FREGNIR íslenskur staðall um aðferðir við efnisgreiningu Um þessar mundir er að koma út hjá Staðlaráði Islands (STRI) staðall- inn ÍSTISO 5963: Heimildaskráning - aðferðir við athugun heimilda, greining á efni þeirra og val efnisorða = Documentation - Methods for examining documents, determining their subjects and selecting indexing terms. Staðallinn var þýddur að frumkvæði flokkunarnefndar. Guðrún Karls- dóttir (nefndarformaður), Háskólabókasafni, Sigurður Vigfússon, Borg- arbókasafni Reykjavíkur og Þórdís T. Þórarinsdóttir, Bókasafni Mennta- skólans við Sund önnuðust þýðinguna og gengu frá handriti ásamt Nönnu Bjarnadóttur Landsbókasafni íslands. Staðallinn tekur gildi í ágúst 1994. Hann verður fáanlegur hjá Iðntækni- stofnun íslands, ennfremur hjá Bóksölu stúdenta og hjá Þjónustumiðstöð bókasafna. Með virðisaukaskatti mun hann kosta rúmar 1.300 krónur. Enn er fáanlegur hjá sömu aðilum Staðallinn ÍTS 90, Heimildaskráning - Leiðbeiningar um gerð og þróun kerfisbundinna efnisorðaskráa á einu tungumáli = Documentation - Guidelines for the establishment and development of monolingual thesauri. Gott er að nota þessa staðla saman. Rétt er að benda á að þeir eru ekki eingöngu ætlaðir þeim sem fást við efnisgreiningu og samningu efnis- orðaskráa, heldur má einnig hafa gagn af þeim við efnisleitir í gagna- söfnum sem byggð eru upp skv. sömu forsendum. Guðrún Karlsdóttir 10