13 Hjúkrunarbókasafn Hjúkrunarskoli íslands og námsbraut Háskóla íslands í hjúkrunarfræði hafa nýlega sameinast um bókasafn. Sam- steypusafn þetta er staðsett í húsnæði Hjúkrunarskólans við Eiríksgötu. Safnið er flokkað eftir bandarísku flokkunarkerfi er tekur til læknisfræði og skyldra greina, National Library of Medicine Classification. Safnið er opið kl. 11-14 þriðjud. - föstud., bókavörður Hjúkrunarskólans er Johanna D. Skaftadóttir. GK Um útgáfu Fregna - útdráttur úr samþykktum frá 24. okt. 1983 Aðildarfélög Bókavarðafélags íslands og Félag bókasafnsfræðinga sjá um a.m.k. 1 tbl. á ári hvert félag, þannig að út koma minnst 4 tbl. ár hvert. Umsjón með útgáfu felst í því að búa efni til fjölföldunar, að láta fjölfalda það og sjá um dreifingu upplagsins. Einn maður í ritnefnd Bókasafnsins er tengi- liður milli ritnefndar og þeirra sem sjá um útgáfu fréttabréfsins hverju sinni. Tengiliður nú er Viggó Gíslason bókasafni Alþingis (sími 11560) og eru allir bókaverðir hvattir til að senda fréttir og upplýsingar til hans. Um skiptingu efnis milli Fregna og Bóka- safnsins vísast til frásagnar í Bókasafninu 2. tbl. 1983. ÞSS