Starfsmenn Staðlaráðs sem er til húsa hjá Iðntæknistofnun á Keldnaholti. ttöiínvaldardóttir, Guðrun K°&£" ctaðlaráðs framkvæmdastjonStaöiar íslands. Begja má að stöðlun snúist fyrst og fremst um að tryggja samhæfingu og samræmingu ólíkra athafna og efnis- þátta. í reynd hafa staðlar verið til frá upphafi mannlegs samfélags. Nefna má mál og vog, myntkerfi og tímatal sem dæmi um slíkt. Þótt stöðlun sé því ekki upprunnin í tæknivæddum iðnaðarsamfélögum nútímans þá hefur þörfin fyrir samhæfingu og samræmingu aukist jafnt og þétt samhliða aukinni fjöldaframleiðslu, sér- hæfingu og upplýsingamiðlun og þeim auknu samskiptum sem nú eru milli þjóða, bæði á sviði menningar og viðskipta. HAGRÆÐI ¦ GAGNSEMI ¦ ARÐSEMI Á hverjum einasta degi njótum við góðs af stöólun í starfi og leik, án þess að verða beinlínis vör við það. Ýmsir byggingarhlutar eru staðlaðir og íhlutir í bíla, flugvélar og skip. Rafmagnstæki eru að einhverju leyti stöðluð, pappírsvörur, greiðslukort, fjarskiptatæki, rann- sóknaraðferðir og prófanir á matvælum, kröfur um öryggi, stjórnunaraðferðir og svona mætti lengi telja. Vinna við stöðlun miðar að samræmingu, sparnaði, öryggi og snurðulausum samskiptum.Staðlaráð íslands er sá aðili sem fer með staðlamál hér á landi. Ráðið, sem starfar samkvæmt lögum um staðla, er sjálfstætt ráð hagsmuna- aðila og á aðild að evrópskum og alþjóðlegum staðlasam- tökum. Hjá Staðlaráði vinna 10-11 manns en viðamesta verkefni ráðsins snýr að vinnu við Evrópustaðla. Aðild íslands að evrópsku staðlasamtökunum felur í sér að ísland verður að taka upp alla samevrópska staðla og gera þá að íslenskum stöðlum, en sömu staðlar gilda á LEITIÐ TIL STAÐLARAÐS! Vegna þátttöku Islands í evrópsku samstarfi, verum vid ab taka upp samevrópska stabla. Mikilvægt er að vib stöndum öll saman á verbi um ab þeir henti íslenskum abstæbum. AUGLYSINGAKYNNING 48