Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Helgarpósturinn

og  
S M Þ M F F L
. . . . 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Helgarpósturinn

						FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994

MORGUNPOSTURINN FRETTIR

15

i

Islendingar eru 20 árum á eftir nágrannaþjóðunum í meðferð á sorpi. Um 90 prósent þess

sorps sem barst í Sorpu í fyrra var urðað í jörðu án flokkunar. Þau fyrirtæki sem starfa að

endurvinnslu

segja einokunar-

risann vinna

markvisst á móti

sér og markmið

Sorpu sé einungis

að koma sem

mestu rusli í jörð-

ina án þess að

fólk taki eftir því.

Fulltrúar austur-

ríska fyrirtækisins

Rupert Hofer

hyggjast gjörbylta

sorpvinnslu hér-

lendis.

„Leiktjöld lýrir gamal-

dags öskuhauga"

Sorpa   hefur   verið   gagnrýnd

harðlega allt frá því að fyrirtækið

j hóf starfsemi sína í maí 1991.

Fyrirtækið er í eign sveitarfélag-

anna á höfuðborgarsvæðinu og fer

stærð eignarhluta hvers og eins eft-

ir íbúafjölda þeirra.

Deilt var frá upphafi á fyrirhug-

aða meðferð fyrirtækisins á úrgangi

og bent á að Sorpa væri í raun ein-

ungis yfírbyggðir öskuhaugar, sem

hafa ekkert með nútíma endur-

vinnslu á sorpi að gera. Þá var

gagnrýnt að stofnfé Sorpu, 115

miiljónir króna, væri allt of lítið og

fjármagnskostnaður vegna nauð-

synlegra fjárfestinga myndi kafsigla

fyrirtækið innan fárra ára og koma

í veg fyrir framþróun þess á sviði

endurnýtingar á meðan það lifði.

Skuldir Sorpu í dag nema tæpum

milljarði króna.

¦ Stofhun Sorpu var kynnt sem

stórt skref fram á við í meðferð úr-

gangs á höfuðborgarsvæðinu og að

tilkoma fyrirtækisins boðaði „tíma-

mót í umhverfismálum" hérlendis

eins og Ögmundur Einarsson,

framkvæmdastjóri Sorpu, komst að

orði í fyrstu árskýrslu fyrirtækisins.

Staðreyndin er aftur á móti sú að á

árinu 1993 fóru aðeins 11 prósent

þess úrgangs sem barst Sorpu til

endurnýtingar eða 9.105 tonn og

var það að mestu forflokkað sorp

sem barst móttökustöð fyrirtækis-

ins í Gufunesi. Samtals fóru 82.726

tonn af sorpi í gegnum stöðina í

fyrra.

Stærstur hluti þess var timbur

sem kurlað var í Sorpu og notað til

brennslu í Járnblendiverksmiðj-

unni á Grundartanga. Mikið af

timbrinu sem berst til Sorpu er

heillegt og vel nýtanlegt til bygg-

ingaframkvæmda og í smáiðnaði

en enginn áhugi virðist vera innan

Sorpu fyrir þessum nýtingarmögu-

leika.

Forflokkaður pappír og pappi

Stsem berst Sorpu er fluttur til Sví-

þjóðar, þar sem meðal annars er

unnið úr honum sellófíber, en það

er dýrt hráefni sem nýtist til margs

konar iðnframleiðslu. Endur-

vinnslufyrirtækið Gámur í Hafnar-

firði býr yfir vélakosti til að endur-

vinna sellófíber úr pappír en Sorpa

hefur ekki sinnt óskum forráða-

manna fyrirtækisins um að láta því

í té hráefni án nokkurra haldbærra

útskýringa, að sögn þeirra. Þessum

ásökunum mótmælir fram-

kvæmdastjóri Sorpu og segir engar

slíkar óskir hafa borist fyrirtækinu.

Bílflök og stærri málmhlutir sem

gætu valdið skemmdum á böggun-

arpressu Sorpu eru fluttir í Furu hf.

til böggunar og útflutnings.

