I I Rúna starfar sjálfsttt sem grafiskur hónnuður. Hún tók að sér að hanna merki Heims hf. Mynd: Geir Ólafsson Hún hannaði merkið Eg hafði nafnið og starfsemi fyrirtækisins í huga við hönnun merldsins. Merkið á að tákna heimsblöðin, þ.e. tímaritin sem Heimur gefiir út Grunnhugmyndin að merkinu er heims- fréttín fiygur". Sem stílfærður fugl koma tímaritín fljúgandi með heimsfréttírnar tíl lesandans. Bláa formið á að tákna heiminn. Himinninn er blár, fjarskinn er blár og fjarlægðin gerir fjöllin blá," segir Rúna (Guðrún Þórisdóttir), sem er grafískur hönnuður. Rúna var fengin til að hanna merki Heims hf., fyrirtækisins sem tekur um áramótin við útgáfu þeirra blaða og tímarita sem áður voru gefin út á vegum Talnakönnunar hf. Hún útskrifaðist frá grafískri hönnunardeild MHÍ 1983 og hefur starfað við fagið síðan þá. Hún hannaði m.a. allar aug- lýsingar fyrir Heklu á árunum 1995-1999.53 þrátt fyrir ört vaxandi mátt Netsins og margra skemmtilegra nýjunga tölvuframleiðenda. Þetta mun allt saman haldast í hendur. Fólk mun tileinka sér notkun lófa- og fartölva sem annarra tækninýjunga tengdum þráðlausum fjarskiptum. En engu að síður mun fólk alltaf vilja kippa með sér blaði, tima- riti, bók eða bæklingi hvert sem er, til dæmis upp í rúm eða sófa. Það fylgir því önnur tilfinning að lesa sögu í bók eða blaði en af skjá." Ýmsir hafa velt því fyrir sér hvers vegna Talnakönnun hafi í upphafi markað þá stefnu að vera bæði í ráðgjöf og útgáfu, þarna sé um nokkuð ólíka hluti að ræða. Skýringin er ekki flóknari en sú að ég hef haft áhuga á hvoru tveggja lengi. Ég hef víst sagt þá sögu nokkrum sinnum að í barnaskóla gaf ég út hverfisblað með fjölbreytilegu efni ásamt félögum mínum. Síðan hefur áhugi minn á útgáfu alltaf blundað í mér en einnig áhugi á stærðfræði og rekstri fyrirtækja. Ég tvinna þetta því einfaldlega saman. Útgáfan og ráðgjöfin hafa stutt hvort annað þótt núna hafi verið ákveðið að hafa skarpari skil þarna á milli með stofnun Heims hf. Svo fer vel á því að byrja nýja öld í nýjum Heimi!" Stelnt að trekari Stækkun Benedikt segir að Talnakönnun hafi vaxið hratt á síðust árum. Tekjur þessa árs verða um 130 milljónir og stefnt er að því að samanlagðar tekjur Talnakönn- unar og Heims, þ.e. samstæðunnar, verði um 150 milljónir á næsta ári. Það er öllum fyrirtækjum mikilvægt að vaxa. Markmiðið er að ná veltunni í 500 milljónir á næstu fimm árum. Það er vissulega krefiandi takmark - en það er líka alltaf skemmtilegra að hafa markmiðin þannig." Talnakönnun hefur verið til húsa við Borgartún 23 í rúm sex ár. Þetta er þriggja hæða hús Hegra hf., sem er fyrirtæki í eigu Ásgeirs Jónssonar, þekkts 86 ára athafnamanns hér í bæ. Ásgeir ákvað að byggja eina hæð ofan á húsið og hófust framkvæmdir við það sl. vor. Segja má að smiðshöggið hafi verið rekið á hina nýju glæsilegu hæð hinn 24. nóvember sl. þegar Talnakönnun tók húsnæðið í notkun og bauð til glæsi- legrar opnunarhátíðar. Talnakönnun og Heimur leigja því núna tvær hæðir í Hegrahúsinu, eða í Heimshúsinu eins og hægt væri að kalla það en utan á því blasir við skiltið Heimur hf. Borgartún 23 er núna heill heimur út af fyrir sig. 33 37