íslendingar komu að matsmanni til að dæma umsóknir um rannsóknarstyrki í júní sl. Það var Stefanía Júlíusdóttir er vann um hálfsmánaðarskeið í Luxemborg hjá Evrópusambandinu og var það mjög lærdómsríkt fyrir okkur að komast að því hvernig sá ferill fer fram. Vonandi verður áframhald á því að við getum sent okkar fulltrúa í matsnefnd og þeir sem hafa áhuga fyrir slíku geta haft samband við undirritaða. Matsmenn verða að vera með meistara- próf í bókasafnsfræði eða sambærilega menntun eða með langa og fjölbreytilega starfsreynslu á sviði bókasafnsmála og hafa stundað rannsóknir. Næsti umsóknarfrestur um rannsóknarstyrki er í júní 1996 og er um að gera að senda eins margar umsóknir og hægt er frá íslandi. Um leið og upplýsingar liggja fyrir um hvað hægt er að sækja um og hvað eigi að leggja áherslu á mun verða haldinn kynningar- fundur fyrir bókaverði hérlendis. Eins eru bókaverðir beðnir að koma sjálfir á framfæri til mín upplýsingum um áhugasvið sín og hvort þeir hafi áhuga á að starfa á þessum vettvangi, því alltaf getur verið að möguleiki opnist á því að komast í starfshóp eða á vinnufund. Nú þegar hefur verið hægt að koma tveimur íslenskum bóka- vörðum að á fund í Lúxemborg og jafnvel í starfshóp. Það eru þau Anna Torfadóttir og Hrafn Harðarson. Anna Torfadóttir mun fara á vinnufund til Lúxemborgar þann 6. nóvember, þar sem fjallað verður um "Open Distance Learning in Public Libraries". Hrafn Harðarson mun sækja skipulagsfund í Lúxemborg þann 7. nóvember "The First Planning Meeting for PubliCA the Concerted Action for Public Libraries". Hildur G. Eyþórsdóttir, Landsbókasafni íslands - Háskólabókasafni. Sími 5635703 Fax 5635616 hge@bok.hi.is Fregnir 3-4/95 5