Raunveruleg endurvinnsla á veg-

um Sorpu á liðnu ári var því engin,

að undanskilinni tilraun í fram-

leiðslu á lífrænum jarðvegi og

flokkun úrgangsefna mjög tak-

mörkuð.

Móttökustöðin er

flöskuháls

Stærstur hluti sorps sem berst til

stöðvarinnar fer óflokkað í þró og

þaðan með færibandi í pressu sem

þrýstir því saman í bagga til urðun-

ar. Þær þjóðir sem taka umhverfis-

mál sín alvarlega eru löngu hættar

að bagga og urða sorp með þessum

hætti og hvort sem litið er til

Bandaríkjanna eða Evrópu er

heimilissorp nær undantekningar-

laust flokkað að einhverju leyti inn-

an veggja heimilanna.

Dr. Einar Valur Ingimundar-

son efnaverkfræðingur er einn

þeirra sem telja meðferð Sorpu á

úrgangi algjörlega óviðunandi og

segir hana ekki eiga neitt skylt við

raunverulega endurvinnslu.

Allt frá því fyrirtækið var sett á

stofn, og jafnvel fyrir þann tíma,

gagnrýndi hann harðlega að ekki

væri gengið út frá því í rekstri

Sorpu að heimilissorp væri flokkað.

Lét hann í ljós þá skoðun sína að ef

alvöru endurnýting ætti að eiga sér

stað á vegum Sorpu væri óhugsandi

að reka móttökustöðina á einu

gólfi. Aðstandendur Sorpu stóðu í

þeirri trú að gámastaðirnir kæmu

til með að sjá um forflokkunina og

einnig að fyrirtækin í atvinnulífinu

skiluðu sorpinu flokkuðu en þær

spár rættust ekki. Einungis 16.110

tonn af sorpi bárust gámastöðvun-

um í fyrra en forsvarsmenn Sorpu

hafa meðvitað reynt að draga úr

notkun þeirra í sparnaðarskyni

með takmörkuðum opnunartíma

og hærri gjaldtöku. Markmið fyrir-

tækisins virðist því helst vera að

urða sem mest af sorpi og gera það

með sem minnstum tilkostnaði.

Fornleífar

framtíðarinnar

Einar telur böggun á óflokkuð-

um úrgangi sem berst Sorpu tíma-

skekkju en baggarnir eru grafnir í

jörðu á Álfsnesi í Kjós.

„Lykilefnin fyrir rotnun á úr-

gangi eru súrefni og vatn," segir

hann. „Ef sorp er þjappað og press-

að, hægir á rotinu og það rotnar

nánast aldrei. Menn eru að grafa sig

niður á svona hauga erlendis eftir

50 ár og finna pulsur sem eru ekki

rotnaðar. Hérlendis er kaldara en

víðast annars staðar svo menn eru

að undirbúa fornleifarannsóknir

25. aldarinnar með bögguninni."

Einar segir ef að ef rétt væri að

málum staðið í Sorpu væri hægt að

nýta að minnsta kosti 50 prósent af

heimilissorpinu, sem fer óflokkað í

gegnum fyrirtækið, í jarðvegsgerð.

Við það mundu urðunarsvæðin

sparast og auk þess mætti hafa

ágætistekjur af sölu á lífrænum

jarðvegi. „Við hönnun Sorpu var

ekki útbúin nein aðstaða til að

framkvæma þetta og fyrirtækið

hefði lent í óþægilegum málum

gagnvart nágrönnum," segir hann.

„Það sem þess í stað er stílað inn á

er að sorpið hafi stutta viðkomu í

stöðinni svo það fari ekki að anga.

Allt er gert til að þetta líti sem best

út á yfirborðinu en Sorpa er ekkert

annað en leiktjöld fyrir gamaldags

öskuhauga."

