MORGUNPOSTURINN FRETTIR FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994 Halldór Viðar hefur látið gera myndband til styrktar baráttunni við alnæmi. Kostar sjálfur myndband til styrktar bar- áttunni gegn alnæmi I dag er Alþjóðlegur alnæmis- dagur og í tilefni þess verður frum- sýnt í 19:19 myndband við lagið Kevin" með hljómsveitinni Sex- menn en þetta lag heyrðist í útvarpi fyrr í vetur. Aðalsprautan í hljóm- sveitinni og sá sem hefur veg og vanda af þessu myndbandi er Hall- dór Viðar Hafsteinsson en Ingi R. Ingason sá um kvikmyndagerð. Myndbandið er gefið út til styrktar baráttunni gegn alnæmi og Halldór stendur alfarið undir kostnaðinum sem er um 300 þúsund. Af hverju ertu að eyða peningum þínum í myndband? Það er tvennt sem kemur til. í fyrsta lagi að ljúka við að gera myndband við lagið og í öðru lagi að leggja málefninu lið." í raun og veru er ekkert sem hugsanlega gæti orðið til þess að kostnaðurinn komi til baka, það er ekki greitt fyrir spil- un í sjónvarpi né heldur að mynd- bandið sé á neinn hátt auglýsing fyrir hljómsveitina Sexmenn sem er hætt störfum. Þetta er ekkert annað en hug- sjónastarfsemi, ég leitaði að vísu til Landlæknisembættisins með styrk en þeir sáu sér ekki fært að leggja peninga í gerð myndbandsins, þó þeir leggðu blessun sína yfir það. Margir hafa spurt mig í kjölfar þessa hvort ég sé hommi og/eða með eyðni en svo er ekki. En mér finnst umræðan um alnæmi ekki hafa verið eins mikil og efni standa til, hún kemur upp annars slagið en dettur þess á milli niður. Æ fleiri smitast á degi hverjum og fyllsta ástæða til að halda umræðunni op- Úr myndbandinu. Er þetta myndband sérstakt á ein- hvern hátt annan en efnið? Ja, myndbandið er erótískt sem sýnir allt sem þarf að sýna og segir allt sem þarf að segja. Það fiallar um tvíkynhneigðan eyðnismitaðan mann sem lifir mjög fjölskrúðugu tilhugalífi. Hann skemmtir sér jafnt með konum sem körlum en á kær- asta sem enginn veit um. Ég fékk gott fólk til að leika í myndbandinu en sumir voru feimnir við að taka á þessu viðfangsefni og voru hræddir um að fá stimpil." Halldór vill að endingu koma á framfæri þakklæti til Hótels Islands sem lánaði herbergi í tökurnar og Beggu á Hárgreiðslustofunni Bylgj- unni sem sá um förðun og greiðslu. Allir aðrir þáðu laun fyrir sína vinnu. JBG Æfing lögreglunnar vekur ofsahrðslu í Vesturbnum ¦ Bubbleflies trylla Akureyri Æjí rfing Löreglunnar á þriðjudags- kvöld vakti gríðarlega athygli. Æf- ingin var enda mjög viðamikil og var til dæmis allur Vesturbærinn undirlagður í blikkljósum og vegartálmum. Að- farir vikingasveit- arinnar vöktu líklega mesta athygli, mörgum eldri og ráðsettari íbúum hverfisins fannst heldur ógeðfellt að sjá flokk svartklæddra manna með svartar lambúshettur hlaupa á milli húsa með alvæpni. Urðu margir ofsahræddir og voru símalínur flestra fjölmiðla rauðglóandi þegar mest stóðá... ðú hljómsveit hérlend sem lifir hvað mest í samræmi við hin gömlu slagorð rokksins: sex, drugs & rockn'roll" eru drengirnir í Bubbl- eflies. Um síðustu helgi gerði hljómsveitin túr til Akureyrar eins og frægt er orðið og var ferðin ekki áfallalaus. Norðlensk ungmenni flykktust til að sjá þessa frægu pilta og á föstudagskvöldið voru þeir í Dynheimum og sprengdu nánast húsið og settu aðgangsmet. Þeir tóku síðan hina akureyrsku nótt með trompi og þurfti að smala mönnum saman víðs vegar að úr bænum til að taka hljóð- prufu á 1929. Þegar skammt var liðið á dansleikinn, húsið fullt og biðröð út á torg, tókst ekki betur til en svo að söngv- arinn viðkunnanlegi, PAll Banine, missti röddina þannig að það ballið styttist í annan endann. En fjörið hélt dampi. Þegar þeir sem voru spakari í stuðinu og höfðu komið sér fyrir í hljómsveitarrút- unni, enda fyrirhugað að aka suður þá um nóttina, vöknuðu á hádegi næsta dags, drógu tjöldin frá og áttu von á að sjá Tjörnina í Reykjavík þá var það Bautinn sem blasti við. Rút- an hafði sem sagt bilað og þurfti að bjarga