Helgarpósturinn - 10.11.1994, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 10.11.1994, Blaðsíða 28
28 MORGUNPÓSTURINN MANNLÍF FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1994 sv ÞV Titill Flytjandi 01 01 ZOMBIE THE CRANBERRIES 08 02 BANG AND BLAME R.E.M. 04 03 SECRET MADONNA 03 04 Abouta girl (Unpiugged) NIRVANA 02 05 INTERSTATE LOVE SONG STONE T. PILOTS 07 06 FAR BEHIND CANDLEBOX 05 07 FADE IN TO YOU MAZZY STAR 12 08 WITH THE LID OFF LUCAS 14 09 MY IRON LUNG RADIOHEAD 17 10 BUST BUBBLEFLIES 06 11 WHAT’S THE FREQ...? R.E.M. 19 12 MAÐUR ÁN TUNGUMÁLS BUBBI MORTHENS 09 13 CRY MYSELF BLIND PRIMALSCREAM 18 14 THE STRANGEST PARTY INXS 16 15 ENGILL KOLRASSA KRÓKR. — 16 GIRL, YOU'LL BEAWOMAN... URGE OVERKILL — 17 HERE COMES THE HOTSTEPPER INI KAMOZE 10 18 CONFIDE IN ME KYLIE MINOGUE — 19 STREAM BONG 11 20 BEERCAN BECK kraumandi undir... FEELING SO REAL SWEETJANE HIGHER AND HIGHER SPACE MOBY COWBOY JUNKIES JETBLACKJOE PRINCE írarnir í Cranberries sitja semfastast á toppi list- ans þriðju vikuna í röð. Nirvana eru ekki líklegir til að velta þeim úrsessi héðan afen R.E.M. ogMad- onna eru ekki langt undan. Þrjú ný lög korna inn á listann þessa vikuna, þar afeitt íslenskt. Níu lög sigla upp á við þessa viku, sjö lög eru á niðurleið en aðeins topplagið stendur í stað. Tveir íslenskir flytj- endur deila titlinum „Hástökkvari vikunnar“ að þessu sinni, Bubbleflies og Bubbi stökkva upp um sjö sœti. X-Domino’s listinn er valinn vikulega af hlustendum og dagskrár- gerðarmönnum X-ins. Listinn er frumfluttur á fimmtudögum kl. 16:00-18:00 og endurleikinn á laugardögum kl. 14:00-16:00. Það er Einar Örn Benediktsson sem sér um'ann! íinnur þú til öryggisleysis, núna þegar Eggert Haukdal er fallinn út af þingi? Já, það er ekki laust við að maður leiði hugann til þess tíma að við átt- um tryggan meirihluta í báðum deildum. Ég veit svei mér ekki. Vorum við eitthvað bet- ur settar þá? Skilaði það okkur einhverju? Þeir sköffuðu okkurbetri fjárhús, upphituð og með skárri salernisaðstöðu. Þeir redduðu styrkjum til að ræsta fram túnin svo fæðið skánaði. En þeir náðu ekki fram neinum grundvallar- réttindum. Sterkir sem aldrei fyrr stíga SSSól fram á sjjónarsviðið með enn eina afurðina. Blóð heitir nýjasta platan og sú sjötta í röðinni. Maður spyr eðlilega, af hverju Blóð? „Nú, það fór mikið blóð, sviti og tár í vinnslu plötunnar," segir foringinn sjálfur, Helgi Björns, sem sló öllum minni spámönnum rokksins við á sveitaballamark- aðnum í sumar, enn eina ferðina. Á meðan hinar hljómsveitirnar löptu flestar dauðann úr skel fyllti Sssól hvert félagsheimilið af öðru. Helgi fullyrðir að hann takast emsemama Helgi segir að upphaflega hafi Blóð — sem skírskotar til þess er rennur um æðar okkar og ekki síst þess sem rennur um holræsi borg- arinnar — átt að koma út í janúar á þessu ári. „Undirbúningur plöt- unnar hófst í nóvember á síðasta ári á Hótel Búðum. Við vorum ein- ir með hótelið, dreifðum okkur um herbergin og komum hljómflutn- ingsgræjunum fyrir í matsalnum. Burtséð frá því hvað það er rosalega gott að komast hjá daglega amstr- inu skilar þessi einangrun sér nú. Að vísu sitja ekki mörg lög eftir sem urðu til á Búðum, en grunnkon- septið eða andi plötunnar mótaðist þá. Andrúmsloftið á Hótel Búðum var eins og Rudolf Nuerev ballett- dansari lýsti því einhvern tíma. En honum tókst að ná bestri stjórn á líkama sínum þegar hann var bú- inn að æfa dans samfleytt í 24 tíma. Þá var hann orðinn svo örþreyttur að hann hafði ekki orku í auka- sveiflur. Dansinn varð nákvæmlega eins og hann átti að vera, hvorki of né van.