Benedikt Jóhannesson, framkvmdastjóri Talnakönnunar og hins nýstofhaða dótturfyrirtækis þess, útgáfufélagsins Heims hf. Heimur hf. kemur Talnakönnun hf hefurstofnað útgáfufélagið Heim hf. til að taka við allri útgáfu fyrirtækis- insfrá og með næstu áramótum. Talnakönn- un gefur m.a. út tímaritin Frjálsa verslun, Vísbendingu-Islenskt atvinnulíf Tölvuheim og ferðahandbækur á borð viðAferð um Island. Eftír Jón G. Hauksson Myndir: Geir Ólafsson Heimur hf. er kominn í heiminn. Talnakönnun hf., sem m.a. gefur út Frjálsa verslun hefur stofnað útgáfufélagið Heim hf. til að taka við allri útgáfu fyrirtækisins frá og með næstu áramótum. Heimur hf. er að fullu í eigu Talna- könnunar og verður til húsa á sama stað, við Borgartún 23, en þar hafa skrifstofur fyrirtækisins verið síðustu sex árin. Tilgangurinn með stofnun hins nýja dótturfélags er að skilja útgáfuna betur að frá ráðgjafadeildinni sem verður áfram rek- in undir merkjum Talnakönnunar. Ennfremur þótti nafnið Talnakönnun ekki henta nægilega vel sem heiti á útgáfufyr- irtæki. Benedikt Jóhannesson verður framkvæmdastjóri beggja fyrirtækjanna. 34