Kerfisbundin efnisorðaskrá fyrir bókasöfn Ný útgáfa af Kerjisbundinni efnisordaskrá fyrir bókasöfn mun koma út á næstunni Höfundar eru bókasafnsfræðingarnir Margrét Loftsdóttir og Þórdís T. Þórarinsdóttir. Við gerð skrárinnar er stuðst við reglur alþjóðlega staðalsins ISO 2788 1986 sem gefinn var út í þýðingu Flokkunar-nefndar árið 1991 sen\ÍST90. Markmiðið með útgáfunni er enn sem fyrr að stuðla að samræmi í notkun efnisorða við lyklun heimilda og greiða þannig fyrir samvinnu bókasafna og auðvelda notendum heimildaleitir. Fyrsta útgáfa Kerfisbundinnar efnisorðaskrár kom út sumarið 1992 og hefur verið í notkun á fjölda bókasafna. Uppbygging skrárinnar er sú sama og í fyrri útgáfu en hún hefur verið verulega aukin og endurbætt m.a í samvinnu við Borgarbókasafn, Bókasafn Landspítalans og Skólasafna-miðstöð Reykjavíkur auk bókasafna framhaldsskólanna. Aðaldreifingaraðili skrárinnar verður Þjónustumiðstöð bókasafna, Laugavegi 163, Reykjavík, s. 561 2130. Höfundar. ATVINNUMAL Félag bókasafnsfrðinga fær oft fyrirspurnir um bókasafnsfræðinga í skammtímastörf Þeir bókasafnsfræðingar í Félagi bókasafnsfræðinga sem áhuga hafa á að taka að sér skammtímaverkefni fyrir hinar ýmsu tegundir stofnana eða fyrirtækja er hér með boðið að senda nafn sitt, síma og útskriftarár og yfírlit yfir starfsreynslu til Félags bókasafnsfræðinga að Lágmúla 7, 108 Reykjavík. Þar verður 22 Fregnir 3-4/95