Sigurður Einarsson, forstjóri Kauþþings. Kauþþing reið á vaðið í fjármálastarfsemi erlendis fyrir fjórum árum síðan þegar fyrirtkið byrjaði með sjóðavörslu í Lúxemborg. Þetta komfram á fundi greiningardeildar Kaupþings sem haldinn var nýlega á Hótel Sögu en þar fjallaði Sig- urður einmitt um útrás fyrirtækisins. FV-mynd: Geir Olafsson erlendis en það eru fáir erlendir fjárfestar sem líta til íslands þannig að hér er um mikilvægt verkefni að ræða." - Eruð þið með aðra útrás i huga? Við erum að sjálfsögðu að íhuga framhaldið. Við erum m.a. að horfa á Norðurlöndin. Nýverið voru kauphallirnar tengdar saman og margt sem mælir með því að skoða aðstæður þar betur," svarar hann. - Þannig að það má ln'iast við þvi að þar verði látið til skarar skríða næst? Eg get nú ekkert um það sagt á þessu stigi," svarar hann og bætir við að engar stórar ákvarðanir verði teknar um slíkt fyrr en viðræðum um sameiningu Búnaðarbankans og Landsbank- ans er lokið. í Guernsey og London Landsbanki íslands hefur verið með sjóðafélag á Guernsey í tvö ár en um það svæði gildir það sama og Lúxemborg, þar er þekking fyrir hendi á rekstri slíkra sjóða, skattalegt umhverfi er gott, fjármálaeftirlit sömuleiðis og staðsetningin hentar vel viðskiptavinum Landsbankans, bæði þeim sem búsettir eru hér á landi og erlendis. Sjóðnum er stýrt frá Reykjavík en haldið utan um bókhald og þess háttar á Guernsey. Þá keypti Landsbankinn 70 prósenta hlut í Heritable and General Investment Bank, HIB, fyrr á þessu ári. HIB er rótgróinn, breskur banki sem er staðsettur í miðju Mayfair hverfi London. Við erum að bæta þjónustu við núverandi viðskiptavini. Það er stór þáttur í útrás af þessu tagi að styrkja sinn heima- markað. Við vonumst þó til þess að geta vaxið aðeins út fyrir heimamarkaðinn og laðað til okkar nýja viðskiptavini. Fjárfest- ingin ein og sér í núverandi starfsemi HIB bankans er jafn- framt skynsamleg að okkar mati þar sem hún er arðbær og háð annars konar sveiflum en við erum með fyrir í okkar rekstri. I því felst áhættudreifing fyrir rekstur Landsbankasam- stæðunnar," segir Sigurður Atli Jónsson, forstjóri Landsbréfa. HIB hefur starfað á ýmsum sviðum fjármálaþjónustu í gegn- um tíðina en afmarkað sig síðustu árin á þröngu sviði sér- hæfðrar útlánastarfsemi. HIB var keyptur til að bæta við nýrri starfsemi, sjóðastjórnun, sérbankaþjónustu og verðbréfaþjón- ustu með þarfir viðskiptavina LÍ og sóknartækifæri erlendis í huga. Nýja starfsemin er þegar hafin en má segja að hún fari á fullt eftír áramótin. Starfsmenn eru í dag um 20 talsins og er búist við að þeir verði u.þ.b. 30 á næsta ári. Enginn Islending- ur er starfandi hjá HIB en fimm til sex Islendingar taka til starfa hjá bankanum eftir áramótin. í London Og DanmÖrkU Íslandsbanki-FBA hefur tvíþætta starf- semi erlendis, annars vegar hefur bankinn um nokkurt skeið þjónað sjávarútvegsfyrirtækjum víða um heim, aðallega þó á austurströnd Kanada, og gert það beint frá Reykjavík. Hins veg- ar hefur bankinn verið að byggja upp bankaþjónustu í útlöndum og er þar um tvennt að ræða. í byrjun þessa árs tilkynnti FBA um kaup á R. Raphael & Sons bankanum, skammt fyrir utan London, og var sá rekstur tekinn yfir í sumar. Starfsemi bankans felst í sérbankaþjónustu, bæði íslenskri og breskri. Þá á Islands- banki-FBAfjórðungshlut í danska netbankanum Basisbank.dk á móti dönskum fjárfestum og fjárfestingarfélagi frá Singapúr og hóf sá banki starfsemi sína í september. Það er yfiriýst stefna bankans að hasla sér völl í Norður-Evrópu.HH 80