Lárus Guðbjartsson sölumaður afgreiðir viðskiptavin í Reykjavík. Myndir: Geir Ölafsson Bílaleigan Avis Geysir hefur 200-500 bíla á boðstólum á átta stöðum á landinu: Kjörorð okkar er: Við reynum betur! Bílaleigan Avis Geysir var stofnuð um síðustu áramót þegar tvær stórar bílaleigur, Avis og Geysir, sameinuðust. Hin sameinaða bílaleiga er í eigu Auto Skandinavía hf. en eigendur þess eru Imad Khalidi, Hulda Björgvinsdóttir og Þórunn Reynisdóttir sem einnig gegnir starfi framkvæmda- stjóra. Bílaleigan Avis Geysir býður upp á þjónustu fyrir einstaklinga jafnt sem fyrirtæki og leggja starfsmenn metnað sinn í að veita þægilega og sveigjanlega þjónustu að þörfum hvers og eins. Okkar stærstu viðskiptvinir eru erlendir ferðamenn, ferðaskrifstofur, fyrirtæki og stofnanir. Innanlandsmarkaðurinn hefur sérstöðu að því leyti að við þjónum hverju fyrirtæki eftir eigin þörfum. Þessa þjónustu erum við í auknum mæli að kynna fyrir innlendum fyrirtækjum. Það að skipta við alþjóðlegt bílaleigufyrirtæki hefur mikla kosti í för með sér fyrir okkar viðskiptavini, bæði innlenda og erlenda. Þar sem við bjóðum ýmsar gerðir af bílum geta fyrirtækin fundið þann bíl sem hentar best hverju sinni hvar sem er í heiminum," segir Þórunn Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Avis Geysis á íslandi. Glæsilegur bílafloti Avis Geysir er ein af stærstu bílaleigum landsins. Hún rekur átta þjónustustöðvar víðs vegar um landið; á Akureyri, ísafirði, Hornafirði, Egilsstöðum, í Keflavík, Reykjavík, Þórshöfn og Vestmannaeyjum. Starfsmenn eru 18 til 25 talsins eftir önnum, færri á veturna og fleiri á sumrin. Bílaflotinn getur verið allt frá 200 og upp í 500 bílar eftir árstíma og er um allar gerðir og stærðir af nýlegum bílum að ræða, eins og má sjá af meðfylgjandi lista. AViS Avis Geysir ¦ Dugguvogi 10,104 Reykjavík. Sími 533 1090 ¦ Fax 533 1091 Netfang: avis@avis.is Heimasíða: www.avis.is - Opel Corsa - Opel Vectra - Suzuki Jimmy - Hyundai Starex - Ford/Dodge Camper - Opel Astra - Hyundai H1 - Suzuki Vitara - Nissan Terrano - Opel Zafira - Opel Astra - Dodge Ram Van - Nissan Double Cab - Landrover Defender D - Isuzu Trooper Víðtækt þjónustunet Viðskiptamenn utan af landi, eða íbúar höfuðborgarsvæðisins sem eru í viðskiptaerindum, geta pantað bíl og fengið hann afhentan á flugvellinum í Reykjavík eða á öllum stærri stöðum á landinu. 8 fiWVHI!l«líl