Alþýðublaðið - 21.08.1969, Blaðsíða 13
Ritstjóris Örn EiÓsson
e tr
iasiiie
LEVSKI - SPARTAK
Leifeur ¥ií ÍBV í Laugardal 30. égúst
□ Á þingi norræna sundldðtoga
í Ostsrtoind í sambandi yið Norð-
imkndamótið var m. a. ábvcðið, að
næsta Suind-meistaramót.... Norður-
landa skyldi fara fram á íslandi
1971. — .
□ ■ Það voru sett þrjú nor-
ræn met í frjálsum íþróttunj
kvenna á. sænska .mfiiptarámótf
inu. Britt Johansson bætti met
Ninju Fahnöes (Hansen) í
fimmtarþraut, hlaut 4549 stig.
Gamla metið var 4529. Gun
Olsson hljóp 100 na. grinda-
hlaup á 13,9 sek. Bætti met
Sirkka Norriunds, Finnlandi
um 1/10 úf sek. Loks sett.i
Anne-Marie Nenzell met í‘1500
. m. hlaupi, hljóp á 4:22,2 mín.
Gamla mefið áttí Wenche Sör-
us, Noregi, 4;29,2 mín.
í karlögreinum hljóp Bo Fors
sander 110 m. grind-á 14,0 sek.
og sænski meistarinn í stang-
arstökki, stökk 5,10 m.
□ Eins og skýrt hefur verið
frá á Íþróttasíðunni tók Helga
Gunnarsdóttir þátt í Evrópu-
móti í sundi unglinga, sem frarn
fór í Vin um miðjan mánuðinp.
Helga komst í úrslit bæði í
100 og 200 m. bringusundi og
varð 7. í báðum greinunum af
átta, sem komust í úrslit. Alls
voru.kepþéndur þrjátíu í hvorri
grein.
Tínii Helgu í 100 m. var 1:-.
23,4 sek. Sigurvegari var Rús-
sanova, Sovét, synti á 1:19,1. —
Tvær fyrstu voru sovézkar, síð-
an komu tvær austur-þýzkar, þá
ein vestur-þýzk, sjötta varð
sænsk stúlka, þá Helga. í 200
m. sigraði Russanova einnig á
2:50,5 mín. Annars voru þær
sömu í fjórum fyrstu sætunum.
Fimmta várð' belgísk stúlka,
sjötta sænsk, .Helga sjöunda og
í áttunda sseti var efnilégasta
bringusundsköna- Dána.
Frámmistaða Ifétgu Gunnars
dóttur hefur því verið með á-
gætum.
□ Það er nú ákveðið að búl-
garska ■ liðið Levski-Spartak
komi hingað til lands föstudag-
inn 29. ágúst til þess að leika
fyrri leik sinn, í Evrópukeppni
bikarliða, við lið Vestmannaey-
inga. Leikurinn fer fram laugar-
daginn 30. ágúst kl. 16 á Laug-
ardalsvellinum. Vestmannaey-
ingar eru nú að hefja auglýs-
ingaherferð vegna leiksins og
mun allt verða gert til þess að
vekja sem mesta athygli á hon-
um.
Eins og flestir vita, er þarna
um að ræða eitt alsterkasta
knattspyrnulið Evrópu og þá um
léíð veraldarinnar, en í því eru
6 eða 8 af landsliðsmönnum
Búlgara, sem keppá munu í
heimsmeistarakeppninni i Mexí-
kó. — Nokkuð hefur revnzt
erfitt að afla viðhlítandi upp-
lýsinga um liðið vegna slæmra
póstsamgangna milli íslands og
Búlgaríu, en þær munu nú á
leiðinni hingað til lands.
Eins og áður segir, fer leikur-
inn fram á Laugardalsvellinum
laugardaginn 30. ágúst og hafa
Vestmannaeyingar nú hafið æf-
ingaundirbúning sinn af fullum
krafti og munu meðal annars
leika við lið Akureyringa á Ak-
ureyri nú um helgina, en það
er jafnframt hin árlega bæja-
keppni þessara liða.
Forsala aðgöngumiða að leik
Levski-Spartak og ÍBV mun svo
hefjast þriðjudaginn 26. ágúst
við Útvegsbankann í Reykja-
vík og hefur verð aðgöngumiða
verið ákveðið kr. 150,00 i
stúku, kr. 100,00 í stæði og kr.
25,00 fyrir börn. Þetta mun
vera sama verð og var að leik
Benfica og Vals fyrir ári síðan.
Vestmannaeyingar munu fara
þess á leit til Flugfélag- íslands,
að það veiti afslátt' af fargjöld-
um í sambandi við leikinn, til
þess að sem flestir landsmenn.
fái tækifæri til að sjá þessa
snillinga knattspyrnunnar.
