Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fregnir

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fregnir

						NORDINFO VERKEFNIÐ - NORRÆNT SR-NET

í flestum löndum Evrópu og í Norður-Ameríku eru í dag

mismunandi tölvunet. Mörg af þessum netum eru tengd saman á

ýmsa vegu. Netin bjóða einnig upp á ýmsa þjónustu s.s. tölvupóst,

flutning á skrám, leitir i gagnasöfnum o.s.frv. Sum af þessum atriðum

byggja á alþjóðlegum stöðlum.

Innan bókasafns- og upplýsingafræða voru samþykktir voríð

1991 alþjóðlegir staðlar um leitir og heimtur á bókfræðiupplýsingum

(SR) og fyrir millisafnalán (ILL).

Á markaðnum er mikill fjöldi upplýsingakerfa. Flest þeirra hafa

þróað sitt eigið Ieitarmál. Mjög margir bókaverðir og ýmsír aðrir hafa

þörf á þvi að leita í öðrum gagnasöfnum en sinum eigin í tengslum

við dagleg störf. Besta hugsanleg aðstaða væri sú að hægt væri að leita

í hinum ýmsu gagnasöfnum sem þau væru manns eigin. Tilgangur

ISO staðalsins "OSI-protocoll R" (OSI = Open Systems

Interconnection; SR = Search and Retrieve) er einmitt að gera þetta

mögulegt.

Tilgangur NORDINFO verkefnisins "NORRÆNT SR-NET' er

tviþættur:

-  að gera það mögulegt fyrir notendur (á Norðurlöndum) að

sækja upplýsingar i norræn gagnasöfn, evrópsk gagnasöfn

almennt og í gagnasöfn í Norður-Ameríku i gegnum sitt eigið

bókasafnskerfi

-  að auka þekklngu innan bókasafnsheimsins á Norðurlöndum

um OSI-samsklptareglur almennt og sérstaklega þær OSI-

samsklptareglur sem snerta bókasafns- og upplýsingafræði.

Til að ná þessum markmiðum er áætlað að gera tvennt:

-  flmm gagnasöfn í fjórum af löndunum munu tengjast

samkvæmt ISO-staðli um SR-samskiptareglur

-  IANI verður notað með SR-samskiptareglum og þannig

fjölgar þeim gagnasöfnum sem notendur geta náð frá sínu

kerfi.

bátttakendur eru bókasafnsyfirvöld á hinum Norðurlöndunum

ásamt netkerfum háskólanna. Island tekur ekki að fullu þátt í þessu

samstarfi, en undirrituð er áheyrnarfulltrúi.

Verkefnið er fjármagnað að mestu leyti af NORDINFO, en

bókasafnsyfirvöld á hinum Norðurlöndunum og netkerfi háskólanna

styrkja verkefnið einnig. Hver þátttökustofnun styður það síðan með

vinnuframlagi.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12