9 Samskrá um erlend tímarit Ráðgert er að gefa út að nýju Samskrá um erlend tímarit. Byrjað er að vinna að þessu verki og er vonast til að skráin geti komið út snemma árs 1984. Um er að ræða prentaða heildarskrá og verður hún væntanlega með svipuðu sniði og áður. Islenska samskráin hefur átt aðild að NOSP allt frá árinu 1978. NOSP (samskrá um erlend tímarit í rannsóknarbókasöfnum á Norður- löndum) kemur út á örglærum (NOSP-mikro) tvisvar á ári og er endur- nýjuð í hvert skipti. NOSP-skráin hefur vaxið jafnt og þétt síðustu ár og er orðið að henni verulegt gagn. í nýjustu útgáfu skrárinnar eru um 44.000 titlar tímarita. Því miður munu aðeins 4 bókasöfn hérlendis vera áskrifendur að NOSP- mikro og væri æskilegt að fleiri bættust í hópinn. Askrift að NOSP- mikro 1983 kostar 350 finnsk mörk. Beiðni um áskrift sendist: NOSP-centralen, Fack 312 SF-00171 Helsingfors 17, Finland N0SFrmikro er tii í Háskólabókasafni og geta þeir sem vilja kynnt sér skrána þar. Með þátttöku okkar í NOSP var þess vænst að við gætum með auðveldari hætti fengið yfirlit yfir tímaritaeign íslenskra bókasafna, annaðhvort með því að láta NOSP koma í stað sérstakrar íslenskrar skrár eða á þann veg að við gætum dregið íslenska skrá út úr NOSP-banJtanum. Þessu markmiði hefur ekki verið náð enn sem komið er. Allstór hluti íslenskrar samskrár kemst ekki inn í NOSP; ástæðan er svá að viðkomandi tímarit hafa ekki fengið alþjóðlegt númer. Hér er um að ræða vandamal sem er sameiginlegt öllum aðilum að NOSP, og er unnið að lausn þess. Ekki er unnt að fullyrða hvenær NOSP-skráin verður orðin svo yfirgrips- mikil að hún geti komið í stað slrstakrar íslenskrar samskrár. Meðan svo er ekki, eigum við ekki annars kost en gefa skrána út sérstaklega eins og nú er fyrirhugað. Þ.R.