Æviskrár bókasafnsfræðinga - fréttir af framgangi verks Helga Kristín Einarsdóttir hefur komið inn í ritnefndina í stað Ásgerðar Kjartansdóttur sem starfar nú í Malawi. Stjórn Félags bókasafnsfræðinga hefur skipað útgáfunefnd og er Eiríkur Þ. Einarsson formaður hennar. Tuttugu og átta bókasafnsfræðingar eiga enn eftir að skila æviágripum og hafa orðið miklar tafír og aukavinna vegna þessa. Er hér með skorað á þessa kollega að drífa sig í verkið sem á eftir að verða þeim að ýmiss konar gagni síðar meir. Því fyrr, því betra! Senda má handrit tölvuunnið, gjarnan í faxnúmer ritnefndar sem er 567-9840. Kristín H. Pétursdóttir, Landsbanka íslands. Samskrá Gegnis Gegnir var tekinn í notkun á miðju ári 1990. Gegnir er tölvukerfi Landsbókasafns íslands - Háskólabókasafns en auk þess hafa nokkur fleiri söfn beina aðild að kerfinu og mynda rit þessara safna samskrá í Gegni. Auk upplýsinga um ritaeign aðildarsafna sem nota Gegni sem heimakerfi sitt eru þar upplýsingar um safnkost fleiri safna sem hafa einvörðungu samskráraðild að kerfinu. Þessi síðastnefndu söfn eru fiest enn sem komið er eingöngu með aðild að tímaritasamskrá en nokkur einnig að samskrá um bækur og annað safnefni. Tvær prentaðar samskrár á landsvísu voru til hér á landi fyrir daga Gegnis og Landsbókasafns íslands - Háskólabókasafns. Var önnur um erlend tímarit en hin um annan erlendan ritauka íslenskra rannsóknarbókasafna. Voru bæði ritin gefín út af Landsbókasafni íslands, Safnahúsinu við Hverfisgötu. 6 Fregnir 3-4/95