Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1999, Blaðsíða 26

Frjáls verslun - 01.09.1999, Blaðsíða 26
Gunnar Örn Kristjánsson, 44 ára forstjóri SIF, stærsta jyrirtœkis á Islandi, er í nærmynd að þessu sinni. Gunnar var þekktur knattsþyrnumað- ur á árum áður rneð Víkingi. Hann var á sínum tíma fyrirliði Faxaflóaúrvalsins og unglingalandsliðsins í knattsþyrnu. FV-mynd: Geir Ólafsson. Af grónum skipstjóraættum • • / Gunar Orn Kristjánsson, 44 ára, er ekki adeins forstjóri SIF heldur einnig stærsta jyrirtækis á Islandi. Hann er sagbur eitilharóur keppnismaóur meb stáltaugar. ið sameiningu SÍF og ÍS undir merkjum SIF varð Gunnar Örn Kristjánsson forstjóri stærsta fyrirtækis á Islandi - og hugsanlega stærsta fyrirtækis í íslenskri atvinnu- sögu frá upphafi. Hann hefur verið for- stjóri SIF frá árinu 1993 og margfaldað verðmæti þess frá því hann tók við stjórnvölnum. Hann er prentarasonur af grónum skipstjóraættum. Gunnar Örn hóf raunar störf íyrir SIF sem endur- skoðandi fyrirtækisins. SIF var stofnað árið 1932. Það var fýrst einokunarfyrir- tæki sem hafði einkarétt á útflutningi og sölu á saltfiski frá Islandi en eftir að það losnaði úr viðjum þeirrar einokunar á síðasta áratug hefur það fengið byr und- ir báða vængi. SIF hefur flárfest í öðrum skyldum fyrirtækjum í sinni grein á al- 26 þjóðavettvangi og hefur í dag ítök í mörg- um löndum og er orðið stærsta fyrirtæki heims í sölu á saltfiski. Búist er við að sameiginleg velta SIF og IS verði um 53 milljarðar á þessu ári. Starfsstöðvar hins sameinaða fyrirtækis verða í 15 löndum og starfsmenn um 1.700 talsins, þar af um 1.570 erlendis. Uppruninn: Gunnar Örn Kristjánsson er fæddur 18. janúar 1955 í Reykjavík. Hann ólst upp fyrstu sjö ár ævinnar á Teigunum en flutti þaðan með foreldrum sínum inn í Smáíbúðahverfi og þar óx hann úr grasi við boltaspark og leiki und- ir handarjaðri íþróttafélagsins Víkings. TEXTI: Páll Ásgeir Ásgeirsson Foreldramir: Kristján Karl Pálsson prent- ari og Kristfn Jóna Guðlaugsdóttir sjúkraliði eru foreldrar Gunnars. Gunnar er elstur þriggja bræðra en næstur honum kemur Hafþór, f. 1956, og síðast Steinar, f. 1960. Þótt fáum sögum fari af sjómennsku Gunn- ars Arnar þá á hann ættir að rekja til frægra aflamanna. Afi hans í föðurætt var Páll Franz Þorláksson, skipstjóri í Reykjavík, ættaður vestan úr Djúpi og móðurafi hans var Guð- laugur Júlíus Þorsteinsson sem einnig stýrði skipum mestalla sína starfsævi. Menntavegurinn: Gunnar Örn varð stúdent frá Verslunarskólanum árið 1976 og viðskiptafræðingur af endurskoðunar- sviði Háskóla Islands 1981. Hann fékk löggildingu sem endurskoðandi 4. febrú- ar 1984.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.