Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994

MORGUNPOSTURINN FRETTIR

11

;ára manna og mál þeirra íyrnast

Mexíkó

fS| fB£ 9r 'Wt m

Óþekktui dvalarstaðui

ólfur hlaut aldrei dóm þar sem

hann fluttist til Suður-Afríku. Þeir

ólust upp á Sauðárkróki og eiga

báðir skrautlegan feril að baki í

fíkniefnamálum. Eyjólfur fór til

náms í Brasilíu og námið beindist

að því er virðist eingöngu að því að

læra að framleiða amfetamín. Eyj-

ólfi var gefið að sök að framleiða

arnfetámín í'íbúð'sinni'að Fálka-

götu frá jólum 1986 til jóla 1987 og

framleiða á þeim tíma minnst 700

grömm af efninu. Það athyglisverða

í málinu er að Róbert Glad átti að

hafa fengið 200 grömm af hreinu

efni til sölu og eigín neyslu þótt

dómurinn hafi einungis náð til 70

gramma. Afgangurinn, nærri hálft

kíló, fór að mestu í eigin neyslu en

Eyjólfur mun hafa stundað tilraun-

ir á sjálfum sér með efhið og notað

Mogadon til mótvægis við amfet-

amínið.

Það var þann 10. desember 1987

sem lögreglan ruddist inn til Eyjólfs

á Fálkagötunni en einn lögreglu-

mannanna segir að þeir hafi verið

heppnir að drepa sig ekki við að-

gerðina. Við framleiðsluna eru not-

uð mörg eiturefhi sem hefðu getað

valdið dauða ef ekki var rétt með

farið. Því var strax fenginn efha-

fræðingur frá Háskólanum til þess

að skoða tækin og efnin. Fram-

leiðsla efhisins er afar fiókin og

varla á færi annarra en sérfróðra.

Eins og áður segir kom málið

upp í desember 1987 en dómur í

undirrétti féll ekki fyrr en 11. maí

1993 eða nærri sex árum síðar.

Vegna dráttar á málinu sem er

„með öllu óviðkomandi og órétt-

lætanlegur" eins og stendur í

dómnum, auk þess sem vitnað er í

mannréttindaákvæði og fleira, fékk

Róbert einungis þriggja mánaða

dóm óskilorðsbundinn en Eyjólfur

hefur engan dóm hlotið þar sem

hann flúði land og dvelst nú í Suð-

ur-Afríku.

Geysisslysið á Vatnajökli

1950

ingunnn

dæmdurfyrir

afglöpog

ftýdiland

Þann 14. september 1950 var

Geysir, millilandaflugvél Loftleiða,

á leið frá Luxemborg. Engir farþeg-

ar voru um borð en sex manna

áhöfn. Þrátt fyrir vont veður var

eðlilegt loftskeytasamband við vél-

ina og þegar síðast fréttist af henni

töldu þeir sig vera að nálgast

ströndina. Fljótlega varð ljóst að

eitthvað hefði hent vélina, leitar-

flugvélar og flokkar voru sendir af

stað. I þrjá heila daga var leitað að

vélinni án árangurs og því talin af,

en það var loks þann 19. sem veikt

neyðarmerki heyrðist frá vélinni

þar sem staðarákvörðun var sögð

ókunn en þau væru á jökli. Björg-

unarleiðangur var sendur á jökul-

inn og Dakota-flugvél á skíðum frá

ameríska hernum á Grænlandi

lenti á jöldinum en komst ekki aft-

ur á loft. Björgunarleiðangurinn

kom þann 21. að áhöfninni og degi

síðar var komið til Reykjavíkur við

mikinn fögnuð. Magnús Guð-

mundsson flugstjóri sagði að þeir

hefðu talið sig í 8000 fetum á réttri

leið með stefnu á Vestmannaeyj-

um. „Ég get ekki fyllilega gert mér

ljóst, hvernig það gerðist, en ég

held að hún hafi íyrst rekið niður

vinstri vænginn, síðan tekið hátt

loftkast, rekið næst niður skrúfurn-

ar og steypst yfir sig og runnið eftir

jöklinum á hvolfi unz hún stað-

næmdist." Guðmundur Sívertsen

var siglingafræðingur og ljóst var

að hann hafði gefið upp kolranga

staðsetningu. Hann var því ákærð-

ur fyrir, afglöp í starfi og viður-

kenndi að hann og fleiri hefðu ver-

ið við skál. Fyrir afglöp sín hlaut

hann dóm en fiutti áður til Banda-

ríkjanna þar sem hann starfaði sem

loftskeytamaður á stórum olíuskip-

um. Guðmundur kom ekki til

landsins fyrr en málið var fyrnt en

hann er nú látinn.

