MORGUNPOSTURINN FRETTIR FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994 Ef ég ætti Benz og héti Kiddi Jó Ef ég héti Kiddi Jó þá þá hefði ég verið minnst á tvö hefði ég efni á því að fá og þrjátíu. | mér bílstjóra sem héti Kiddi ííka. I Þekktir veitingamenn flktir í stórfelldan hassinnflutning byrjun mánaðarins var breskt par tekið á Keflavíkurflugvelli með 6,1 kiló af hassi innanklæða á leið frá Lúxemborg. Strax var vitað að þau væru bara burðardýr og hafa þeir Örn Ingólfsson og Sigurbjörn Þorkelsson, sem áður rak skemmti- staðinn 22, setið í gæsluvarðhaldi vegna málsins og sá síðarnefndi er enn í haldi samkvæmt heimildum blaðsins. Þess má geta að örn gat á dögunum ekki spilað með hljóm- sveitinni Inferno 5 þar sem hann sat í haldi. Þeir tveir tengdust öðru hassmáli í september ásamt Páli Konráðssyni en þá var um að ræða um 400 grömm. Tví- menningarnir hafa lengi verið grunaðir um innflutning og eins og í þessu tilfelli kemur has- sið frá Spáni. Þá er syst- ir Arnar, Hjördís Ing- ólfsdóttir, fyrrum f rekstraraðili 22 og sam- 1 býliskona Sigurbjörns, SBW en á síðasta ári var hún dæmd í fjögurra mánaða fangelsi fyrir innflutning á 2 kílóum af hassi frá Luxemborg sem einnig er talið ættað frá Spáni. Áður var Hjördís hins vegar sambýliskona Petrusar sem tekinn var í apríl 1992 með 1,3 kíló af amfetamíni á Keflavíkurflug- velli. í fíkniefnaheiminum ganga miklar sögur af hver forvígismaður- inn á Spáni er og hver hefur fjár- magnað innflutning þessa hóps, en eftir því sem best er vitað hefur ekk- ert sannast í þeim efnum... ...fær Hrafn Jökulsson og hans menn á Alþýðublaðinu fyrir að koma Guðmundi Jaka að í sam- bandi við Jókuvakann en í blað- inu í gær kemur fram að Guð- mundur J. Guðmundsson ætli ekki að ganga til liðs við Jó- hönnu Sigurðardóttur og Þjóð- vakann. Það er hlýlegt hjá krata- blaðinu að hafa karlinn í huga. ...fær Asta Ragnheiður Jóhann- esdóttir fyrir að halda bæði Jó- hönnu og Halldóri heitum. Það hafa aldrei þótt góðar tvíbökur og í öðru samhengi væri hún kölluð daðurdrós eða bara hreinlega ertistelpa (svo það sé nú ekki ver- ið að sletta). Tveir bílasalar, Guðfinnur Halldórsson og Hrafn Sturluson, hafa átt í miklu stríði undanfarnar vikur. Lögreglan hefur margoft verið kölluð til og kærurnar safuast upp Gagnkvæmar ásakanir um innbrot Hann kom hingað á laugardags- kvöldið og aftur síðdegis á sunnu- daginn með þrjá eða fjóra með sér. Þeir reyndu að bora upp aðalhurð- ina inn í húsið sem í eru fleiri fyrir- tæki. Lögreglan kom á staðinn en hann vildi ekki hlusta á hennar rök. Það endaði með því að hann réðst á hurðina og djöflaðist á henni þar til hún brotnaði. Þá var hann hand- tekinn." Þannig lýsir Óskar Guðnason, sölumaður hjá Bílasöl- unni Borg í Skeifunni, átökum sem urðu vegna deilna Guðfinns Hall- dórssonar, eiganda Bílasölu Guð- finns, og Hrafns Sturlusonar, eig- anda Borgar, sem staðið hafa yfir undanfarnar vikur. Leikurinn endurtók sig á mánu- dagskvöldið, að sögn Óskars. Hér er búið að vera allt kolvitlaust og eins og á vitleysingahæli. Það er eig- inlega ekki hægt að lýsa ástandinu öðruvísi en sem stríðsástandi." Óskar segir að margbúið sé að kæra Guðfinn fyrir innbrot, auk ofan- greindra innbrotstilrauna, og sakar Hrafn hann um að hafa stolið