NÆRMYND myndu segja að eina systirin í hópi bræðra væri oft ákveðnari og stefnufast- ari en stúlkur sem hefðu alist upp með öðrum systrum. LÆRÐI í LONDON Kristín hafði snemma áhuga á að læra snyrtifræði og ætlaði fyrst í Fjöl- brautaskólann við Ármúla en fór síðan á samning hjá Maríu Dalberg sem rak snyrtistofu í Bankastræti ásamt manni sínum, Hallgrími Dalberg. Þar lærði Kristín sitt fag og fór síðan til framhalds- náms í London og lærði þar við skóla sem hét Complexion International London School of Makeup. Kristín lauk námi 1983 sem förðunar- og snyrti- meistari og kom þá heim. Hún setti fljót- lega upp sína eigin snyrtistofu, sem var kennd við No Name snyrtivörur, og rak hana næstu sex árin. Næsta skref var að selja snyrtistof- una og setja á stofn heildverslunina Rek- ís sem einbeitti sér að innflutningi á snyrtivörum. Kristín sneri sér í auknum mæli að markaðsmálum og kom meðal annars á þeim sið að á hverju ári er út- nefnd sérstök No Name stúlka sem er nokkurs konar andlit snyrtivaranna hér- lendis og fulltrúi fyrirtækisins. Þessi út- nefning hefur oft vakið athygli þegar frægar fegurðardísir eins og Linda Pétursdóttir, Sigrún Hjálmtýsdóttir eða Edda Björg- vinsdóttir hafa borið titilinn. Nú- verandi No Name stúlka er Val- gerður Matthíasdóttir, arkitekt og sjónvarpsstjarna. HJÓNABANDIÐ Kristín giftist 1989 Halldóri Kristjánssyni, heildsala og at- hafnamanni. Hann er stundum talin til Kók" fjölskyldunnar en móðir hans, Iðunn Björns- dóttir, er systir Péturs Björns- sonar í Vífilfelli. Þau hjónin voru töluvert í sviðsljósinu um tíma, sérstaklega vegna kaupa sinna á framleiðslu- deild ÁTVR og framleiðslu og útflutnings á Eldur&ís vodka. Þau ráku saman heildversl- unina Rek-ís og fyrirtæki eins og Eld- haka kom við sögu þeirra um tíma. Hall- dór og Kristín voru í hringiðu sam- kvæmislífsins um tíma og töldust til ís- lenska þotuliðsins ef það er þá til í ís- lensku samfélagi. Þau slitu hjónabandi VINNUSAMUR KENNARI Hún á afar auðvelt meö að umgangast fólk og mynda tengsl við það, eins og er ákaflega mikilvægt í starfi eins og þessu. Kristín er fljóthuga og stundum gætir óþolinmæði í fari hennar en hún er samt góður kennari sem á auðvelt með að miðla þekkingu sinni til fólks. sínu 1994 og síðan hefur Kristín verið ein á ferð. Hún býr í dag á Leifsgötu 4 þar sem hún leigir íbúð. Skilnaður er hlutskipti margra og oft verða hatrömm átök í kjölfarið þar sem tekist er á um eigur, börn og annað sem getur komið til skipta. Það var, að sögn, ekki í tilviki Kristínar og Halldórs held- ur skildu leiðir þeirra í vinsemd og sam- band þeirra er án sárinda í dag. Þau höfðu verið í sambandi um árabil áður en þau giftust og voru því ágætlega und- irbúin þótt endingin væri ekki meiri en raun ber vitni. VINNUÞJARKURINN KRISTÍN Kristín vinnur gríðarlega mikið eins og margir sjálfstæðir atvinnurekendur. Dæmigerður vinnudagur hjá henni byrj- ar á því að hún fer í Baðhús Lindu P. og stundar þar Kristín rekur snyrtívörurogþar' «2%f tengs,um við leikfimi og líkamsrækt en það gerir hún að jafnaði þrisvar í viku. Þaðan liggur leiðin svo á Hverfisgötuna þar sem bækistöðvar hennar eru og eftir hefðbundin vinnudag í heildverslun og snyrtistúdíói tekur við kennsla í förðun- arskólanum á kvöldin sem stendur fram undir miðnætti. Starf hennar er fjöl- breytt því fyrir utan rekstur heildversl- unarinnar sinnir hún mikið ráðgjöf, fyr- irlestrum og þess háttar verkefnum fyr- ir félög, einstaklinga og sérstök tilefni. Það er oft orðið áliðið þegar Kristín stefnir heim og lítið um tómstundir til annars en að hvíla sig og horfa á sjón- varp. Þó hefur Kristín gefið sér tíma til þess undanfarin tvö ár að vera þátttak- andi í verkefni á vegum Reykjavíkur- borgar sem hefur hlotið nafnið Brautar- gengi og er ætlað konum í atvinnulífinu. Markmiðið er að hjálpa þátttakendum til þess að koma undir sig fótunum í at- vinnulífinu veita þeim sjálfstraust tíl að hrinda hugmyndum sínum í fram- kvæmd og kenna þeim undirstöðuatrið- in í því að koma vöru og vinnu á markað. Fyrirkomulagið í Brautargengi hefur verið með þeim hætti að fyrra árið sátu þátttakendur á skólabekk alla mánu- daga en seinna árið einn mánudag í mánuði. Þær sextíu konur, sem verið hafa þátttakendur í þessum fyrsta áfanga verkefnisins, hafa ákveðið að stofna með sér félag og halda áfram tengslunum eftir að náminu sleppir. Þarna virðist því vera að myndast nokk- urs konar grasrótarhreyfing kvenna í at- vinnulífinu. Þannig er vinnu- dagur Kristínar alls ekki alltaf liðinn þótt hún loki dyrunum á Hverfisgötunni og haldi heim á leið. Iðu- lega fer hún heim með stóran bunka af pappírum undir hend- inni sem hún situr yfir eitthvað fram yfir mið- nætti. UÓSMYNDUN OGTÓMSTUNDIR Kristín hefur því nær engan tíma aflögu til þess að iðka hefðbundin áhugamál í tómstundum og er ekki félagi í neinum samtökum eða klúbbum. Þegar hvíldarstundir gefast horfir hún á myndbönd og eyðir tíma með vinkonum sínum. Hún hefur mikið samband við bræður sína og móður sem enn vinnur hálfan daginn í Múlakaffi. ^o Name 39