“ Hver er svo þessi andi plötunnar? „Við ákváðum að vera prógressí- vari og þyngja tónlistina, leyfa okk- ur meiri krefjandi tónlist og jafn- framt að gera meiri kröfur til hlust- andans. Textarnir eru svolítið ein- tal sálarinnar. Þeir eru þeir per- sónulegustu og nærgöngulustu sem ég hef skrifað hingað til. Ég er ekki þar með að segja að þeir sé nein sjálfsævisaga, en í textunum er meira um tilfinningar og átök. Ég er að takast á við einsemdina.“ Ertu með öðrum orðum að fjalla utn einsemd popparans? „Já, að vissu leyti. Ég viðurkenni að það getur verið mjög einmanna- legt líf að vera poppari. Maður er náttúrlega slitinn úr samhengi við þetta venjubundna líf. Allar helgar þegar fjölskyldur og vinir sameinast erum við að vinna. Það koma tímabil sem maður öskrar á níu til fimm-vinnu og ábyrgð eftir klukkan fimm á dag- inn. Svo kemst maður alltaf að sömu niðurstöðu; slík vinna myndi engan veginn fullnægja manni.“ Þú virðist heldur ekki eiga neina útgönguleið, því fyrir utan tónlistina ertu leikari sem er heldur ekki nein níu til fimm-vinna? „Þetta er alit sama rnarki brennt,“ játar hann, en bætir við: „Ég get auðvitað ekki neitað því að það eru rosaleg forréttindi að fá að vinna við það sem manni finnst skemmtilegt og geta séð sér og sín- um farborða.“ Þú segist textum þínum persótm- legri. Er ástœðan ef til vill sú að þú áttirþittþriðja bartt á síðasta ári eft- ir langt hlé? Ertu nú á sama tilftnn- ingafluginu og Bubbi Morthens, Stefán Hilmarsson og Björn Jör- undur Friðbjörnsson voru eftir sömu lífsreyttslu? „Ef þú hlustar á textana færðu ekki þá mynd. Ég er ekki að mæra foreldrahlutverkið ef það er það sem þú ert að spyrja um. Þegar ég á við að textarnir séu persónulegri, er það að af því að ég er í leit að ein- hverjum sannleika. í leitinni að sannleikanum kemst maður um leið að einhverju um sjálfan sig. Maður er sífellt að hækka sársauka- mörkin. Þó það sé afstætt hvernig maður fer að því verður, hvað mig varðar, sumt að því sem mér þótti sjálfsagt einhvern tíma sársauka- fullt með aldrinum. Með auknum þroska leitar maður meira inn á við og finnur sársaukann einnig þar. Mér finnst nauðsynlegt að ögra sjálfum mér og öðrum til þess að fá fólk til að taka afstöðu. Þá á ég hvort sem er á fílósófískum nótum eða bara á einföldum performans nótum. I tónlistarbransanum og reyndar listsköpun yfirleitt, er alltof algengt að menn séu á skrifstofu- fötum. 1 forgangsröð er oftar en ekki að búa til peninga, kaupa jepp- ann, koma sér vel fyrir og þar fram eftir götunum. Til þess að búa til listaverk verður maður að taka áhættu.“ Finnst þér þú stundum á undatt þinni samtíð? „Það var til dæmis árið 1989 að mig langaði að taka rokkið niður í ræturnar og byrja á núlli. Við ákváðum að fara á svona kassagít- artúr með harmonikkur, unplugg- ed. Fórum í kjallarann heima og sömdum heila plötu, leigðum rúg- brauð og keyrðum af stað. Við spil- uðum á þrjátíu tónleikum á hverju einasta kvöldi viðs vegar um land- ið. Þetta er svona einum til tveimur árum áður en unplugged verður heitt. Ég er ekki að segja að ég hafi verið frumkvöðull. Bylgjan hefur að sjálfsögðu verið byrjuð einhvers staðar úti í heimi, en þetta var áður en unplugged komst á forsíður tón- listartímaritanna. Þetta hefur fyrst og fremst með það að gera að ég er opinn fyrir tónlistar- og tísku- straumum. Ég fylgist með að þörf.