Garðar Garðarsson Á

SKRÁ INTERPOL

„Glæpamað-

uráheims-

mælikvarða"

Strokufangi og stórþjófur.

Einn af okkar þekktustu glæpa-

mönnum og einn fárra Islendinga

sem alþjóðalögreglan hefur sér-

staka skrá um er Garðar Garðars-

son. Hann var nokkuð í fréttum

fyrir ári síðan en í árslok 1993 var

hann handtekinn fyrir vopnað rán

við Helsingjaeyri. Hann var settur í

gæsluvarðhald en strauk þaðan

tveimur dögum fyrir jól og flúði til

Kaupmannahafhar. Daginn fyrir

gamlársdag rændi hann Danska

bankann við Stóru Kóngsinsgötu í

miðborginni, vopnaður hálfsjálf-

•virkri skammbyssu, mjög öflugri og

mildu öflugri en lögreglan hefur yf-

ir að ráða. Hann hafði 265 þúsund

krónur upp úr krafsinu en átti þá

aðeins í fimm mínútur eða þar til

lögreglan handtók hann á flótta.

Garðar er aðeins 29 ára gamall en

á langan brotaferil að baki. Þegar

Garðar flutti síðast út 1992 hafði

hann hlotið 17 refsidóma og dæmd-

ur samtals í 12 ára fangelsi á 10 ár-

um, þar af tveggja ára dóm í Nord-

horn í Þýskalandi fyrir fíkniefna-

brot. Síðast var hann dæmdur hér á

landi fyrir þátttöku í Stóra gullrán-

inu í skartgripaverslun Jóns Sig-

mundssonar þar sem  milljóna

verðmætum var stolið. Garðar hef-

ur minnst í tvígang flúið af Litla-

Hrauni og er þekktur fyrir að játa

aldrei neitt, hverjar svo sem sann-

anir gegn honum eru. Einn lög-

reglumanna sem þekkja vel til hans

lýsir honum þannig. „Garðar er

maður á heimsmælikvarða —

landsliðsmaður eins og við segjum

— og sjálfsagt einh af okkar hörð-

ustu þjófum fyrr og síðar."

Salome Bára Arnbjörns-

dóttir mendel

„Mafíudrottn-

ing" flutt í

járnumyfír

þverBanda-

ríkin

Fallið írá keeru og henni dæmdar

bætur.

Salome Bára Arnbjörnsdóttir

Mendel var grunuð um stórfelldan

fíkniefnainnflutning í lok áttunda

áratugarins. Hún flúði land en var

flutt til landsins með valdi fimm ár-

um síðar, fallið var frá kæru og

henni dæmdar skaðabætur.

Salome Bára var handtekin af

FBI á heimili sínu í Kaliforníu á

skírdag, 19. apríl 1984. Henni var

haldið í fangelsi þar í fimm daga en

síðan flutt í fylgd rveggja lögreglu-

manna til Chicago og áfram þaðan

með íslenskri flugvél til Keflavíkur.

Meðferðin var vægast sagt ekki góð

enda höfðu íslensk stjórvöld gefið

þær lýsingar að um harðsvíraða

„mafíudrottningu" væri að ræða.

Hingað kom hún svo árla morguns

25. apríl 1984 og sett í fanga-

geymslu. Dómsrannsókn lauk 11.

maí 1984 og þann 16. sama mánaðar

var málið sent ríkissaksóknara sem

ákvað þann 28. maí að gefa ekki út

ákæru á hendur Salome þar sefn

engin lagarök væru fyrir hendi, auk

þess sem málið væri fyrnt. Hún

reyndi strax að fá vegabréfsáritun

aftur til eiginmanns síns í Kaliforn-

íu en var synjað þrátt fyrir ítrekaðar

tilraunir. Hún er nú búsett í Kan-

ada og er skilin við manninn.

