FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994 MORGUNPOSTURINN SPORT 23 Æ? að vekur óneitanlega athygli þegar skoðaðar eru tölur yfir markahæstu menn Islandsmótsins að tveir okkar fremstu handknatt- leiksmenn, Valsmennirnir Geir Sveinsson og Dagur Sigurðsson, sjást hvergi á lista yfir markahæstu menn. Geir er ekki í hópi marka- hæstu línumannanna og hvergi er Dag að sjá í Iista yfir markahæstu leikstjórnendur... Þessi staðreynd verður kannski til þess að leiða hugann að muninum á varnarmanni og sóknarmanni í handbolta. Þessir tveir leikmenn er óumdeildir fulltrúar þjóðarinnar í þessar stöður ef marka má spek- ingaspá morgunpóstsins og líklega er varnarþátturinn hafður þar meira í huga en sóknarþátturinn... Tippið með Birni Inqa \f- A^. ) Látíð Björn Inga segja ykkur hvernig á að vinna pottinn 1. Nottingham - Arsenal 1X Heimamenn hafa verið í nokkurri lægð að undanförnu og nú hlýtur Eyjólfur að fara að hressast. Þeir sem sáu leik Arsenal á laugardag vita að liðið er í mildlli kreppu og ekki er gott að sjá hvað verður því til bjargar. 2. Tottenham - Newcastle 1X2 Þetta er sjónvarpsleikur vikunnar og verður efiaust fjölmennt fyrir framan viðtæki landsins. Bæði lið gerðu 1:1 jafntefii um síðustu helgi en staða þeirra í deildinni er eins ólík og hugs- ast getur. Af fenginni reynsiu er hægt að lofa mörkum en hversu mörg þau verða og hvar þau lenda skal ósagt lát- ið. 3. Man. Utd. - Norwich 1 Meistaramir eru nokkuð öruggir um sigur í þessum leik. Bæði er það að liðið hefur leikið illa í tveimur síðustu leikjum sínum og kann því afar illa til lengdar, og hitt er að nú ættu ein- hverjir lykilleikmenn liðsins að vera klárir í slaginn á ný eftir meiðsli. 4. Coventry - Liverpool X2 Heimamenn hafa komið mjög skemmtilega á óvart og hafa sýnt og sannað tilverurétt sinn í deildinni. Þeirra aðalhetja er sóknarmaðurinn . Didn Dublin sem keyptur var frá Manchester United fyrir þetta tíma- bil. Peningar til þeirra kaupa fengust með sölunni á varnarmanninum Phil Babb til Liverpool og því verður þetta merkilegur leikur fyrir hann. 5. Wimbledon - Blackburn X2 Það er engin tilviljun að í gegnum ár- in hefur enska úrvalsdeildarliðið Wimbledon verið kallað The Giant Killérs". Liðið hefur alltaf náð að leika vel gegn stóru" liðunum og hefur sýnt fádæma baráttu í leikjum sínum. Þetta hefur gert það að verkum að í hvert sinn sem lið í efstu sætum Blackbiirn er í efsta sætinu mæta liðinu er lítið gefið eftir og baráttan sett í fyrirrúm. Blackburn með sinar kempur ættu þó allavega að ná stigi. 6. Southampton - Chelsea 1 Liðin riðu ekki mjög feitum hesti frá síðustu umferð. Southampton gerði þá markalaust jafntefli en Chelsea tapaði með minnsta mun. Heimaliðið hefur það sér til hagsbóta að hafa markvörðinn Bruce Grobbelar í feiknastuði og fara langt á því. 7. Ipswich - Man. City X2 Botnlið Ipswich hefur verið að sýna nokkur batamerki að undanförnu og jafnteflið gegn Newcastle á laugardag sýndi leikmönnum liðsins að þetta er ékki búið. City-menn eru afar rokk- andi í leik sínum og spila oft talsvert undir getu.. 8. Sheft. Wed. - C. Palace 1X2 Bæði lið hlutu sitt stigið hvort úr við- ureignum síðustu helgar og hyggja því á sigur í þessum leik. Staða þeirra er svipuð í deildinni og kannski verð- ur því aftur um jafntefli að ræða. 9. Leicester - Aston Villa 2 Villa-menn eru nú komnir með nýjan stjóra og kannski fer þá hagur þeirra eitthvað að hressast. Leicester-menn hafa hins vegar sýnt fá batamerki að undanförnu. 10. Sunderland - Reading 1 Heimavöllurinn vegur þungt í þess- um leik. Þar að auki eru leikmenn Sunderland enn hátt upp eftir risasig- ur á laugardag og sigla þvi yfir Read- ing. 11.W.B.A.-BamsleyX Staða Iiðanna er ekkert lík í deildinni og hafa leikir W.B.A.- mánna ekki verið gott dæmi um fallegan fótbolta. Þeir eru hins vegar afar bará.ttuglaðir og stela stigi. 