Pétur og Hólmsteinn eiga fyrirtækið Marex með Sigurði Haraldssyni. Það sel- ur s;il(fisk og saltfisksafurðir. ar aðalviðskipti eru við togara og tog- skip en við seljum einnig veiðarfæri tíl dragnóta, nóta, línu og netaveiða." Það er mjög mismunandi eftír fyrir- tækjum hvort einstakir skipstjórar eða útgerðarstjórar stýra viðskiptum með veiðarfæri. Almennt má segja að útboð fari í vöxt í þessum viðskiptum. Viðskipta- tengsl, sem byggja á hefð eða kunn- ingskap, eru á undanhaldi þótt þau séu ekki alveg horfin." SELT FYRIR RÚMA 50 MILUARÐA Fjárfestingar Péturs og uppbygging ísfells hafa vakið nokkra athygli og liggur beint við að spyrja hvort hann hafi hagnast mikið á rekstri ísbergs? Uppbyggingin hér heima hefur nær eingöngu hvílt á herðum Hólm- steins, bróður míns, og Páls Gestsson- ar og mér dettur ekki í hug að stæra mig af því. Hvað varðar hagnað af rekstri Isbergs þá hefur það á þessum 12 árum selt afurðir fyrir rúma 50 milljarða. Það væri eitthvað að ef ekki væri einhver hagnaður af slíkri veltu. Það hefur gengið mjög vel." Pétur hefur þannig þá sérstöðu að starfa að viðskiptum í þremur löndum og reyndar fjórum því ísberg Ltd. rek- ur fyrirtækið PF Snodd í Færeyjum. Það kaupir fisk og selur beitu og veið- arfæri. Hefur hann séð miklar breyt- ingar á íslensku viðskiptalífi á þessum tima? Viðskiptalífið hér tekur stöðugt meira mið af því sem tíðkast í okkar nágranna- og viðskipta- löndum. Hér hafa orðið gíf- urlegar breyt- ingar, sér- staklega með tilkomu hluta- bréfamarkaðar og mikils sam runa fyrirtækja. Vinnubrögð sýnast vera orðin agaðri mótaðri en áður var. Menn verða meira en áður var að treysta á sig og sína getu fremur en að treysta því að hið opinbera hlaupi undir bagga. Það er liðin tíð og í raun er orðinn lítíll munur á viðskiptalífinu Húsið við Starhagann var áður í eigu Sigftisar sem oft er kennd- ur við Heklu. SJAVARUTVEGUR hér og í Evrópu. Mér finnst orðið eng- inn grundvallarmunur á því að reka fyrirtæki hér eða í Bretlandi." ÁMÓTIAÐILDAÐESB Pétur er, þrátt fyrir kynni sín af er- lendum þjóðum, mótfallinn því að ís- lendingar sæki um aðild að Evrópu- bandalaginu. Eins og er njótum við ágætra kjara í Evrópu vegna aðildar okkar að Evr- ópska efnahagssvæðinu. Við höfum mikið tollafrelsi fyrir megnið af okkar útflutningi og ég tel að við njótum flestra kostanna án þess að þurfa að þola gallana af slíku samstarfi. Meðan svo er höfum við ekki eftír neinu að slægjast með aðild. Nýleg skoðana- könnun meðal Svía sýnir að stór hlutí þeirra er mótfallinn aðild að fenginni reynslu. Innan bresks sjávarútvegs er yfir- gnæfandi meirihluti fyrir því að ganga úr ESB." ÆTTUM AÐ HLEYPA ÚTLENDINGUMINN Pétur hefur oft gagnrýnt þær höml- ur sem eru á fjárfestingum útlendinga í íslenskum fiskiðnaði og útgerð en meðan hann var búsettur í Bretlandi mátti hann ekki eiga aðild að íslenskum sjávarútvegi. Eru skoðanir hans óbreyttar? Þær eru það. Mér finnst enn- þá rangt að heimila ekki fjárfestingu þeirra í einni grein atvinnu- lífsins. Mér finnst þetta mjög úr takt við frelsi á öðrum sviðum og úr takt við það frelsi sem við viljum njóta annars staðar. Eg er laus undan þessum hömlum þar sem ég er orðinn ís- lendingur á ný. Verkefnin fram undan eru að hlúa að því sem fyrir er og stýra því inn i framtiðina." 53 SKOLINN ER BETRIUTI Frí á öðrum árstímum er hinsvegar með öðrum hætti og lengra þannig að fjöldi skóladaga er svipaður þegar allt kemur til alls. Daglegur skólatími er frá 09:00 á morgnana til 15:30. Mér hefur virst námsefnið vera áþekkt en aginn í bresku skólakerfi er meiri." 52