Henni vórii dærndar 600.000 krón-

ur í miskabætur árið 1989 með

hæstu leyfilegum vöxtum.

Tildrög málsins eru þau að á ár-

inu 1977 kom upp „eitt umfangs-

mesta og stærsta fíkniefhamál sem

komið hafði til rannsóknar hér á

landi," eins og segir í dómnum.

Fjölmargir voru hnepptir í gæslu-

varðhald og vitni báru á Salome að

hún hefði staðið fyrir innflutningi á

5-6 kílóum af hassi, 500 grömmum

af hassolíu auk neyslu og sölu á am-

fetamíni frá sumri 1977 til öndverðs

árs 1979. Ekki tókst að yfirheyra

hana vegna þess að hún flúði land

20. maí 1979 eða fljótlega eftir að

fyrstu aðilar voru settir í gæslu-

varðhald. Þann 18. júní 1979 var

kveðinn upp handtökuúrskurður

og degi síðar farið fram á framsal

frá Bandaríkjunum enda talið

sannað að hún ætti „mestan þátt í

smygli þeirra fíknefha sem fram

koma í kæru."

Salome bjó fyrst í Flórída en síð-

an víðs vegar um Bandaríkin en var

loks handtekin 3. nóvember 1981.

Hún mótmælti og stóð í málaferl-

um um lögmæti þess, allt þar til

hún var framseld í apríl 1984. Málið

kom fyrir öll dómstig nema Hæsta-

rétt sem neitaðí að taka mál hennar

fyrir. Á öllum dómstigum var nið-

urstaðan að framsal væri heimilt.

Hér heima var reynt að fá framsals-

kröfuna afturkallaða en hætt við og

í dómi voru handtökuaðgerðir sem

fram fóru eftir 14. september 1983

dæmdar löglausar.

ÓLAFUR ÞÓR ÞÓRHALLSSON

1 STÓRA KÓKAlNMÁLINU

Flúði lengsta

dóminn

Vardæmdurifjögurra árafang-

efe/.

Sá landflótta Islendingur sem á

þyngstan dómá bákiiiu ér Ólafur

Þór Þórhallsson viðskiptafræð-

ingur sem dæmdur var í stóra

kókaínmálinu ásamt Garðari

Bragasyni sem dæmdur var í

þriggja og hálfs árs fangelsi og Kára

Elíassyni sem dæmdur var í tvö og

hálft ár.

Ólafur og Garðar voru dæmdir

fyrir innflutning á nærri einu kílói

af tiltölulega hreinu kókaíni, með-

höndlun þess og dreifingu. Efnið

var keypt í einu lagi í Bandaríkjun-

um í árslok 1988 og flutt í varadekki

bíls sem keyptur var ytra og fluttur

hingað með skipi. Þegar lögreglan

handtók þá í maí 1989 fundust 414

grömm af efninu. Þremenningarnir

þekktust frá bernsku og ólafur og

Gar$5ar ráku saman bílaleigu GÓ. 1

dóminum segir að Ólafur hafi átt

„úrslitaþátt í að skipuleggja verkn-

aðinn og tengja saman hlutverk"

hinna tveggja. Kári viðurkenndi

sinn þátt sem einkum varðaði

dreifingu á efhinu mjög fljótlega og

Garðar eftir 30 daga gæsluvarðhald.

Ólafur hins vegar sat í gæsluvarð-

haldi í 210 daga og neitaði allan

tímann. Hann var dæmdur í fjög-

urra og hálfs árs fangelsi í undirrétti

en áfrýjaði til Hæstaréttar þar sem

dómurinn var mildaður um hálft ár

í mars 1991. Hann flýði til útlanda

og hefur dvalist á ýmsum stöðum í

heiminum en málið verður fyrnt

árið 2001. Inn í þetta mál flæktust

fjölmargir háskólaborgarar ásamt

yfirmönnum og starfsmönnum

Stöðvar 2 svo eitthvað sé nefht en

þáttur þeirra var dæmdur sérstak-

lega.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32