RITSTJORNARGREIN Kaup banka í fyrirtækjum Nýlega flutti símafyrirtækið Tal öll bankavið- skipti sín frá Landsbankanum til íslands- banka-FBA vegna þess að Landsbankínn gerði yfirgripsmikinn samning um fjármögn- un við íslandssíma og keypti í leiðinni hlut í því fyrirtæki. Féð notar íslandssími meðal annars til þess að byggja upp farsímakerfi sitt og keppa við Tal. Það þarf því engan að undra að Tal skuli segja upp viðskiptum sínum við Landsbankann vegna kaupa hans í íslands- síma; það er auðvelt að túlka þau kaup sem trúnaðarbrest í viðskiptum þeirra. Hvernig geta Talsmenn lagt fram áætlanir sínar fyrir bankann á sama tíma og hann á mikilla hags- muna að gæta í íslandssíma? Lái Talsmönn- um það hver sem vill! Eflaust hefur ákvörðun Tals ekki verið mjög sársaukafull því annar helsti eigandi Tals er einn af stærstu hluthöfum í Íslandsbanka-FBA og ef til vill hefur það legið í loftinu að Tal flytti sig um set. Engu að síður var það rétt mat hjá Talsmönnum að um of mikla hagsmunaárekstra væri að ræða. HagsmunaárekStl'ar Samskipti Tals og Landsbankans sýna í hnotskurn þann vanda sem fýlgir stórauknum kaupum banka í fyrirtækjum og þá hagsmunaárekstra sem geta orðið. Dæmin eru mörg og þau eiga við um alla bankana. Á undanförnum árum hafa bankarnir átt sinn þátt í því að breyta lokuðum fjöl- skyldufyrirtækjum í almenningshlutafélög með því að fjárfesta í þeim og koma þeim á markað. Fyrir þá vinnu hafa bankarnir fengið verulegar tekjur. Sjálfsagt er hægt að verja það að sami bankinn sé viðskiptabanki tveggja fyrirtækja sem keppa á mark- aði, en þegar hann fer að kaupa gildandi hlut í öðru þeirra fer gamanið að kárna - og svæðið að grána. Hún er gullsígildi gamla reglan um að erfitt sé að þjóna tveimur herrum. Þannig hafa auglýsingastofur þá reglu að vinna ekki fyrir tvo keppi- nauta á sama tí'ma. Benda má á fleiri nýleg dæmi um hagsmuna- árekstra vegna kaupa á fyrirtækjum. Þannig mun forstjóri Vífilfells, sem núna er að yfirtaka félagið ásamt fleirum, hafa fundað með viðskiptabanka Vífil- fells, Landsbankanum, og viðrað áætlanir sínar um að sameina Vífilfell og Sól-Víking en þar er hann stjórnarformaður. Þrátt fyrir það kom það síðar á daginn að Landsbankinn ásamt EFA, Eignarhaldsfélaginu Alþýðubankanum, kepptí við hann og Kaupþing um kaupin á meirihlutanum í Sól-Víkingi þótt þar hafi fyrir- fram verið við ramman reip að draga. Þegar fyrirtæki kaupa í bönkum Þótt hags- munaárekstrar geti augljóslega orðið við kaup banka í fyrirtækjum virkar þetta líka í hina áttina; það geta orðið árekstrar þegar öfl- ugir fjárfestar og ráðandi fyrirtæki kaupa í bönkum - og þekktír athafnamenn setjast í stjórnir þeirra. Þannig settist forstjóri Baugs, sem sjálfur er stór hluthafi í íslandsbanka- FBA, í stjórn bankans. Því háttar hins vegar þannig til að ís- landsbanki-FBA er viðskiptabanki Kaupáss sem rekur Nóa- tún, KA og 11-11 verslanirnar og er helsti keppinautur Baugs á smásölumarkaðinum. Hvað ef Kaupás ætlaði að færa út kví- arnir á næstunni og leggja áætlanir sínar fyrir bankann? Sömuleiðis má minna á að Íslandsbanki-FBA keypti Ölgerð- ina Egil Skallagrímsson á dögunum. Rimma innlendra mat- vælaframleiðenda við Baug er löngu þekkt og er rifjuð upp hér vegna þess að það er yfirlýst markmið nýrra eigenda Öl- gerðarinnar að sameina hana öðrum fyrirtækjum á næstu misserum, t.d. matvælafyrirtækjum, og munu þær áætlanir að sjálfsögðu fara fyrir stjórn Islandsbanka-FBA. Að lljóna tveimur hemim Kaup banka í fyrirtækjum og þátt- taka við að setja þau á markað hefur leyst margan vandann en að sama skapi aukið líkurnar á hagsmunaárekstrum. Það sama á við þegar öflug fyrirtæki kaupa í bönkum. Það er erfitt að þjóna tveimur herrum! Jón G. Hauksson Stofiiuð 1939 Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál - 62. ár Sjöfn Guðrún Helga igurgeirsdóttir Sigurðardáttir auglýsingast/óri blaðamaður RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson AUGLÝSEVGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttír BLAÐAMAÐUR: Guðrún Helga Sigurðardóttir UÓSMYNDARI: Geir Ólafsson UMBROT: Hallgrímur Egilsson ÚTGEFANDI: Talnakönnun hf. RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA: Borgartúni 23,105 Reykjavík, sími: 561 7575, fax: 561 8646, netfang: fv@talnakonnun.is ASKRIFTARVERÐ: 3.645 kr. fyrir 6.-11. tbl. - 10% lægra áskriftarverð ef greitt er með kreditkorti. LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. DREIFING: Talnakönnun, hf., sími 561 7575 FILMUVTNNA, PRENTUN OG BÓKBAND: Prentsmiðjan Grafík hf. IJTGREININGAR: Prentmyndastofan hf. - Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir ISSN 1017-3544