-2- NORRÆN SAMVINNA : starfsemi NORDINFO árið 1991 Ný stjórn Um næstu áramót lýkur stjórnartímabili þvi sem staðið hefur sl. þrjú ár. Fram undan eru ýmsar breytingar á stjórn og starfi NORDINFO elns og sagt var frá í 1. tbl. Fregna á þessu ári. Nú er komið að þvi að skipa nýja stjórn og verða stjórnarmenn framvegis 9 í stað 14, tveir frá hverju landi nema einn frá íslandi. Engir varamenn verða skipaðir nema fyrir íslendinginn. Stjórnsýsluembætti bókasafnsmála áttu að skila tillögum um þrjú nöfn til norrænu menningarmálanefndarinnar sem síðan velur úr þeim og mælir með til embættismannanefndarinnar hvernig stjórnin verði skipuð. Nú eiga fulltúar notenda að vera með en meiri hlutinn verður þó úr bókasafna- og upplýsingageiranum. Óliklegt er að embættismannanefndin skipi stjórnina fyrr en á fyrstu mánuðum næsta árs. Framkvæmdastjóri NORDINFO hvatti eindregið til þess að ekki yrði skipt um alla stjórnarmenn og því hafa víst allir þeir sem sæti áttu í framkvæmdastjórninni verið tilnefndlr áfram hver í sínu landi. Á sama tima er nefnd á vegum Norðurlandaráðs (FIN-FORSK) með skurðarhnífinn á lofti og hefur kannað starfsemi fjölda norrænna stofnana og nefnda á sviði rannnsókna og menntamála í þvi skyni á fækka þeim og færa fjármagn t.d. tíl norræna kvikmyndasjóðstns. Líklegt er þó að athugunin taki svo langan tíma að NORDINFO starfl eftir nýja fyrírkomulaginu næsta stjórnartimabil (3 ár). Stuðningshópurinn (26 manns) sem stofnaður var í jan. 1991 hefur reynst hinn besti bakhjarl. Undirrltuð hefur gjarnan haft samband við einstaklinga þar fyrir og eftir fundi og í kringum heimsókn Maurice Líne og allir hafa þeir fengið skýrslu um fundina jafnóðum. Vonandi hefur það orðið til þess að bókavörðum finnst starfsemi NORDINFO ekki eins fjarlæg og ella væri. Aflciðingar breyttra starfshátta og helstu verkefni Nú hafa verið samdar nýjar starfsreglur. Framvegis er ætlast til að NORDINFO sinni einkum stærri þróunarverkefnum sem stjórnin eigi frumkvæði að. Ekkert kemur þó í veg fyrir að einstaklingar komi tillögum sinum á framfæri og þeim fylgja engar skuldbindingar, t.d. um verkefnisstjórn. Stærsta nýja verkefnið á vegum NORDINFO er um svokallað norrænt SR-net og er það undir stjórn Liv Holm hjá RBT í Noregi. Þetta er umfangsmikið og fjárfrekt verkefni og tengjast því margir aðilar. Andrea Jóhannsdóttir er i vinnuhópi um verkefnið en Island á ekki fulltrúa í stjórn þess. ISO hefur samþykkt staðla um hvernig millisafnalán (ILL) og leit og yflrfærsla (SR= search and retrieve) geta farið fram milli tveggja tölvuvæddra bókasafnskerfa. Með þvi að taka þessa staðla upp geta notendur norrænu kerfanna notað gagnabrunna í öðrum kerfum eins og þeir væru þeirra eigin. Verkefnið stuðlar einnig að útbreiðslu þekkingar á OSI-stöðlum á Norðurlöndum.