VIÐTAL Qessi niðurstaða réttarins hefur vakið talsverða athygli vegna þess að í Héraðsdómi var talið að bannið við áfengisauglýsingum bryti í bága við lög um tjáninga- frelsi og gengi þvert gegn ákvæðum stjórn- arskrár. Taldi Héraðsdómur rétt að láta ákærða njóta vafans og sýknaði hann af öllum ákæruatriðum. Mur þessi málarekstur á sér talsverða forsögu á markaðnum þar sem innlendir bjórframleiðendur og heildsalar sem flytja inn y bjór höfðu alllengi stigið línudans við mörkin sem liggja milli þess sem má og ekki má í þessum efnum. Óhætt mun að segja að dulbúnar bjórauglýs- ingar hafi vervið orðnar svo algeng- ar að á endanum hlaut löggjafinn að þurfa að kæra ein- hvern. Þegar héraðsdómur felldi sinn dóm fylgdi mikil skriða opinskárra bjórauglýsinga í kjölfarið. Ef marka má yfirlýsingar lögreglu- stjóra verða allir sem auglýstu bjór kærðir á sömu forsendum og Ölgerð Egils Skallagrímssonar og Jón Snorri. Enyin stefna til í áfengismálum Frjáis versiun hitti Jón Snorra að máli og spurði hann hvort hann væri sáttur við dóminn? Ég er það í rauninni ekki. Hæstiréttur vitnar til ályktunar Alþingis frá mars 1991 þar sem sett er fram áætlun í 32 liðum um heilbrigðismál. 9. liður fjallar um að draga þurfi úr neyslu áfengis. Hæstiréttur kýs að nýta sér þetta sem stefnu ríkis- stiórnarinnar í áfengismálum. Það er engin stefna til í áfengis- málum. Með því að visa til undanþágu laga um tjáningarfrelsi þar sem það varði heilsu manna og tengja þetta tvennt við órökstuddar fullyrðingar um að auglýsingar hvetii til áfengis- kaupa komast þeir að sinni niðurstöðu," sagði Jón Snorri. Þessi dómur Hæstaréttar er ekki í takt við tímann. í dag eru erlendar áfengisauglýsingar í sjónvarpsstöðvum inni á nánast hverju heimili, bæði beinar auglýsingar og óbeinar. Er- lendir bjór- og áfengisframleiðendur eru orðnir stærstu kostendur margra íþróttaviðburða sem íslensku sjónvarps- stöðvarnar sýna. Með þessu er staðreynd að íslenskirframleið- Dómur Hæstaréttar Jón Snorri Snorrason, framkvæmdastjóri Ölgeröar Egils Skallagrímssonar, gerst brotlegur við lög sem banna áfengisauglýsingar og dmdi Reglur Evrópuþingsins um áfengisauglýsingar; 15. grein: Sjónvarpsauglýsingar og fjarkaupainnskot um áfengi skulu hlíta eftirfarandi viðmiðunarreglum: a) Þau mega ekki beinast sérstaklega að ólögráða börnum eða ungmennum né sérstaklega sýna þau drekka áfenga drykki. b) Þau mega ekki tengja neyslu áfengis aukinni líkamlegri færni né heldur akstri. c) Þau mega ekki skapa þá ímynd að neysla áfengis eigi þátt í félagslegri eða kynferðislegri velgengni. d) Þau mega ekki ekki halda því fram að áfengi hafi lækninga- mátt eða að það sé órvandi, sefjandi eða leið til að leysa per- sónuleg vandamál. e) Þau mega ekki hvetja til óhóflegrar neyslu áfengis eða sýna bindindi eða hófdrykkju í neikvæðu ljósi. f) Þau mega ekki leggja áherslu á hátt áfengismagn drykkj- anna sem jákvæðan eiginleika. ^V-*. v_ 28