Alþjóðleg samskipti bókavarða í framhaldi af umræðum í stjórn Bókavarðafélags íslands um samskipti við útlönd urðu fjörug skoðanaskipti milli bókavarða um þau mál, m.a. á Skruddu og á fimmtudagsfundi á Hótel Borg í október. Er fagnaðarefni hversu margir hafa áhuga á þessum málaflokki og því er haldinn fundur 14. nóvember þar sem lagt verður á ráðin um framhaldið. Segja má að nú sé tímabært að taka á þessum málum af nokkuð meiri alvöru en áður með hliðsjón af þeim miklu breytingum sem hafa orðið og eru að verða á stöðu Islands meðal þjóða heims og þeirri staðreynd að nýjar leiðir hafa opnast m.a með evrópska efnahagssvæðinu. Norrænt samstarf er að breytast og gluggar að opnast til margra átta með nýjum tækifærum. Jafnframt er gleðilegt að svo margir bókaverðir hafa haft möguleika á að sækja fundi og ráðstefnur erlendis. Hins vegar má gera betur sérstaklega í því að miðla þekkingu og fróðleik til annarra, og þá sérstaklega þeirra, sem heima sitja. Stjórn Bókavarðafélagsins þykir ástæða til að settur verði á fót starfshópur, sem hafi það markmið m.a. að: 1. Kortleggja tengsl íslenskra bókavarða og bókasafna við samtök, stofnanir og söfn erlendis. 2. Halda utan um og miðla upplýsingum um slík samtök og stofnanir 14 Fregnir 3-4/95