“ Þú ert að verða ttteð þeim eldri í rokkinu hér á landi, sérðu fyrir þér að statida í sömu sporutn í framtíð- inni og Mick Jagger ogfélagar eru í dag, kotnnir á sextugsaldur? „Ég vil byrja að taka það fram að rokkið er mjög ungt. Frumkvöðlar þess eru menn á borð við Elvis Presley og Jerry Lee Lewis og eitt ártal er 1956. Á sjötta áratugn- um komu Bítlarnir, Rolling Stones Diskóið lifir í Keflavík Strikið Hafnargötu 37 ★ ★★★ Drykkjumaður MORGUN- PÓSTSINS gerir enn víðreist um próvinsuna, því síðasta laugardags- kvöld brá ég mér til Keflavíkur. Þá um kvöldið var vitaskuld allt upp- tekið af prófkjöri sjálfstæðismanna, þegar Salome var felld og Árni Matt tryggði sér ráðherrastól. Hvorugt þeirra var þó á Strikinu í Keflavík, en þar var hins vegar að finna fjölmenna sveit ungra stuðn- ingsmanna Viktors B. Kjartans- sonar, sem var að fagna sigri síns manns með stæl. Strikið er óvenju- vel heppnaður staður, ekki síst þeg- ar haft er í huga að hann er illa þjáður af geðklofa. Það er nefnilega engan veginn á hreinu hvort stað- urinn er bar eða dansstaður. Salur- inn skiptist í tvennt — öðrum megin er gríðarlangur bar og hinum megin er álíka stórt dans- gólf. Á milli eru síðan borð fyrir fótfúna, en þau má reyndar finna víðar. Barinn er afskaplega vel bú- inn áfengi, — mun betur heldur en á fjölmörgum börum hér í bænum — enda má færa fyrir því rök að þarna sé gert út á fjölþjóðlega við- skiptavini. Barþjónninn fipaðist heldur ekki þó beðið væri um sér- kennilegustu drykki. Það er kannski líka ástæða til þess að nefna hvað barþjónninn, sem af- Látiö Andrés Magnússon leiða ykkur um iöandi kös baranna greiddi mig, var afar snar í snún- ingum og var ekki að Iáta viðskipta- vinina tefja sig, heldur rak mis- kunnarlaust á eftir þeim, ef þeir voru lengi að ákveða sig. Fólkið, sem sækir staðinn, er á breiðu ald- urskeiði, en flestir voru þó um 25- 35 ára gamlir. Keflvíkingar — að minnsta kosti þorri þeirra, sem sækja Strikið — hafa fyrir því að klæða sig upp fyrir kvöldið. Það, sem gerir Strikið þó óvenjulegast, er dansmenntin. I raun er Strikið nefnilega diskótek upp á gamla móðinn í bland við amerískan bar, en borðin, sem aðskilja þessa tvo heima, eru rammíslensk. Ekki svo að skilja að ekki komist annað að á Strikinu en Sister Sledge, þó þeim systrum hafi vissulega borið fyrir. Megnið af tónlistinni var úrvals- dansmúsík, allt frá hörðu teknói til Guns ‘n’ Roses. Og við þetta döns- uðu Keflvíkingar í iðandi bendu þvalra mannslíkama, enda þröng á þingi. Þó svo Strikið sé ekki ævin- týralega stór staður er samt þar að finna alls kyns stemmningar við allra hæfi. Hið eina, sem ég get í raun kvart- að undan er að það er ekki bara diskóið, sem lifir á Strikinu, heldur líka sá plagsiður að rukka gestina fyrir afnot fatageymslu og það um heilar 200 krónur. Áfengi á íslensk- um börum er of dýrt til þess að vertarnir eigi að geta rukkað fyrir jafnsjálfsagða þjónustu og geymslu

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.