örþreyttri áhöfriinni flugfari suður þá um kvöldið... Starfslokasamningar hjá samgönguráðuneytinu eru tíðir. Fjöldi fyrrverandi yfir- manna þar hefur fengið hina ótrúlegustu samninga sem gera það að verkum að aðrir starfsmenn sem hafa verið látnir víkja huga sér nú til hreyfings Vilja sambærilegan samning og raðuneytisstjórinn fékk Tveir fyrrverandi starfsmenn Vita- og hafnarmálastofnunar íhuga nú málsókn á hendur ríkinu til að fá sambærilega starfsloka- samninga og Ólafur Steinar Valdimarsson, fyrrverandi ráðu- neytisstjóri í samgönguráðuneyt- inu, fékk. Þetta er í ljósi nýlegra upplýsinga sem komu fram í svari Davíðs Oddssonar forsætisráðherra við fyrirspurn Svavars Gestssonar alþingismanns um starfslokasamn- inga. Þar kom fram að gerður var samningur við Ólaf Steinar sem tók gildi 1. september 1994. Samningur- inn gildir til 21. desember 1998 og felur í sér að Ólafur Steinar skrifi sögu ferða- og samgöngumála á ís- landi. Jafnframt verður hann for- maður hafnarráðs og siglingaráðs. Samkomulagið gerir ráð fyrir að auk fastra launa (samkvæmt launa- flokki 155-8) verði starfsmanninum greitt ígildi 122 eininga nefhdar- launa á mánuði og afnot af eigin bíl sem nemur 4.000 km. akstri á ári. Einnig fær hann greitt fastagjald af síma. Hann fær aðstöðu í ráðuneyt- inu til að vinna verk sín. Launaflokkur 155-8 er hæsta þrep í lægri flokki skrifstofustjóra (sem er ekki staðgengill ráðuneytisstjóra) og eru launin þar 127.343 krónur á mánuði. 122 nefndareiningar jafn- gilda 100.606 krónum á mánuði og að viðbættum bílastyrknum eru laun Ólafs Steinars samkvæmt starfslokasamningi 239.125 krónur á mánuði. Ráðuneytisstjórar fá laun samkvæmt launaflokki 173 sem jafngildir 217.034 krónum á mán- uði. Starfsmenn sem hætta vegna veikinda eiga rétt á árslaunum Samningurinn er byggður á því að Ólafur Steinar hafi orðið að hætta vegna veikinda en hann gekkst undir erfiða aðgerð í maí 1993. Samkvæmt lögum no. 38/1954 um starfslok þá eiga starfsmenn hjá ríkinu rétt á einu ári á fullum laun- um ef þeir hætta vegna veikinda. Þess samningur er því langt um- fram það, sérstaklega í ljósi þess að Pétur Einarsson: Fékk sérstaka starfslokasamninga. Ólafur Steinar Valdimarsson: Starfslokasamningur hans verður uppistaðan í kröfugerð fyrrver- andi undirmanna. Ólafur Steinar hafði notið veik- indalauna í um það bil ár þegar starfslokasamningurinn tók gildi. Annar þeirra starfsmanna sem nú íhugar rétt sínn út frá jafhræðis- reglu í ljósi framkominna upplýs- inga um starfslok Ólafs Steinars er Hilmar Hallvarðsson sem var yfir- verkstjóri hjá Hafnarmálastofnun. Hann hafði starfað í 43 ár hjá hinu opinbera og þar af 32 ár hjá Hafnar- málastjóm. Hann sagði að Ólafur Steinar hefði afhent sér uppsagnar- bréf fyrir hádegi á gamlársdag 1992. Hann hefði fengið laun í eitt ár og það sama ætti við um Sigurð Inga Kristinsson deildarstjóra (sem hafði skipunarbréf skrifstofustjóra) sem einnig var sagt upp um ára- mótin 1992/93. Þeir hafa skrifað Svavari Gestssyni bréf og íhuga báðir málsókn. Það kemur fram hjá þeim báðum að í uppsagnarbréfi þeirra var tilgreint að störf þeirra væru lögð niður en þeir telja að það sé ekki rétt. Sigurður hefur skotið máli sínu til umboðsmanns Alþing- is. Þegar maður sér svona upplýs- ingar um starfslokasamninga eins og ráðuneytisstjórinn fékk, þá spyr maður sig um jafnrétti í þjóðfélag- inu. Það er einnig spurning hvaða heimild ráðherra hefur til að gera slíka samninga," sagði Sigurður sem er viðskiptafræðingur að mennt. Langvarandi hreins- anir hjá Hafnarmála- stofnun Það liggur í augum uppi að lang- varandi erfiðleikar hafa verið í starfsmannamálum hjá Hafnar- málastofnun. Á árunum 1983 til 1986 voru gerðar þrjár umfangs- miklar úttektir á stofnuninni sem starfsmenn hafa ekki fengið að sjá og í tengslum við þær hafnar víð- tækar breytingar á mannahaldi sem enn standa yfir án þess að um fækk- un starfsmanna væri að ræða. Breytingarnar sem samgöngu- ráðuneytið og hafnarmálastjóri