12. Luton - Sheff. Utd. 1 Bæði lið hafa leikið ágætlega á köflum og eru fullfær um að sýna góðan fót- bolta. Luton hefur hefðina með sér og tekur öll stigin. 13. Bristol - Grimsby 2 Fátt hefiir gengið heimamönnum í hag að undanförnu og fátt bendir til þess að þar verði breyting á. Það er víst óhætt að segja að nafn Patreks Jóhannessonar hand- knattleiksmanns hjá KA hafi verið mikið í umræðunni að undan- förnu. Þetta hefur enda verið afar viðburðaríkt ár hjá Patta eins og hann er kallaður, snemma á árinu lenti hann í hræðilegu bílslysi, síðan tilkynnti hann félagaskipti úr Stjörnunni og yfir í KA og nú leikur hann við hvurn sinn fingur og skorar sem mest hann má. Sá hversu stutt er á milli lífs og dauéa" segirPatrekurog segirslysið hafa orðið tilþess að hann flutti iiíAkureyrar. En hver er maðurinn? Ég heiti Patrekur Jóhannesson og er 22 ára gamall handknattleiks- maður. Ég bý á Akureyri og er í sambúð með Rósulind Maríu Gunnarsdóttur, eróbikkkennara og nema, hér í bæ. Sjálfur vinn ég í sportvörubúðinni Toppmenn og sport. Faðir minn, Jóhannes Sæ- mundsson íþróttakennari lést fyrir ellefu árum en móðir mín er Margrét Thorlacius umsjónar- maður barnasíðu DV." Afhverju KA? Mig langaði til að breyta til og það væri synd að segja að ég sæi eft- ir því. Ég er að spila mikið betri handbolta en áður og hef tekið miklum framförum." Hvernig skýrirðu það? Það er nú kannski ekki auðvelt að skýra það. Kannski hef ég æft betur sjálfur en áður og kannski er það meiri metnaði að þakka. Hér kom ég auðvitað nýr inn og þurfti því að sanna mig." Sjálfstraustið mjög mikilvægt Og nú er sjálfstraustið ígóðu lagi? Það er í toppi núna og aðalat- riðið er núna að halda því þar. Sjálfstraustið er afar mikilvægur þáttur í íþróttum og ekkert gengur ef það er ekki til staðar." Þegar Patrekur bjó fyrir sunnan var hann nokkuð áberandi í skemmtanalífinu. Það kom því mörgum á óvart að hann skyldi fara út á land. . RTfifTncrTTST^^ ® © ® $ m © éft ^ w * 1 ITIPPI 9. umferð c n rsson uoss uossr. Steingrí. Jóhannesson Kristján Kristjánsson c o (0 !2 3 ~° (0 k_ ö> O) (0 > 1 X 2 ir Sígurðss iing Ragna Birgisson Sigurðssor vi Guðmuni Ólafsson mur Harald -48. leikvika Gunnó Jón E Georg Lárus Trygg Ágúst Vilhjál 1. Nott.Forest - Arsenal 2 1 1 X 1 11 1 2 1 X 6 2 2 2. Tottenham - Newcastle X X 1 2 1 2 2 X 1 1 4 3 3. 3. Man.Utd. - Norwich 1 1 1 2 1 X 1 1 1 1 8 1 1 4. Coventry - Liverpool 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 0 0 10 5. Wimbledon - Blackbum 2 2 X 2 2 X X 2 jx 1 1 4 5 6. Southampton - Chelsea 2 1 1 ;1 X 1 1 1 |l 1 8 1 1 7. Ipswich - Man.City 1 2 2 1 2 2 ;2 1 X 2 3 1 6 8. Sheff.Wed. - C.Palace X X X 1 X 1 2 1 1 1 5 4 1 9. Leicester - A.Villa 2 1 2 2 2 X X X 1 X 2 4 4 10. Sunderland - Reading 1 ! X X X X 1 2 2 1 2 3 4 3 11. WBA - Barnsley X 1 2 1 -2 2 2 1 X X 3 3 4 12. Luton - Sheff.Utd. 1 2 1 2 jl ,:1 X 1 2 j 1 6 1 3 13. Bristol City - Grimsby X 1 X 1 2 x X 2 |x 1 3 5 2 Samanlagður árangur 43 47 39 47 39 ; 44 43 44 52 52 Er ekkert leiðinlegt á Akureyri? Nei, þetta er frábær staður og gott að vera hér. Ég gæti vel hugsað mér að setjast hér að í framtíðinni." Minna um skemmtanir en í Reykjavík? Já, en kannski er minna tekið eftir manni en í Reykjavík. Auðvit- að gerði maður sínar gloríur sem strákur og margt hefði mátt fara betur. En það er auðvitað bara til að læra af því og ég er ekkert verri maður fyrir vikið. Maður lærir bara afþessu. Það er minna um þessa hluti hér fyrir norðan og kannski er það gott fyrir mig." I lao/ að drekka á Polfinum Nú á þjálfari KA, Alfreð Gísla- son, skemmtistaðinn Pollinn'á Ak- ureyri. Er ekki erfitt fyrir hann að banna alla drykkju? Nei, nei. Hann tekur þessu bara létt og segir að það sé allt í lagi að drekka bjór ef hann er keyptur á Pollinum. Mórallinn er það góður og stuðningur áhprfenda að ekkert mál er fyrir Alfreð áð halda góðri sterrimningu," s'egir