Síðari leikur liðanna fer svo’
fram í Sofia 1. október og fara
Vestmannaeyingar héðan áleiðis
til Búlgaríu þann 29. septem-
ber. |
ERLENDUR 56,25MJ
□ Tvö íslandsmet í frjálsuim setiti Arndís Björnsdóttir, UMSK
iJþrÓMUm voru sett' í gær. Á Mela-
vðllinuim bastaði Erlendur Valdi-
irtarss'on, IR, kringlunni 56,25 mrt
sem er 20 om. lengna en gamlla met
ið, siem HaiMgrímiur Jónsson, IBV
átti. Frdbært afrök hjá Erlendi. Þá
íslairidsmiet í spjóckasti •kv’en.na,
'kastaði 38,53 m., sem er tæpum 2
m. lenigra en gamla metið, sem
A'lda H'elgiadómir, UMSK setti ný-
lega. —
Helga kemit í órsllf
□ Víkingur og Breiðablik
léku í gærkveldi úrslitaleikinn
í II. deild. Leikurinn var háð-
ur á Laugardalsvellinum að
viðstöddum fjölda áhorfenda.
Fyrstu 20 mín. liðu án þess að
mikið markvert skeði, mikið
um þóf og skipulagslausan leik
af þeggja hálfu. Þó voru Víking
ar heldur ákveðnari, og þeir
átttu m.a. gott skot á markið á
25. mín., sem Logi Kristjáns-
son, ágætur markvörður Breiða
bliks, varði vel.
Breiðablik varð þó fyrri til
að skora. Á 28. mín varð einum
leikmanna þeirra hrint gróflega
innan vítateigs og dæmdi dóm-
arinn réttilega vítaspyrnu, sem
skorað var úr. Það sem eftir
var hálfleiksins sóttu Víking-
ar grimmt og á 40. mín. kemst
Hafliði Pétursson í dauðafæri
og á gott skot á mark, en í varn
armann og þaðan berst knött-
urinn aftur fyrir markið, en
Logi bjargaði af tánum á Haf-
liða.
Á síðustu mín. hálfleiksins
kom svo 2. mark Breiðabliks,
eins og þruma úr heiðskíru
lofti, Víkingar höfðu þá sótt
um langa hríð og bakvörður
þeirra kominn of framarlega,
löng sending fram völlinn og
hægri útherji Breiðabliks skor-
aði fram hjá markverði Vík-
ings, staðan 2:0 gaf ekki beint
rétta mynd af gangi leiksins,
en það eru mörkin sem gilda.
Víkingar komu mjög ákveðn-
ir til leiks í seinni hálfleik og
á 12. mín skoraði Jóhann
Tryggvason með skalla. Færð-
ist nú mikið fjör í leikinn og
á 15. mín. á Gunnar Gunnars-
son skot í þverslá. Á 25. mín.
jöfnuðu svo Víkingar úr væg-
ast mjög hæpinni vítaspyrnu.
Stuttu síðar er Breiðabliksleik-
manni hrint innan vítateigs,
en ekkert dæmt. Leikurinn leið
svo án þess að mark væri skor-
að og var því framlengt í 2x15
mín. Skeði fátt markvert fram-
an af, enda þreyta mjög farin
að^segja til sín hjá leikmönn-
um. Allt útlit er fyrir nýjum
leík, aðeins 1 mín. til leiksloka,
Víkingar eru í sókn og Logi <
markvörður á í höggi við einn í
leikmanna Víkings, er Víking- j
urinn fellur skyndilega og j
Hannes Sigurðsson dæmir um-
svifalaust vítaspyrnu, sem Haf-
liði Pétursson skoraði úr, Stað- I
an 3:2 og leikurinn á enda. I
Ekki óréttlát úrslit eftir gangi 1
leiksins, en sannarlega var hún I
bæpin vítaspyrnan, sem Vík- |
ingur jafnaði úr.
Bezti maðurinn í liði Breiða- I
bliks var LÓgi Kristj ánsson, |
sem varði hvað eftir annað af
mikilli snilld, annars var vörn- fj
in betri hluti liðsins.
Víkingsliðið er mjög jafnt og "
erfitt að gera upp á milli leik-1
manna, sem allir eru gæddir I
mikilli baráttugleði. Gunnar I
Gunnarsson og Jóhann Tryggva 1
son voru einna beztir, sá síðar-
nefndi mjög athyglisverður leik
maður. Dómari í leiknum var |
Hannes Sigurðsson, og voru i
honum oft mislagðar hendur í
dómumjánum. —
Albert Guðmundsson afhendir fyrirliSa Víkings sigurlaunin.
E