Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fregnir

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga breidd


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fregnir

						-3-

Beðið er eftir útgáfu skýrslu Maurice Line um starfsemi háskóla-

og sérfræðisafna með nokkurri eftirvæntingu. Vísast getur hún hvatt

til umræðu í löndunum og ætlunin var að niðurstöður hennar vísuðu

veginn í sambandi við menntun stjórnenda stórra bókasafna.

Þá er á döfinni ráðstefna um skylduskil, aðstoð við

Eystrasaltslöndin og nokkur önnur verkefni eru þegar komin á skrið.

Mati á IANI- forritinu er nú að ljúka í öllum löndunum. Þrír

íslendingar tóku þátt i því, Halldóra Þorsteinsdóttir á Hbs., Jón

Erlendsson Upplýsingaþjónustu HÍ og Sólveig Þorsteinsdóttir á Lsp.

Opinberar niðurstöður eru væntanlegar í febr./mars. Þá er verið að

ræða framtíð bæði NOSP og SCANNETS í ljósi nýrra tækniframfara.

Út er komin skýrsla um NOSP þar sem tillögur eru gerðar um

breytingar á núverandi fyrirkomulagi og svo getur farið að NOSP

verði lagt niður í núverandi mynd.

Áfram er mikill áhugi á að sinna verkefnum sem í eðli sínu

krefjast stöðugrar athygli, s.s. menntunarmálum, útgáfu og

ráðstefnuhaldi. Á öðrum stað í Fregnum segir frá Engil-norrænu

námstefnunni 1991 sem haldin var í Kaupmannahöfn. Sú næsta

verður að vori í Englandi og mun fjalla um áhrif varðveislu efnis á

segulmiðlum á starfsemi rannsóknarbókasafna.

Þá hefur NORDINFO-nytt breytt um yfirbragð á árinu og er nú

mun líflegra og betur úr garði gert en áður. Starfsáædun fyrir

tímabilið 1991-94 birtist í 1. hefti 14. árg. 1991. Tímaritinu er

ennþá dreift ókeypis frá skrifstofu NORDINFO.

Tengsl við Evrópubandalagið

Allt árið hefur töluvert verið rætt um hvernig

Norðurlandaþjóðirnar jgeti tekið þátt í verkefnum á vegum

Evrópubandalagsins. Akveðið er að skrifstofa NORDINFO verði

tengiliður og áhersla lögð á samnorræn sjónarmið en ekki hagsmuni

einstakra landa. Skrifræði er mikið í kringum þessi verkefni og enn

sem komið er hafa ekki aðrir en Danir komið nálægt þeim.

Skrifstofan fylgist þó vel með gangi mála og næsta hefti NORDINFO-

nytt verður helgað þessu efni.

Þátttaka íslendinga á árinu

Mikilvægt er að sem flestir íslendingar tengist starfinu. Þegar

litið er um öxl kemur í ljós að við höfum átt fulltrúa í ýmsum

vinnuhópum um einstök verkefni þó að þátttaka okkar sé oft bréfleg.

Nokkrir hafa farið á námskeið eða ráðstefnur og þar hafa íslendingar

einnig átt fyrirlesara og sumir hafa skrifað greinar. Við tókum á móti

Maurice Line s.l. sumar og var ekki annað á honum að heyra en

honum hefið líkað dvölin vel. Einnig má nefna að þrír íslendingar

taka þátt í að meta IANI.

Undirrituð spjallaði um norræna samvinnu á sviði bókasafnsmála

á fundi með bókasafnsfræðinemum í nóvember. Þar kom í ljós að

allir höfðu að minnsta kosti heyrt getið um NORDINFO.

Kristín Indriðadóttir

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12