Patrekur hlæj- andi. Nú varstu tilnefndur sem annar tveggja leikstjórnenda íslenska landsliðsins í könnun MORGUN- PÓSTSINS á dögunum en spilar venjulega skyttu. Hvernig túlkarðu þetta? Ég er afskaplega ánægður með þetta og túlka mér þetta í hag. Ef ég er einnig talinn tilkippilegur sem leikstjórnandi auk skyttu segir það mér að ég sé á réttri leið og að ég sé ekki of einhæfur. Nú vona ég bara að niðurstaðan úr skyttukönnun- inni verði einnig góð." Stefnt á atvinnu- mennsku i.Eins og er stefni ég hiklaust á at- vinnumennsku. Því markmiði næ ég með því að leggja hart að mér og standa mig vel í deíldinni og á HM í vor. Þá gefst kannski eitthvað." Er komin tilhlökkun vegna HM? Já, mjög mikil. Ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir því hversu mikill viðburður þetta verði. Fjöl- miðlar eiga eftir að verða undir- lagðir af fréttum af mótinu og áhorfendur eiga eftir að fjölmenna á leikina." Ætlarðu að vera í hyrjunarliðinu? Ég veit ekkert um það. Héðinn Gilsson og Júlíus Jónasson eru á undan mér og eins og er tel ég þá sterkari. Hins vegar gildir bara að sanna sig þegar sénsinn gefst og það ætla ég að gera." Markagráðugur Það hefur vakið athygli hversu mörg mörk Patrekur hefur skorað í vetur. Algengt er að mörkin séu átta eða fleiri í hverjum leik og því kannski ekki undarlegt að spyrja hvort þetta sé ekki dálítil frekja? Ég er hrikalega gráðugur. Ég er svolítið bráðlátur og á enn eftir að finna stöðugleikann í hugsunina. Ég er svo ungur og óreyndur enn- þá." í sumar skipti Patrekur úr Stjörnunni yfir í KA og vaktí það mikla athygli. Sumir sögðu að þetta væri bara peningagræðgi en aðrir töluðu um rétt leikmanna til að ákveða sína eigin framtíð. Þetta var svolítið hitamál. Ég hef samt enn samband við marga Stjörnumenn og finn engan skíta- móral þar á milli. Hann er allavega ekki af minni hálfu. Þeim gengur líka ágætlega og sömuleiðis okkur þannig að það er engin ástæða til að vera með móral." . Eékkstu mikið fyrir skiptin? Svona hluti talar maður ekki um. Ég segi eins og Beggi í Aftur- eldingu; Þetta er áhugamálið mitt." KA-menn taka á móti Stjörnu- mönnum annað kvöld. Er ekki kom- innfiðringur í menn? Jú, það er víst óhætt að segja það. Þetta verður skemmtilget fyrir mig og spennandi. Við ætlum að halda sigurgöngunni áfram og leggjum því allir 110 prósent í þenn- an leik." Hræðileg lífsreynsla Þann 23. febrúar síðastliðinn lenti Patrekur í hræðilegu bílslysi. Ég var að koma úr vinnunni og blindaðist á Ijósum og fór yfir á rauðu. Úr þessu varð mikill árekst- ur, ég lenti á öðrum bíl og kastaðist marga metra og lenti á gangandi vegfaranda sem beið bana. Þetta var hræðileg lífsreynsla og ég hef mikið pælt í þessu. Það er stutt síðan þetta gerðist og í raun má segja að þetta hafi orðið til þess að ég tók endanlega ákvörð- un um að skipta um umhverfi. Ég bjó rétt hjá þessum stað þar sem þetta gerðist og vildi losa mig við að horfa á hann á hvérjum degi." Er hgt að gleyma svona atburði? Nei, það held ég ekki. Þetta var auðvitað bara slys en samt lifir þetta alltaf með mér. Svona hlutum getur maður bara ekki gleymt. Á ^þessu andartaki sá maður hversu stutt er á milli lífs og dauða. Ég held að þetta hafi orðið til þess að ég tók mig saman í andlitinu og fór að hugsa meira um sjálfan mig. Ég hafði stundum velt því fyrir mér að skipta um lið en alltáf guggnað á því þegar til kastanna kom. Ég ræddi þetta við Rósulind og við ákváðum bara að fara." Þannig að það er öílum hollt að breyta til? Það ér alveg á hreinu. Þrátt fyrir að Stjarnan verði alltaf mitt félag er alveg ljóst að ég hef tekið hárrétta ákvörðun. Það er ekki annað hægt en að hvetja menn til að hugsa sinn gang ef þeim fínnst ferillinn vera í stöðnun og ekkert hafa gerst síð- ustu ár. Ég veit um marga hand- boltamenn á Islandi sem hefðu gott af því að skipta um .umhverfi og sanna sig upp á nýtt." -Bih