Sennilega munu fleiri íslendingar leggja leið sína til Lundúna í ár en nokkru sinni fyrr. FERÐALOG að velja um 16 leiki þessara Lundúnaliða innan borgarmarkanna. Þeir, sem vilja bregða sér á úrvalsdeildarleiki annarra liða i Englandi, eiga t.d. völ á hagstæðum kjörum á bílaleigubílum. Sumir eru e.tv. ragir við að keyra í vinstri umferð eða öf- ugu megin" eins og við gjarnan segjum, en þeir, sem slá til og reyna að keyra, eru fljót- ir að venjast því og breskir bílstjórar eru yf- irleitt mjög tillitssamir. ENSKSVEITARÓMANTÍK Tilboð Flugleiða á Flug og bíl eru óviða hagstæðari í Evrópu en einmitt í Lund- únapakkanum og auðvelt að gera saman- burð í því dæmi í nýútkomnum bæklingi Flugleiða, Út í heim - Sumarfjör '98". I því sambandi má geta þess að Flugleiðir bjóða Lundúnaflug Flugleida: NIU FERÐIR A VI L LONDON Dslendingar hafa, samkvæmt nýjustu fréttum, aldrei verið ferðaþyrstari en í ár og ferðaskrifstofur státa flestar af meira en helmingsaukningu bókana, miðað við síðasta ár. Lundúnir hafa alla tíð verið meðal vinsælustu áfangastaða land- ans og sennilega munu fleiri íslendingar fara þangað í ár en nokkru sinni fyrr. Enda er líklega hvergi betra að vera ef þú vilt upplifa sem mest og skemmta þér sem best á einum og sama staðnum á fáum dögum. Fáar borgir bjóða upp á eins fjöl- breytt menningarlif. Flugleiðir bjóða upp á daglegt morgunflug til Lundúna og því til viðbót- ar er flogið síðdegisflug til borgarinnar á fimmtudög- um og sunnudög- um. I London bjóða Flugleiðir viðskiptavin- um sínum að velja um fjölda góðra hótela í mismunandi verð- flokkum og sem staðsett eru víða um borg- ina. Meðal þeirra hótela, sem Flugleiðir hafa gert samninga við nýverið, má t.d. 80 Enginn ferðamaður sækir London heim án þess að skoða Piccadillu Circus. nefna Strand Palace Hotel sem er til- valið fyrir þá að dvelja á sem vilja vera ná- lægt leikhúsunum og leikhúslífinu. Strand Palace Hotel er staðsett stutt frá Covent Garden sem alltaf er gaman að heimsækja. LONDON MARAÞON OG ENSKIBOLTINN Meðal helstu viðburða á hverju ári í borginni er London maraþonið sem að þessu sinni verður haldið þann 26. apríl. London maraþonið hefur um árabil verið fjölmennasta maraþonhlaup heims með hátt í 40.000 þátttakendur. Heyrst hefur að eitthvað á annan tug íslendinga muni taka þátt í hlaupinu í ár. Fjölmargir þeirra íslendinga, sem sækja, Lond- on heim hafa mik- inn áhuga á að kom- ast á íþróttaviðburði, leiki Lundúnaliðanna í knattspyrnu. I London eru heimavellir úrvals- deildarliðanna Arsenal, Tottenham, Chelsea, Crystal Palace, West Ham og Wimbledon. I aprílmánuði einum, þegar lokasprettur- inn er að hefjast i úrvalsdeildinni, er hægt AUGLYSINGAKYNNING 7.000 króna afslátt á Flug og bíl fargjöldum ef farið er á tímabilinu 1. apríl -10. júní eða 1.- 30. sept- ember. I nágrenni Lundúna er margt að skoða, meðal annars Legoland garðurinn frægi sem opnaði fyrir nokkrum árum í ná- grenni Windsor kastala, eða Chessington World of Adventure í nágrenni Lundúna sem er einn af bestu tívolí- og skemmti- görðum á Bretlandseyjum. Sumarleyfisstaðirnir Brighton, Bour- nemouth eða Torqauy á suðurströndinni eru í aðeins nokkurra klukkustunda öku- færi frá Lundúnum. Þeir, sem vilja fara örlítið lengra og prófa eitthvað nýtt og spennandi, ættu að bregða sér með bílferju yfir tíl eyjarinnar Jersey sem er skammt undan strönd Frakklands en telst þó bresk eyja. Þar er að finna gullnar baðstrendur, veðursæld og mikla náttúrufegurð, snotur smáþorp með tollfrjálsum verslunum, golfvelli, dýra- garð, tignarlega kastala, góða veitingastaði og ótalmargt fleira; enska sveitarómantík eins og hún gerist best Nánari upplýsing- ar um gististaði og annað á Jersey er að finna í sumarbæklingi Flugleiða og hjá sölufólki félagsins. 33