Ef upp koma álitamál um hvernig bók skuli skráð, þá ræður sá skráningarháttur sem viðhafður er í gagnasafni Gegnis. Æskilegt er auk þess að bókasafn sem leggur til samskrárupplýsingar í Gegni hafi aðstöðu til að tengjast kerfinu. Samskrá um bækur er unnin í skráningardeild Landsbókasafns íslands - Háskólabókasafns í umsjá Guðrúnar Karlsdóttur (s. 5635708), forstöðumanns deildarinnar, og Þórnýjar Perrot (s. 5635722), deildarbókavarðar. Tímaritasamskrá er unnin í aðfangadeild safnsins í umsjá Þorleifs Jónssonar (s. 5635739), forstöðumanns deildar, og Helgu Kristínar Gunnarsdóttur (s. 5635755), sérfræðings í tímaritahaldi. Söfn sem þegar hafa aðild að samskrám geta sent þessum fjórum aðilum gögn vegna samskráningar. Söfn sem ekki hafa samskráraðild en hyggja á þátttöku snúi sér til forstöðumanna viðkomandi deilda til að fá frekari upplýsingar. Guðrún Karlsdóttir, Landsbókasafni íslands - Háskólabókasafni. 90 ára afmæli Bókasafn Suður-Þingeyinga á Húsavík verður 90 ára 1. nóvember. I tilefni afmælisins verður haldið lestrarrall og bókmenntakynningar verða í nóvembermánuði. Jón S Baldvinsson, Bókasafni Suður-Þingeyinga. 8 Fregnir 3-4/95