16 Sanstarfsnefnd um upplvsingamál Samstarfsnefnd um upplýsingamál hefur starfað allt frá árinu 1979 og er hún á vegum menntamálaráðuneytisins. I október 1982 var nefnd þessi endurnýjuð, og voru eftir- farandi menn skipaðir í hana til þriggja ára: Einar Sigurðsson háskólabókavörður (formaður), Anna Magnúsdóttir bókasafnsfræðingur, dr. Finnbogi Guðmundsson landsbóka- vörður, Gestur ölafsson forstöðumaður Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins, Jón Erlendsson forstöðumaður Upplýsingaþjónustu Rannsóknaráðs, dr. Oddur Benedikts- son próf. og Þórarinn Gunnarsson skrifstofustjóri hjá Fel. ísl. iðnrekenda. Ritari nefndarinnar er Þórir Ragnarsson, Háskölabókasafni. Þ.R. Alyktun um miðbókasafn í Læknisfræði í október 5.1. barst læknisfræðisöfnunum til kynningar eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var á aðalfundi Læknafélags íslands í septem- ber 1983: Aðalfundur L.í. haldinn í Reykjavík 19.-20. sept. 1983, vill enn vekja athygli á, að ekki er til miðbókasafn í læknisfræði í landinu. Beinir fundurinn því til stjórnar L.Í., að hún hlutist til um, að slíkt bókasafn fái aðstöðu í Þjóðarbókhlöðunni, sem nú er í byggingu. Hafi hún um það samráð við þá aðila, sem nú þegar veita þjónustu á þessu sviði".