I FREniR 12 mistök í hanastéli Kokkteilboð eru sjaldan algengari en einmitt yfii vetrarmánuðina. I'au hafa ótviræða kosti; veita liiitu, félagslegt samneyti og skemmtun, fyrir nii utan sambóndin sem hægt er að mynda, samn- ingana sem hægt er að gera og slökunina sem hægt er að ná með k vöiilstund i guðu hanastéli. En kokkteilboð geta lika verið varasöm fyrir þá sem ekki þekkja reglumar og vita ekki hvað ber að forðast Of inikil slökun, of frjálsleg framkoma - og liinar óskrifuðu reglur samkvæmisins eru brntnar. Leyfðu félögum þinum að stiga á þcss- ar félagslegu jarðsprengjur en gættu þin sjálfur og þá stendurðu ettir sem sigurvegari. Á toppnum! 1 Að fylgjast ekki með Það er dónalegt að horfa út í loftið í miðju samtali. Athygli er lykilatriði í samkvæmum og mesti virðingarvottur sem hægt er að veita öðrum. Til að ná sem bestum árangri með samtali: Sýndu svipbrigði og notaðu táknmál líkamans. Sýndu áhuga, jafnvel þótt hann sé ekki til staðar! 2 Að taka letilega í höndina á fólki Taktu þétt í höndina á fólki. Lint handtak gefur til kynna að viðkomandi sé óöruggur og óviss um sjálfan sig. Þétt handtak sýnir sjálfstraust og hreinskilni, opinn og hlýjan persónuleika. En gættu þín að valda ekki sársauka. Slíkt hefui þveröfug áhrif og gefur til kynna tilfinningalausa og dómínerandi" manneskju. 3 Að sýna áhugaleysi Táknmál líkamans getur komið upp um þig! Með því að snúa líkamanum ekki rétt er hægt að sýna áhugaleysi en það getur verið bæði móðgandi og neikvætt og orðið undirrót að f jandsamlegum tilfinningum í þinn garð. 4 Að reykja Flestar samkomur eru reyklausar í dag. Ef þú kveikir í sígarettu finn- urðu strax fyrir andúð þeirra sem reykja ekkí og líka þeirra sem reykja og fara eftir hinum óskrifuðu reglum um reykleysi. Jafnvel þótt sígar- ettureykingar séu leyfðar eru vindlareykingar það ekki. Og gættu þess að láta aldrei ö'skuna detta á gólfið. Finndu öskubakka! 12 Að grípa fram i Leyfðu mönnum að Ijúka máli sínu. Það er ruddaskapur af verstu tegund að grípa fram í fyrir öðrum. Ef þú heldur aftur af þér og leyfir fólki að tala ertu kurteis og viðkomandi getur þá betur hlustað á það sem þú segir. Hafðu í huga að leyndar- dómurínn á bak við það að vera góður í samræðulist er að kunna aðhlustaog hlusta vel! 11 Að leggja hönd á öxl í kokkteilboði má ekki snerta aðra öðruvísi en með handtaki - nema um gamla vini sé að ræða. Þetta gildir líka þó að snertingin sé saklaus því að alla snertingu er hægt að túlka á mismunandi hátt. © 5 Að halda á drykknum i vitlausri hendi Haltu alltaf á drykknum í vinstri hendi þvi að þá geturðu auðveldlega tekið í höndina á fólki með þeirri hægri án þess að hella niður eða lenda í vandræðum. Með þessu móti helst líka heegri höndin hlý og þurr og það skiptir ekki litlu máli. Iskaldur drykkur gerir höndina kalda og þvala. 10 Að halda barnum opnum of lengi Hanastél stendur aðeins í tvær klukkustundir, byrjar klukkan fimm og endar sjö. Barnum á að loka 30 mínútum áður en samkvæminu lýkur til að koma í veg fyrir að eftirlegukindur geti drukkið fram eft'rr kvöldi. 9 Að tala of hátt Ekki tala í háværum túni. hað gefur hrokafulla og nei- k kvæða mynd af þér. Röddin ætti að vera róleg og jöfn og tónninn og líkamsburðurinn að hæfa tíma og aðstæðum, 8 Að standa of nálægt öðrum Öll höfum við ákveðið svæði kringum okkur sem við hleypum ekki öðrum inn á. Ef einhver kemur óboðinn inn á þetta svæði bregðast flestir við með því að hörfa; stíga skref aftur á bak. Flestir telja það tilfinningaleysi og ruddaskap og mislíkar ef ráð- ist er inn á þeirra áhrifasvæði með því að standa of nálægt 7 Að drekka of mikið Hafðu stjórn á drykkjunni! Þú gætir haldið að þú værir að skemmta þér en fólkið í kringum þig mun hafa minna álit á þér ef þú gætir ekki hófs. Ef einhver verður drukkinn, og hefur hátt, hríð- fellur hann í áliti þó að um stjórnanda sé að ræða. Sá hinn sami ætti að óska snarlega eftir flutningi heim til sín því að annars gæti hann eyðilagt stemmninguna, til viðbótar við álitshnekkinn. 6 Að fara úr jakkanum Farðu aldrei úr jakkanum og ekki losa um bindið nema gestgjafinn geri það og bjóði þér að gera það líka. Það er slæmt að klæðast niður fyrir sig" án leyfis í samkvæmum nema maður fari að meðmælum gestgjafans. Dregið í sumarlppninnnil ID regið hefur verið í Sumarkeppni Sumars á Suður- landi. Fyrstu verðlaun hlaut Elín Birna Arnadóttir, Hafnarfirði, og fékk hún málsverð að eigin vali fyr- ir allt að 20 þúsund krónur. Önn- ur verðlaun hlaut Agnes Björg Bergþórsdóttir, Kópavogi, og hlaut hún tölvuleik frá BT Tölv- um fyrir allt að 10 þúsund krón- ur. Þriðju verðlaun hlaut Hrafn- hildur Valgarðsdóttir, Hvols- velli, og fékk hún nýjustu bók- ina um Harry Potter.SH Agnes Björg Bergþórs- dóttir vinningshafi og Stefán Guðmundsson, verslunarstjóri hjá BT Tölvum. Embla Örk Hó'lludóttir, s ára, dró nöfn vinningshafa. 14