Alþýðublaðið - 15.09.1969, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 15.09.1969, Blaðsíða 2
2 Alþýðu'blaðið 15. septemib'er 1969 INGRiD □ Þegar Iugrid Bergman kom til Hollywood eftir 20 ára fjarveru, undraðist hún, hversu ailt væri breytt. — Ea þú hefur líka breytzt, sögðu þeir í Holly- wood, þú hefur aldrei verið svona glöð og hamingju söm. Fyrir nokkrum árum — stuttu eftir að Ingrid giftist Lars Schmidt, sagði hún, að hamingjan væri fólgin í því að hafa góða heilsu og slæmt minni. Sem betur fer hefur mér verið gefið þetta tvennt, bætti hún við. Það hefur hún líka sýnt með því að snúa til baka, — til Hollywood, sem á sínum tíma svo gott sem hrakti leikkon- una í burtu, er hún átti von á barni með ítalska leikstjór- anum Roberto Rossellini. Það sést ekki á útliti Ingrid Bergman að hún sé orðin 53 ára gömul, að vísu koma í ljós fíngerðar hrukkur kringum augun þegar hún brosir, og það gerir hún oft. Ljósbrúnt, hálf- sítt hárið, ber ekki merki þess, að það hafi verið litað, og Ingrid Bergman ásamt börnum sínum. Ingrid talar viff einn af frumsýningargestum í leikhúsinu í Los Angeles. Pia o? Lars hlusta á. hendurnar, sem venjulega koma upp um aldur konunnar, sru grannar og mjúkar. Ingrid Bergman upplifir nú, það sem hún kallar þriðju hamingjuna. „Til að vera reglu- lega hamingjusamur — verður maður að finna að einhver þarfnist manns.“ Fyrir 20 árum sór Ingrid að ekkert skyldi fá hana til að koma aftur til Hollywood, þess vegna neitaði hún að koma til kvikmyndaborgarinnar er henni var úthlutað Oscarsverð- laununum fyrir leik sinn í „Anastasia“ árið 1957. Ingrid Bergman er fjögurra barna móðir, elzt barna hennar er 'Pia Lindström, sem nú er 31 árs, dóttir sænska tann- læknisins Peter Lindström, fyrsta eiginmanns Ingrid. Síð- an eignaðist hún soninn Ro- bertino, sem er 19 ára og tví- burasysturnar Isabellu og Ing- rid, 17 ára. Víkjum nú til baka til árs- ins 1967, er Ingrid fékk upp- hringinu frá ameriska leik- stjöranum Elliot Martin, sem bauð henni aðalhlutverkið í leikritinu „More Stately Man- sions“ eftir Eugene O’Neil. —. Ingrid varð strax full áhuga, en gat ekki gefið nein ákveðin svör, því önnur tvíburadóttir hennar var ekki búin að ná sér eftir alvarlegan hryggsjúk- dóm, og var hún búin að vera rúmliggjandi í nokkur ár. Maður Ingrid, Lars, fékk hana tii að gefa samþykki sitt. „Börnin verða svo hreykin af þér, svo ég tali nú ekki um i í Ingrid Berrtmn í d?". mig,“ sagði hann. Á frumsýningunni var Ing- rid mjög taugaóstyrk. Þó mundi hún eftir að gera dálítið, sem einmitt var mjög einkenn- andi fyrir hana. Hún sendi leikstjóranum stóran blóm- vönd og skeyti, þar sem stóð: „Maðurinn minn er líka leik- stjóri og ég veit að eini mað- urinn, sem ekki er hugsað til á frumsýningu er leikstjórinn. Heillaóskir og kveðjur, Ing- rid.“ Meðan Ingrid lék fyrir fullu húsi í Los-Angeles og síðar á Broadway, sat kvikmyndafram leiðandinn, Stirling Silliphant, við skrifborð sitt í Hollywood og handlék Oscarsstyttuna, sem hann hafði fengið fyrir myndina „í hita nætur“. — Á borðinu lá handrit að kvik- myndinni „Gönguferð í vor- regni“ og allt í einu varð hon- um Ijóst, að engum hæfði að- alhlutverkið, nema Ingrid Bergjnan. RLún og engin önnur gæti leikið hlutverk miðaldrá konu, sem verður aðnjótandi stuttrar en mikillar hamingju með giftum manni (Anthony Quinn), en snýr síðan aftur til eiginmanns síns. „Við Ingrid mæltum okkur mót í hótel íbúð hennar. Ég var afskaplega taugaóstyrkur,“ segir Silliphant, og var kom- in klukkutíma fyrir áætlaðan tíma. Kl. 5 bankaði ég á dyrnar og Ingrid opnaði sjálf fyrir mér, klædd gamalli peysu og tveed- pilsi. Hún virtist mjög þreytt, en þegar hún brosti, fannst mér ég aldrei hafa séð fegurri konu. Við töluðum lengi sam- an og ég afhenti henni hand- ritið. Nokkru síðar fékk ég skeyti, þess efnis, að við hjónin vær- um boðin til herra og frú Lars Schmidt á eyju þeirra í Sænska skerjagarðinum. Silliphant og frú hans dvöld- ust í viku á skerjagarðseyjunni, án þess að Ingrid nefndi kvik- myndina á nafn. Það var ekki fyrr en við hjónin vorum að fara, að hún sagðist gjarnan vilja taka að sér hlutverkið. Orsök þess, sem Ingrid Bergman kallar sína þriðju hamingju, á ekki rætur sínar að rekja til afturhvarfs henn- ar til Hollywood og kvikmynd- anna. Það er hjónaband henn- ar og Lars Schmidt, sem hún á við. Kunnugir segja, að hún tilbiðji mann sinn. Hið fasta heimili hjónanna, er eins konar sveitasetur utan við París. Þau eiga einnig í- búð í borginni sjálfri, og Ing- rid notar íbúð sína í Róm fyr- ir börnin sín þrjú, Robertino, Ingrid og Isabellu. Einnig eiga þau hús á skerjagarðseyjunni, þar sem þau dveljast nokkra mánuði á ári. Ingrid segir, að sá staður sé hreinasta Paradís á jörð. „Ég veit að eyjan okkar stenzt ekki samanburð við eyj- una þeirra, herra og frú On- assis, segir Ingrid, þar búa eng- ir nema við og þar er engin veðursæld. Stundum koma ofsarok, svo trén rifna upp með rótum. Fyrstu fimm hjóna- bandsárin okkar var ekkert raf- magn í húsinu. Vi_ð borðuðum þess vegna alltaf við kertaljós á kvöldin, og ef mig langaði til að lesa í rúminu, þá setti ég bara á mig hatt eins og eru notaðir í námunum, með rafhlöðuljósi í skyggninu. —* Þetta var alveg skínandi gott. Nú höfum við ráðið til okk- ar kokk, ekki svo að skilja að ég geti ekki búið til mat. Ég kann það svo sannarlega. Lar3 sá fyrir því að til væri næg- ur fiskur. Og ég held að það sé ekki til sá fiskréttur sem ég kann ekki orðið að mat- reiða, — ég er alveg snilling- ur í því.“ Síðasta og ekki sízta orsökin fyrir hamingju Ingrid Berg- man er hið góða samband milli hennar og barnanna. Það voru erfiðir tímar fyrir hana, fyrst eftir að hún skildi við Lindström og síðar við Franfhald á bls. 11. /

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.