Þau einkafyrirtæki sem reynt

hafa að hasla sér völl á sviði sorp-

flokkunar og endurvinnslu hér-

lendis á undanförnum árum segja

Dr. Einar Valur

Ingimundarson

efnafræðingur

segir meðferð

I Sorpu á úrgangi

algjörlega óvið-

unandi og hún

eigi ekkert skylt

við endurvinnslu.

m Guðjón          Þor-

björnsson, for-

stjóri Gáms' og

fulltrúi Rupert

Hofer á íslandi.

Austuríska fyrir-

tækið segist nú

þegar hafa náð

fram 70 prósenta

endurvinnsluhlutfalli.

Ögmundur Ein-

arsson, fram-

kvæmdastjóri

Sorpu, boðaði

tímamót í um-

h verf ismálum

með tilkomu fyr-

irtækisins.

Hann situr undir

ámæli fyrir skort á samstarfsvilja

og Sorpa er sökuð um að vinna

markvisst gegn flokkun úrgangs-

efna og framgangi endurvinnslu-

fyrirtækja.

Sorpu vinna markvisst gegn tilvist

sinni með gjaldskrárbreytingum og

ekki sýna neinn samstarfsáhuga.

Rekstrargrundvöllur þeirra byggist

í flestum tilfellum á að veita mót-

töku óflokkuðu sorpi fyrir lægra

gjald en Sorpa. Þau flokka það síð-

an niður og skila því í Sorpu en

skilagjald á flokkuðum úrgangi er

töluvert lægra en á óflokkuðu

sorpi.

Gegn flokkun og

endurvinnslu

Guðjón   Þorbjörnsson er for-

stjóri Gáms en fyrirtækið sérhæfir

sig í móttöku og flokkun á iðnaðar-

sorpi.

„Við skilum forflokkuðum úr-

gangi í Sorpu sem tekur á móti

honum og urðar hann," segir hann.

„Maður spyr sjálfan sig óhjákvæmi-

lega til hvers í helvítinu maður er

að flokka. Við værum búnir að setja

upp frekari vélakost hérna ef

vinnuumhverfið væri ekki svona

óöruggt vegna Sorpu. Það sem við

höfum gert til að reyna að bæta

okkar stöðu höfum við yfirleitt

fengið í bakið aftur vegna við-

bragða Sorpu."

Hreinsistöðin er fyrirtæki sem

sérhæfir sig í að endurvinna filmur

úr framköllunarvökva og minnka

umfang afgangsefnanna um 85 pró-

sent. Kristinn Ragnarsson, for-

stjóri Hreinsistöðvarinnar, er

myrkur í máli varðandi Sorpu og

Ögmund Einarsson, framkvæmda-

stjóra fyrirtækisins. „Sorpa er alveg

ótrúiegt fyrirtæki," segir hann. „-

Þetta er bara tímaskekkja í þjóðfé-

laginu. Ögmundur kærir sig ekki

um neitt samstarf og hann er kóng-

ur þarna. Við höfum misst um

helming viðskipta okkar vegna þess

að Sorpa hefur lækkað gjaldskrána

fyrir móttöku á framköllunarvökva

um 68 prósent og það á forsendum

sem er alveg óljóst hvort standi. Á

sama tíma hafa aðrir liðir í gjald-

skrá Sorpu hækkað."

Hugmynd að

framtiðarlausn

Guðjón Þorbjörnsson og Jónas

Hagan Guðmundsson eru fulltrú-

ar austuríska fyrirtækisins Rupert

Hofer sem sagt var í fjölmiðlum

fyrir skömmu að hefði áhuga á að

kaupa Sorpu.

Jónas segir þennan fréttaflutning

ekki alls kostar rétttan.

„Rupert Hofer þykir fysilegur

kostur að setja upp flokkunar- og

endurvinnslustöðvar hérlendis en

ekki endilega að kaupa Sorpu."

En er Sorpa góð fjárfesting að

hans mati í ljósi þess hve fjár-

magnskostnaður fyrirtækisins er

gífurlegur?

