Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, flytur erindi sitt á haustráðstefnu Félags löggiltra endurskoöenda. Fjármálaeftirlitið fær aukið hlutverk samkvæmt tillögum frumvarpsins, þ. á m. að halda skrá yfir fruminnherja og aðra innherja með tímabundinn aðgang að upplýsingum stöðu sinn- ar vegna, auk þess sem eftirlitinu er ætlað að birta lista yfir fruminnherja. Með þessum verkefnum aukast möguleikar Fjár- málaeftirlitsins á virku aðhaldi í þessum málum. Verklagsreglur - innherjaviðskipti Mikilvægt er að greina á milli umræðu um innherjaviðskipti og umræðu um eftirfylgni við verklagsreglur fjármálafyrirtækja um eigin viðskipti þeirra, viðskipti starfsmanna og Kínamúra. Þær reglur einskorðast ekki við meðferð trúnaðarupplýsinga, markmiðið með þeim er að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra og draga úr hættu á óhlutdrægni við meðferð og afgreiðslu mála. Fjármálaeftirlitið er að móta leiðbeiningar um efni nýrra reglna um verðbréfavið- skipti, sem fjalla um þessi mál. Fjármálaeftirlitið er nú að vinna úr athugasemdum sem fram hafa komið við drög þess að leið- beiningum sem eftirlitið birti í sumar á heimasíðu sinni. Fyrir- tækjum í verðbréfaþjónustu og lánastofnunum ber að setja sér reglur af þessu tagi, sem þurfa staðfestíngu Fjármálaeftirlitsins. Grunnmarkmið við mótun startshátta á verðbréfamarkaði Um- ræða um innherjaviðskipti og umræða um verklagsreglur fjármálafyrirtækja lýtur þó að sömu grunnmarkmiðum um mótun starfshátta á verðbréfamarkaði. Grunnviðmið við mót- un á starfsháttum á verðbréfamarkaði hlýtur að mati Fjár- málaeftirlitsins að vera að starfshættir á verðbréfamarkaði hér séu sambærilegir að gæðum við þá sem þekkjast í við- skiptalöndum okkar. Það er forsenda þátttöku erlendra aðila á íslenskum verðbréfamarkaði. Sjónarmið um að hér þurfi að gilda vægari reglur vegna smæðar markaðarins og mikillar þátttöku fjármálafyrirtækja á verðbréfamarkaði með viðskipt- um fyrir eigin reikning, eiga því alls ekki rétt á sér að mati Fjármálaeftirlitsins. ffl [ Ráögjöf og þjónusta ] www.simnet.is 800 7575 Armúli 25 SÍMINNinl.eriK.'l -tengir þig við lifandi fólk 77