Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fregnir

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fregnir

						í

ánægjuleg og vel skipulögð. Það var einkennandi hvað allir

viðstaddir voru virkir þátttakendur. Fyrirlestrar voru

undantekningarlítið góðir, allt upp í frábærir, og frjóar umræður

spunnust um efni þeirra. Þeir verða fljótlega gefnir út af

NORDINFO

Mikið var fjallað um leiðtogahlutverkið og hvort væri yfirleitt hægt

að kenna fólki að verða góðir leiðtogar. Um það voru skiptar

skoðanir en flestir töldu að það mætti kenna fólki að verða betri

stjórnendur en það væri. Ekki voru heldur allir á einu máli um

hverjir væru best fallnir til að stjórna söfnunum,

bókasafnsfræðingar eða fólk með alls kyns annars konar

sérmenntun. Allmikið bar á þeim sjónarmiðum að

nútímastjórnendur þyrftu að vera gæddir sérstökum hæfileikum til

þess að þeir næðu góðum árangri en hefðu þeir þá hæfileika gætu

þeir haft hvaða sérmenntun sem væri. I heildina virtust

ráðstefnugestir þó mjög áhugasamir um að flnna lausn á því hvers

konar stjórnunarnám hentaði stjórnendum bókasafna, hvernig

mætti skipuleggja það og hvernig ætti að finna góð leiðtogaefni.

Á síðustu árum hefur töluverð reynsla fengist á öllum

Norðurlöndunum í því að skipuleggja nám fyrir stjórnendur

bókasafna. Námstíminn hefur verið misjafn eftir löndum og

sömuleiðis hafa kennsludagarnir verið mismargir. Norðmenn

virðast hafa náð lengst í þessu en þar hafa rúmlega 100 manns

lokið námi sem Riksbibliotektjenesten hefur skipulagt á

undanförnum árum. Námið tekur tvö ár og er kennt í mjög stuttum

lotum fyrra árið en á síðara árinu skilar fólk sjálfstæðu verkefni.

Alls er kennt í fimm vikur. Hægt er að taka próf sem er viðurkennt

af háskólakerfinu en það er ekki skylda. Af þessu námi hefur verið

mjög vel látið og á ráðstefnunni töluðu tveir bókaverðir sem höfðu

verið þátttakendur. í Svíþjóð hefur BIBSAM haft með skipulagið

að gera og tekur námið þar sex mánuði en þátttakendur hittast

aftur að ári liðnu. Rúmlega 40 manns hafa nú lokið þessu námi

Fregnir 3-4/95     19

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36