fax- tæki og ýmsum gögnum sem tengj- ast rekstrinum, meðal annars afsöl- um. Forsaga deilnanna er sú að Guð- finnur og Hrafn festu kaup á hús- næði í Skeifunni 6 á síðasta ári og settu þar á stofn bílasöluna Bíla- borg. Guðfinnur átti helminginn og Hrafn og eiginkona hans, Þórunn Ragnardóttir, hinn helminginn. Guðfinnur var stjórnarformaður og raunar eini maðurinn í aðalstjórn en Hrafn var framkvæmdastjóri og sá um reksturinn. Svo gerðist það í byrjun október að Guðfinnur rak Hrafn og taldi sig hafa vald til þess í krafti stjórnarformennsku sinnar. Hrafn tók ekki mark á uppsögninni Stórtenórinná 130 km hraða Kristján Jóhannsson sannreyndi að hægt er að koma Benzinum í 130. Eins og alþjóð veit er stórtenór- inn Kristján Jóhannsson mikill áhugamaður um bíla og einkum hraðskreiðar glæsikerrur. Hér á landi keyrir hann á forláta Benz- bifreið sem kostaði 18 milljónir króna enda búinn öllum hugsan- legum þægindum. Á föstudaginn síðastliðinn flaug Kristján til landsins vegna hlutverks síns í óperunni Vald örlaganna eftir Verdi sem sýnd var þá um kvöldið. Eitthvað lá stórsöngvaranum á að komast á sýninguna því lögreglan stoppaði hann á 130 kílómetra hraða á klukkustund á Reykjanes- brautinni. Lögreglan í Keflavík gaf þær upplýsingar að þeir sviptu ekki ökumenn réttindum fyrr en þeir væru komnir yfir 140 kíló- metra hraða á þeim köflum sem leyfa 90. Kristján getur því áfram keyrt Benzinn sinn og munar varla um sektina. Ómögulegt reyndist að ná í Kristján vegna atviksins en hann mun hafa staðið vel fyrir sínu um kvöldið. pj Guðfinnur Halldórsson bílasali telur fyrrum samstarfsmann sinn vera að reyna að stela af sér húsnæði sem þeir keyptu saman en tapaði dómsmáli þegar hann fór fram á að Hrafn yrði borinn út. og benti á að aðeins væri hægt að segja upp starfssamningi hans með samþykkt á hluthafafundi. Hrafn tók það til bragðs að skipta um læs- ingar þannig að Guðfinnur komst ekki inn í fyrirtækið nema á opnun- artíma. Guðfmnur lagði þá fram innsetningarbeiðni hjá Hérðas- dómi Reykjavíkur þannig að hann fengi aðgang að húsnæðinu og Hrafn yrði borinn út. Hrafn vann það mál sem Guðfinnur sætti sig engan veginn við. Hann lagði inn rekstrarleyfi Bílaborgar, lét loka símanum og reyndi að láta loka fyr- ir rafmagn og hita. Þá flutti hann starfsemi sína að Vatnsmýrarvegi þar sem Bílasala Guðfinns er til húsa. Hrafn stofnaði þá annað fyr- irtæki, Bílasöluna Borg, og rekur það í Skeifunni. Ég er búinn að svipta hann öllu því að ég er stjórnarformaður Bíla- borgar," sagði Guðfinnur í samtali við MORGUNPÓSTINN í gær. Þessi maður er að reyna að stela af fnér hálfu húsnæðinu. Ég vil að hann leigi af mér minn hluta eða kaupi hann, það er ekkert öðru- vísi." Hrafn lýsti því yfir í samtali við blaðið að hann væri tilbúinn til þess. En það verður aldrei sam- komulag í stríði nema menn setjist að samningaborði. Það hefst ekkert með sprengjuárásum." Guðfmnur vísar ásökunum um innbrot á bug og telur sig vera í full- um rétti að fara inn í húsið þrátt fyrir dóminn. Hann fullyrðir að hann eigi myndband sem sýni að Hrafn hafi reynt að brjótast inn í Bílasölu Guðfinns. Því neitar Hrafn alfarið. < Ég hef hvergi reynt að brjótast inn á ævinni," segir hann. Ef það er til á myndbandi þá langar mig mikið að sjá það." -SG