiðtoga listans og aðrir borgarfulltrúar hafa gert tilkall til for-

ystu. Auk þess virðast margir frambjóðenda ekki njóta trausts

flokksins. Þannig hafði kjörnefnd flokksins gert tillögur um að

færa frambjóðendur niður um sætí; þeim Guðlaugi Þór Þórðar-

syni, Kjartani Magnússyni, Helgu Jóhannsdóttur, Grafarvogs-

manninum Snorra Hjaltasyni átti öllum að hnika til og var gert

í sumum tilvikum. D-listaframboðið í Reykjavík er holgrafið af

vantrú og innri óánægju. Þetta hefur leitt til örvæntingar sem er

öllum framboðum hættuleg.

Þetta voru sveitastjórnarmálin. Kíkjum aðeins á fiokkinn á

landsvísu og sjálfsmynd hans um þessar mundir:

Það er verið að búa til nýja söguskoðun frá valdakjarnanum.

Hin nýja söguskoðun kom glöggt fram í afmælisdikti Hannesar

Hólmsteins Gissurarsonar í Mogganum fyrir nokkru. Allir vita

að Hannes Hólmsteinn er hirðsagnfræðingur foringjans og í

mærðarrullu sinni lýstí hann því hvernig

Davíð Oddsson væri arftaki frelsisbarátt-

unnar í Sjálfstæðisflokknum. Það hefur

vakið mikla athygli hvernig hann form-

gerði þessa nýju söguskoðun. Svo var að

skilja að Hannes sálugi Hafstein hefði fært

okkur óvita búandkörlum frelsið, að hon-

um gengnum hafi dofnað á frelsiskyndlin-

um þartíl Davíð Oddsson tók við honum.

Síðan skín frelsisljósið skært. Tæpt var á

því að nokkrir fleiri hefðu komið við frels-

issögu og nöfn formannanna Jóns Þorláks-

sonar, Ólafs Thors og Bjarna Benedikts-

sonar nefnd í því sambandi, þeir stóðu í

„vörn" og gerðu „tilraunir" í frelsisskyni.

Það var hins vegar þögnin um hina sem

vakti mesta athygli; þeir sem nú eiga að

gleymast í sögu flokksins þ.e. Jóhann Haf-

stein, Þorsteinn Pálsson og Geir Hall-

grímsson. Þetta hefur vakið mikla reiði

innan flokksins. Og framsetningin þykir

mörgum til marks um hvar á stalli Davíð

Oddsson stendur, stærri og meiri en allir í

námunda við hann, - og gömlu velgerðar-

mennirnir eru gleymdir. Davíðs

Oddssonar-klíkan telur sig ekki þurfa á

stuðningi eins eða neins, - og alls ekki

hinna gömlu vina Geirs Hallgrímsson (les)

Morgunblaðsins. Ætli einhverjir Morgun-

blaðshanar þurfi nú ekki að reisa kambinn,

góðan daginn? 33

SJALFSTÆÐISFLOKKUfM

„Stjórnmálaskýrendur hafa að undanförnu velt fyrir sér sterkri stöðu Sjálfstæðisflokksins á landsvísu, á sama tíma og hann er sem

hrófatildur eitt í sveitarstjórnum víðsvegar um lantl."

32

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
18-19
18-19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84