Kristín Stefánsdóttír, heildsali, förðunarmeistari og kennari, er dæmigerð nútímakona sem vílar ekkert fyrir sér 14- 16 tíma vinnudag. FV-myndir: Geir Ólafsson. KRISTININO NAME Hún er oftast kennd við No Name en það heita snyrtivörurnar sem hún flytur inn. Auk þess rekur hún fórðunarstúdíó, fórðunarskóla og kennir snyrtifrði. inn Qristín Stefánsdóttir er fædd 4. júní 1964 og ólst upp í Vestur- bænum í Reykjavík. Hún á sama afmælisdag og finnski marskálkurinn Mannerheim og dr. Ruth Westheimer sem er þekktur amerískur kynlífsráð- gjafi. Þessi dagur er ennfremur þjóðhá- tiðardagur smáríkisins Tonga og dánar- dægur Khomeinis, erkiklerks í íran. Kristín er fædd í merki Tvíburans. Samkvæmt þeim fornu fræðum ætti hún að vera kraftmikil, ^^__^_ eirðarlaus, forvitin og fé- lagslynd. Hún getur gert margt í einu og fellur það vel en nær þá fyrst ár- TEXTI Páll Ásgeir Ásgeirsson angri þegar hún beinir orku sinni í einn farveg. ALIN UPP í MÚLAKAFFI Foreldrar Kristínar voru Stefán Ólafsson, veitingamaður í Múlakaffi, sem nú er látinn og Jóhanna R Jóhann- esdóttir, kona hans. Stefán var ættaður vestan úr Dýrafirði, en Jóhanna er fædd í Reykjavík. Stefán rak og byggði upp veitinga- ^^^^^^ staði eins og Vógakaffi og síðar Múlakaffi og sá um mötuneyti hér og þar í bænum á sínum ferli meðal annars í ísbirnin- um. Hann og Jóhanna eignuðust þrjú börn. Elstur er Jóhannes veitingamaður, sem rekur Múlakaffi í dag, þá kemur Ingvar sem lærði kvikmyndagerð og kvikmyndatöku og starfar um þessar mundir með Hrafni Gunnlaugssyni að gerð Myrkrahöfðingjans og snyrtifræð- ingurinn Kristín er svo yngst systkin- anna. Þeir eru til sem halda því fram að persónuleiki manna geti mótast af því hvar í systkinahópnum þeir eru stað- settir. Þeir myndu segja að vegna þess að Kristín er yngst þá hafi hún alist upp við mest eftirlæti af systkinunum og hafi verið barnalegust lengst af þeim. Þeir 38