stóðu fyrir beindist að 14 manna hópi allra verk- og tæknifræðinga, skrifstofustjóra, forstöðumanns áhaldahúss og yfirverkstjóra. Úr þessum 14 manna hópi hafa 7 verið þvingaðir til að hætta störfum, ver- ið reknir eða stöður þeirra lagðar niður. Aðrir starfsmenn voru ráðn- ir í þeirra stað og enginn samdrátt- ur í starfsmannafjölda átti sér stað. I flestum tilfellum var um að ræða þá starfsmenn sem áttu lengstan starfsaldur. Eins og áður sagði voru gerðar viðamiklar úttektir á Hafnarmála- stofnun og við skoðun sína á mál- inu fékk umboðsmaður Alþingis þær í hendur. Hann taldi að í þeim væri fjallað um menn á persónuleg- an hátt og sagði að hinu opinbera væri skylt að veita viðkomandi starfsmönnum aðgang að þeim. Þetta hundsaði ráðuneytið alveg og hefur neitað aðgang að þeim, þrátt fyrir tilmæli lögmanna og umboðs- manns um það. Fyrrverandi hafnarmálastjóri, Aðalsteinn Júlíusson, hætti störfum fyrri hluta árs 1985. Fékk hann full laun fram að eftirlauna- aldri árið 1987. Var gerður við hann samningur um að eftirlaun yrðu bætt með verktakagreiðslum svo full laun, og þar í föst yfirvinna, héldist fram að 70 ára aldri en Aðal- steinn verður sjötugur á næsta ári. Ríflegir starfslokasamningar hafa sést oftar í ráðuneytinu eins og kemur fram í svarinu til Svavars en þar sést að Pétur Einarsson, fyrr- verandi flugmálastjóri, hélt fullum launum í tvö ár eftir að hann hætti að viðbættum 40 yfirvinnustund- um á mánuði. Héraðsdómur dæmdi starfsmanni þrjár milljónir auk máls- kostnaðar Fyrrverandi yfirverkfræðingur Hafnarmálastofnunar, Daníel Gestsson, var gert að hætta störf- um um áramótin 1989/90. Fékk hann föst laun án fastrar yfirvinnu Hilmar Hallvarðsson: Ráðuneytisstjórinn afhenti honum uppsagnar- bréf á gamlársdag eftir 43 ára starf hjá hinu opinbera. út árið 1990. Hann leitaði tvisvar álits umboðsmanns Alþingis á meðferðinni á sér og taldi umboðs- maður í bæði skiptin að brotið hefði verið á honum. I kjölfar þess stóð stéttarfélag verkfræðinga að baki málaferlum Daníels á hendur ríkinu. Voru honum dæmdar 3 milljónir króna í bætur í Héraðs- dómi Reykjavíkur 30. nóvember 1992. Auk þess vann hann hálfa milljón króna í málskostnað. Ákvað ráðuneytið að áfrýja málinu til Hæstaréttar og er dóms að vænta þar á miðju næsta ári. Það kom fram hjá Daníel að þrátt fyrir tvö álit umboðsmanns og dóms undir- réttar þá hefur samgönguráðuneyt- ið og Hafnarmálastofhun ekki í eitt einasta skipti leitað eftir viðræðum við hann. Gera má ráð fyrir að málarekstur þeirra Hilmars og Sig- urðar verði á svipuðum nótum. SMJ Svavar Gestsson ætlar að fylgja eftir fyrirspurn sinni um starfslokasamninga: Neyðarréttur sem hefur veríð misnotaður Fólk er auðvitað gapandi hlessa á þessum ægilegu forréttindum sem þarna virðast þrífast," sagði Svavar Gestsson alþingismaður sem nýlega spurðist fyrir um starfs- lokasamninga hjá hinu opinbera. Hann segist hafa fengið .óvenju mikil viðbrögð við því úti í þjóðfe- laginu. Sagði Svavar að um margra ára skeið hafi það tíðkast þegar ráð- herrar hefðu talið nauðsynlegt að gera breytingar á stjórnunarstörf- um æðstu embætta að þeir gerðu svona starfslokasamninga. Svavar sagðist hafa gert tvo svona samn- inga í sinni tíð sem menntamála- ráðherra. Annars vegar var það í máli Sturlu Kristjánssonar, fræðslustjóra í Norðurlandskjör- dæmi eystra, sem hafði verið rek- inn, hins vegar í máli skólastjóra nokkurs. Hann telur sig hins vegar hafa gert þá í fullum rétti. En þetta var bara neyðarréttur sem ráðherrar gátu gripið til. Hann hefur verið misnotaður með því að láta tiltekna aðila hafa gríðarlega hagstæða samninga til að koma þeim til hliðar og ráða aðra menn. Það er umhugsunarefni," sagði Svavar, sem segist ekki vera búinn að ákveða framhaldið en aug- ljóslega þurfi þó að setja um þetta reglur. Svavar Gestsson: Hann hefur verið misnotaður með því að láta tiltekna aðila hafa gríðarlega hag- stæða samninga til að koma þeim til hliðar og ráða aðra menn."