Fregnir - 01.07.1994, Blaðsíða 3
FREGNIR
Guðrún Karlsdóttir, Háskólabókasafni:
Greinasafnskerfið
í Gegni II
Greinasafnakerfið í Gegni er bókfræðilegt gagnasafn sem tekur til
greina í íslenskum blöðum og tímaritum. Ætlunin er að skrá einnig í
gagnasafnið greinar sem fjalla um íslenskt efni eða eru eftir íslenska
höfunda í íslenskum tímaritum og blöðum. Þjóðarbókhlöðusöfn hafa
umsjón með skráningu í greinasafnið og kveða á um skráningarhætti og
umfang. Önnu þátttökusöfn Gegnis og fleiri aðila skrá inn efni í samráði
við söfnin tvö.
Vinna við greinasafnakerfið hófst síðari hluta árs 1992. Fyrst fór fram
tilraunaskráning og aðlögun að skráningarþættinum samkvæmt þeirri
prófun. Snemma árs 1993 hófst skipuleg skráning greina úr völdum
tímaritum. Tekinn var saman listi um forgangsröð í samráði við upplýs-
ingadeildir safnanna sem fást við greinaskráningu og ræður notkun þar
mestu. Fært er inn á sérhannað eyðublað hvar verk er statt hveiju sinni.
Þar kemur fram heiti tímarits, árg./hefti/tbl. og útgáfuár, hvort það er
lyklað, hvort útdráttur fylgir bókfræðilýsingu, hvort búið er að yfirlesa
og færa inn leiðréttingar og að lokum færslufjöldi fyrir tímaritið í heild.
Prófarkalestur og leiðréttingar fara fram eftir á þegar allt efni viðkom-
andi tímarits hefur verið slegið inn. Gefur sú aðferð m.a. betri yfirsýn
yfir nafnmyndaskrá en sú að lesa jafnóðum yfir en villur liggja hins veg-
ar heldur lengur inni í færslunum óyfirlesnum en ella. Notendur eru
beðnir velvirðingar á þessu en líklegt er að þessi háttur verði hafður á
meðan afturvirk skráning greina stendur yfir. Samtímaskráning er aftur
á móti lesin yfir jafnóðum.
3