Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fregnir

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fregnir

						-1-

KERFISBUNDIN EFNISORÐASKRÁ (thesaurus)

Síðastliðið sumar veitti Menntamálaráðuneytið undirrituðum

styrk til þess að hefja samantekt á kerfisbundinni efnisorðaskrá. Hér

er um almenna efnisorðaskrá að ræða og tekur hún að hluta til mið af

efnisorðum sem þegar eru i notkun 1 nokkrum framhaldsskólum og

var orðanotkun þeirra samræmd. Skráin hentar þó jafnframt

almennum söfnum. s.s. almenningsbókasöfnum og bókasöfnum í

grunnskólum.

Við gerð efnisorðaskrárinnar er í megindráttum fylgt reglum

alþjóðlegs staðals ISO 2788/1986 sem gefinn var út nú um

mánaðamótin (nóv./des. 1991) hjá Staðlaráði íslands se ÍST 90

undir titlinum: Heimildaskráning - leiðbeiningar um gerð og þróun

kerfisbundinna efnisorðaskráa á einu tungumáli.

Efnisorðaskráin skiptist í eftirfarandi tvo hluta:

a)   Stafrófsröðuð framsetning. Þessi hluti er jafnframt

meginhluti skrárinnar. í honum eru valorð (preferred term) og

vikorð (non-preferred term) í einni stafrófsröð. Valorð eru rituð með

hástöfum en vikorð með lágstöfum til aðgreiningar. Sýnd eru

innbyrðis tengsl milli valorða, þ.e. víðarl heiti, þrengri heiti og

skyld heiti.

b)   Stigveldisskipt framsetning. í þessum hluta eru yfirheiti í

stafrófsröð og er stigveldisskipan sýnd með inndrætti. í

stigveldunum eru eingöngu valorð.

Vinnsla og uppsetning efnisorðaskrárinnar byggir á bresku

tölvuforriti, TINterm, sem er i eigu flokkunarnefndar.

Stefnt er að þvi að gefa skrána út á næstunni sem tilraunaútgáfu.

Margrét Loftsdóttir

Þórdís Þórarinsdóttir

NÝIR BÓKASAFNSFRÆÐINGAR HAUSTIÐ 1991 OG

LOKAVERKEFNI ÞEIRRA

2 nýir bókasafns- og upplýsingafræðingar luku prófi í október

1991. Þeir eru:

Jóhanna G. Aðalsteinsdóttir og Kolbrún Andrésdóttir: Skrá yflr

efni um fatlaða.

Auk þeirra luku tveir starfsréttindanámi

Elin Guðjónsdóttir:  Þarfaþing : samskrá um islensk tímarit á

mið- og skólasöfnum (ásamt Solveigu H. Gísladóttur)

Hrafnhildur Heba Wilde: Flokkun bókmennta og tungumála :

nýjar leiðir og endurbætur á gömlum.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12