FYRIRTÆKIN A NETINU Metnaðarfullt starf á Netinu Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardótflir. t** Islensk erfðagreining, ÍE, hefur metnaðarfulla starfsemi á slóðinni www.decode.is og www.decode.com. Þó að fyrirtæk- ið sé ungt, aðeins fjögurra ára gamalt er vefur þess óvenju langt kominn á þróunarbrautinni. Hann er fróðlegur og aðlað- andi, litríkur og smekklegur, vel skipulagður með nauðsynleg- um upplýsingum um fyrirtækið og starfsemi þess. Fræðslu og kynningu um starfsemi fyrirtækisins er komið á framfæri á ein- faldan og skýran hátt. :» W «» e**** .1««. *?* £ - ** i^l á. sSL tiL «* *Sr ** sí 2 ¦ d=L ;j*#i«»(tó"»"^./ jd^° Forsíðan, eldrauð og smekklega hönnuð. Þessi mynd í dag og kannski verður ó'nnur á morgun. Railtt sem eldlirinn Forsíðan er vel hönnuð og falleg, eldrauð með mynd, sem virðist vera skipt um reglulega, og einkunnar- orð fyrirtækisins og markmið fara ekki framhjá neinum, þau birtast hvítum stöfum á rauðum grunni. Forsíðan er byggð upp á hefðbundinn hátt með valhnöppum, leit og mynd. Valhnapp- ar eru fáir en skýrir; fyrirtækið, fjárfestar, fréttir, verkefni, ítar- efni og loks er hægt að fá enska útgáfu á www.decode.com. Þegar smellt er á valhnappa birtíst undirefnið og það greinist í undirsíður á skýran og þægilegan hátt. Þannig er til dæmis fjallað um lykilstjórnendur fyrirtækisins undir valhnappnum fyrirtækið" og í langflestum tilfellum er birt mynd með um- fjöllun um viðkomandi. Textar eru stuttir, skýrir og hnitmiðaðir án þess að vera stutt- aralegir og þeir koma á framfæri nauðsynlegri fræðslu um starf- semi fyrirtækisins, hvort sem það er spurning um rannsóknar- verkefni, gagnagrunninn, sjúkdóma eða annað það ítarefni sem er í eigu fyrirtækisins eða starfsmanna þess. Þetta er gert án þess að það komi niður á fræðslugildinu, þvert á móti er þetta dæmi um miðlun efhis, sem mörgum gæti þótt illskiljanlegt og leiðinlegt, á auðlesinn, aðlaðandi og skemmtilegan hátt. I gegnum SÍU Vefur ÍE gefur ýmsa möguleika fyrir þá sem vilja fylgjast með starfsemi fyrirtækisins, hvort sem það eru ¦aaa j a- #- j a . m ^3 .# Fréttatikynninoar Fréttatilkynningar eru birtar á vefiium. Einnig er hægt að gerast áskrifandi að þeim. fjárfestar, blaðamenn eða áhugamenn um starfsemi fyrirtæk- isins. Notandinn fær ágætis þjónustu pg í sumum tilfellum er hann leiddur áfram, t.d. ef hann vill' fylgjast með hluthafa- fundi á Netinu. Þannig er auðvelt að gerast áskrifandi og fá sendar fréttatilkynningar um starfsemi fyrirtækisins. Einnig er hægt að lesa og leita í greinasafni sérfræðinga íslenskrar erfðagreiningar. Hægt er fylgjast með lausum störfum og sækja um starf hjá íslenskri erfðagreiningu og þannig mætti lengi telja. Einn er þó galli á gjöf Njarðar og hann er sá að ekki er hægt að nálgast upplýsingar um einstaka starfsmenn fyrir- tækisins. Aðeins er fjallað um lykilstarfsmenn og því er ekki hægt að forvitnast um starfsmenn í deildum fyrirtækisins eða nálgast netföng þessara starfsmanna á Netinu. Þannig er að- gengi miðstýrt og allur póstur látinn fara í gegnum síu hjá fyrirtækinu.Bl] a~ J" a ð Jl J Jr #- Jt 38 . s M^MjI Undir valhnaþpnum lykilstarfsmenn er hægt að lesa stutt ágriþ um helstu stjórnendur fyrirtkisins. Hér er til dæmis fjallað um Hannes Smárason aðstoðarforstjóra. Ekki eru gefnar uþþlýsingar um aðra starfsmenn. 89