„Þetta er að mörgu leyti flókin

fjárfesting. Skuldir Sorpu eru miklu

meiri en eignirnar. Einnig er þetta

samlagsfyrirtæki þannig að ekki er

hægt að kaupa það nema því verði

breytt í hlutafélag. Fyrirtækið mun

hefja hér starfsemi hvernig sem við-

ræðurnar um Sorpu fara.

Ég er þeirrar skoðunar að þetta

gæti orðið allra hagur. Rupert Hof-

er er með fjármagnið en það er

geysilegt fjármagn sem þarf að

leggja í þetta og það væri hagstætt

fyrir Islendinga í stað þess að vera

að fá alltáf lánað fyrir öllu sem er

gert hérna."

Jónas segir Rubert Hofer bjóða

upp á framtíðarlausn í endur-

vinnslu fyrir Islendinga.

„Ég myndi segja að þetta yrði

mesta umhverfisátak sem haft hafi

verið í frammi hér á landi af því að

þá förum við loksins að hugsa um

hvað við gerum við allan þennan

úrgang. Við mundum koílsteypa

þeirri starfsemi sem Sorpa rekur í

dag. Endurvinnsluhlutfallið hjá

Rupert Hofer í Austurríki er yfir 70

prósent og það yrði með líku sniði

hérlendis. Þeir eru að reyna að

komast upp í meira en 90 prósenta

endurnýtingu úti og um leið og það

tekst mundum við njóta góðs af því

hér."

Endurvinnsla

Ögmundur Einarsson, fram-

kvæmdastjóri Sorpu, lét þau um-

mæli falla í sjónvarpi að fulltrúar

Rubert Hofer hafi ekki haft sam-

band við sig í tengslum við áhuga

sinn á Sorpu. Jónas segir þetta ekki

rétt.

Óflokkað sorp rennur í gegnum

Sorpu og er eingöngu sett í

bagga áður en það er urðað.

Baggarnir koma í veg fyrir eðli-

lega rotnun og sorpið varðveitist

óskemmt í hundruðir ára.

„Guðjón Þorbjörnsson óskaði

eftir fundi við Ögmund en hann sá

ekki ástæðu til að hitta okkur og

segir núna að við séum að reyna að

fara á bakvið við hann. Við reynd-

um síðan að fá að kynna hugmynd-

ir okkar á fyrsta fundi stjórnar

Sorpu og hringdum í Kjartan

Jónsson stjórnarmeðlim en þeir

sáu ekki ástæðu til að kalla okkur á

sinn fund."

Jónas segir Rupert Hofer ekki

setja afgangssorp, sem er urðað, í

bagga heldur gangi fyrirtækið frá

því með þeim hætti að súrefni hafi

að því greiðan aðgang. Afurðir til

endurvinnslu eru aftur á móti

flokkaðar og baggaðar og sendar í

þar til gerðar stöðvar sem nota þær

sem hráefni.

Jónas~ gerir einnig ráð fyrir að eft-

irspurn eftir hráefni til endur-

vinnslu innanlands yrði svarað en

mörg fyrirtæki hafa kvartað undan

litlum samstarfsvilja Sorpu í því

sambandi.

„Ef endurvinnsla svarar ekki

kostnaði hér þá værí jafnvel hægt

að flytja eitthvað af hráefninu út í

endurvinnslustöðvar okkar þar,"

segir Jónas. „Öll þessi helstu efni

yrðu nýtt aftur eða geymd þannig

að hægt væri að nota þau. Það sem

fellur til afgangs verður þá búið að

fara í gegnum nákvæma greiningu

þannig að tryggt er að engin skað-

leg efni sleppa í gegn.

I dag er ástandið á Islandi þannig

að ef þú hendir rafgeymi eða máln-

ingardós með heimilissorpi þá er

því bara sturtað í þjöppunarvél

uppi í Sorpu sem baggar þetta og

svo er því hent ofan í jörðina."

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32